Feykir - 26.01.2022, Blaðsíða 13
2019 í rafmagnsleysi í sveitar-
félaginu; Ólöf Ólafsdóttir fyrir
óeigingjarnt starf til velferðar-
sjóðs Húnaþings vesta og Sölu-
skálinn Núpskollur fyrir góðar
móttökur hjá eiganda og starfs-
fólki vegna hlýlegs viðmóts.
Stór tímamót vegna
örsláturhúsa
Þann 22. október urðu þau
tímamót í Íslandssögunni að
slátrun fór fram í svokölluðu
örsláturhúsi í fyrsta sinn á Íslandi
með leyfi yfirvalda. Hjónin
Ragnheiður Lára Brynjólfsdóttir
og Þröstur Heiðar Erlingsson
í Birkihlíð í Skagafirði höfðu
staðið í ströngu í nokkur miss-
eri að ná því í gegn hjá íslensku
reglugerðarkerfi að löglegt
verði að slátra heima að undan-
gengnum skilyrðum um ásættan-
legar aðstæður og búnað til verks-
ins og frágangs afurða og úrgangs.
Þröstur sagði að fáu hefði
verið lógað í þetta skiptið eða
átta lömbum, rétt til að koma
sér af stað, og vel hafi gengið.
Lét hann að því liggja á forsíðu
síðasta blaðs október að slátrað
yrði aftur fljótlega og þá mun
fleiri lömbum eða 30-40.
„Við höfum beðið með nokk-
ur lömb til þess að slátra ef þetta
hefði hafst. Leit nú ekki þannig út
á tímabili,“ segir hann en mörg
ljón hafa verið í veginum frá því
farið var af stað með verkefnið.
Guðmar Freyr efnilegastur
Skagfirðingurinn Guðmar Freyr
Magnússon var valinn efnilegasti
knapi landsins á verðlaunahátíð
Landssambands hestamannafé-
laga og Þúfur hlutu nafnbótina
keppnishestabú ársins.
Sumarið var Guðmari heilla-
drjúgt þrátt fyrir skakkaföll sem
næstum komu í veg fyrir að
hann næði að keppa á helstu
hestamótum landsins eins og
fram kom í viðtali við hann í
Feyki um svipað leyti en hann
slasaðist á fæti.
Nóvember
Norðvestlendingar
7426 talsins
Íbúum fjölgaði í öllum lands-
hlutum á tímabilinu frá 1. des-
ember 2020 til 1. nóvember 2021
en hlutfallslega var fjölgunin
mest á Suðurlandi eða um 3,2%
og á Suðurnesjum um 2,5%.
Á Norðurlandi vestra fjölgaði
um 0,2% eða um 14 og töldust
íbúar á þessum tímapunkti vera
7426 alls. Húnavatnshreppur
var með hæsta hlutfallið, 3,8%
eða um sama fjölda, 14 manns.
Mesta fækkunin varð hins vegar
á Blönduósi, 27 manns eða um
2,8%.
Í Svf. Skagafirði bættust 19
á íbúaskrána hvar 4109 bjuggu,
11 í Húnaþingi vestra og töldust
þeir vera 1230 og á Skagaströnd
fjölgaði um tvo svo þar áttu
lögheimili 477 manns þann 1.
nóvember. Fækkun varð hins
vegar í Akrahreppi um fjóra
einstaklinga sem voru þá 206 og
á íbúaskrá Skagabyggðar fækkaði
um einn þar sem 91 var skráður.
Ekki samstaða um
sameiningarviðræður
Sveitarstjórn Skagabyggðar
Þoka frá Sveinsstöðum, fyrsta lifandi
kindin með T137 sem finnst á Íslandi,
eftir 20 ára leit. MYND: ÓLAFUR MAGNÚSSON
í tónlistarlífi Húnaþings vestra.
„Elinborg fylgdi gjöfinni úr
hlaði með fáeinum orðum þar
sem hún gat um að á löngum
tíma hefði safnast að fjölbreyttar
nótur þar sem kenna þurfti á
mörg hljóðfæri auk margvíslegra
tónlistarverkefna. Það væri
einnig hennar vilji að nóturnar
yrðu til útlána frá safninu ef
einhver vildi nýta sér það,“ segir
í frétt um málið.
Nýr dráttarbátur til
Sauðárkrókshafnar
Dráttarbátur sá er Skagafjarðar-
hafnir festu kaup á sl. haust kom
til hafnar á Sauðárkróki þann
22. nóvember síðastliðinn. Að
sögn Dags Þórs Baldvinssonar,
hafnarstjóra, er um mikið
öryggismál að ræða fyrir sjó-
farendur og kemur báturinn
til með að þjóna togurum og
fraktskipum, innan hafnar sem
utan, en hingað til hafa trillur
verið notaðar með misgóðum
árangri.
„Við erum búnir að prófa
hann aðeins og hefur gengið
mjög vel. Við erum mjög
ánægðir með hann, þrusu græja
og á eftir að koma að miklum
og góðum notum,“ segir Dagur.
Þremur vikum síðar fékk bátur-
inn nafnið Grettir sterki.
Tvö af Norðurlandi vestra í
U21-landsliðshóp LH
Guðmar Hólm Ísólfsson Líndal
úr Hestamannafélaginu Þyt í
Húnaþingi vestra og Þórgunn-
ur Þórarinsdóttir, Skagfirðingi,
voru valin í U21-landsliðshóp
LH 2022 sem kynntur var í
byrjun desember. Komu þau ný
inn í hópinn ásamt ásamt fjór-
um öðrum.
Stærsta verkefni ársins 2022
er Norðurlandamót sem haldið
verður á Álandseyjum í byrjun
ágúst.
Samstarf Kormáks og Hvatar
í meistaraflokki karla tryggt
Fulltrúar frá Ungmennafélag-
inu Kormáki og frá Ungmenna-
félaginu Hvöt funduðu um
miðjan desember um þá stöðu
sem sameiginlegt meistara-
flokkslið karla í knattspyrnu var
komið í en Feykir hafði stuttu
áður sagt frá því að slitnað
hefði upp úr tíu ára samstarfi
félaganna.
Í framhaldi af bollalegging-
um fundarins var skrifað undir
samstarfssamning um rekstrar-
fyrirkomulag fyrir meistaraflokk
karla í knattspyrnu fyrir keppnis-
tímabilið 2022 og því ljóst að
Kormákur/Hvöt mun leika í 3.
deild næsta keppnistímabil.
Elinborg, fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskóla Húnaþings vestra, fyrir miðri mynd,
ásamt fyrrverandi nemendum sínum og Ólafi Rúnarssyni tónlistarkennara.
MYNDAF FACEBOOK-SÍÐU SAFNSINS
ákvað á fundi sínum þann 3.
nóvember að ekki væri sam-
staða innan sveitarstjórnar-
innar um að hefja formlegar
sameiningarviðræður við
Sveitarfélagið Skagaströnd. Á
fundi sínum þann 20. októ-
ber hafði Sveitarfélagið Skaga-
strönd ákveðið að óska eftir
formlegum viðræðum við
Skagabyggð.
Í fundargerð Skagabyggðar
kemur fram eftirfarandi bókun:
„Eftir talsverðar umræður innan
sveitarstjórnar Skagabyggðar tel-
ur hún ljóst að ekki sé samstaða
innan sveitarstjórnar til að hefja
formlegar sameiningarviðræður
við Sveitarfélagið Skagaströnd.
Niðurstöður skoðunarkönnunar
í Skagabyggð voru ekki afgerandi
og hafði það áhrif á afstöðu
sveitarstjórnarmanna.“
Geirmundur fékk glæsta
hryssu að gjöf
Það var glatt á hjalla í Kakala-
skálanum um miðjan nóvember
þegar þeir Guðni Ágústsson
og Guðjón Ragnar Jónasson
boðuðu til hátíða á messutíma
til að kynna bók sína, Guðni
á ferð og flugi. Geirmundur
Valtýsson var mættur og falið að
spila á harmonikkuna og stýra
söng, sem hann gerði, en öllum
að óvörum kynnti Guðni að
fram færi heimsviðburður því
aðdáendur Geirmundar ætluðu
að hefja samkomuna á að heiðra
Geirmund fyrir að hafa spilað og
sungið fyrir þjóðina í 65 ár og þar
af með hljómsveit Geirmundar
Valtýssonar í 50 ár eða hálfa öld.
Eftir að Guðni hafði ávarpað
þau Mínervu og Geirmund
leiddu þeir Bjarni Maronsson
og Kolbeinn sonur hans inn
á gólfið í Kakalaskála glæsta
hryssu, Sóley, undan Glaum frá
Geirmundarstöðum sem er hátt
dæmdur stóðhestur úr ræktun
Geirmundar. Mikil fagnaðarlæti
brutust út og hrifust menn af
glæsihryssunni.
Einn þeirra sem við sögu
koma í bókinni er Axel Rúnar
Guðmundsson á Valdarási
í Vestur-Húnavatnssýslu og
segir í fréttinni að gestir hafi
fengið gæsahúð af undrun við
fyrstu yfirlýsingu Rúnars sem
sagðist vera hinn týndi sonur
Skagafjarðar, hefði komið undir
í hlöðunni á Hólum og væri
sonur Sigga Vill sem margir
þekktu. Axel Rúnar var kominn
til að þakka Guðna sérstaklega
fyrir að hafa heimsótt sig óvænt
í fyrravor. Hann sagðist hafa
séð velgjörðarmann sinn, séra
Róbert Jack, ganga með þeim
Guðna og Guðjóni að húsi sínu
svo hvarf sjónin.
Desember
Vatnsnesvegur í
hópfjármögnun
Sveitarstjórn Húnaþings vestra
samþykkti á fundi sínum að
hefja hópfjármögnun á Karolina
Fund vegna framkvæmda við
Vatnsnesveg, nr. 711 með það
að markmiði að hægt verði að
flýta framkvæmdum sem áætlað
er að hefjist ekki fyrr en á þriðja
tímabili áætlunarinnar, þ.e. á
árunum 2030-2034. Ýmislegt
var í boði fyrir þá sem tóku þátt í
verkefninu.
Sveitarstjórn Húnaþings
vestra leggur mikla áherslu
á að Vatnsnesvegur komist
framar á samgönguáætlun,
hönnun vegarins fari af stað
og framkvæmdum við hann
verði flýtt. Á heimasíðu sveitar-
félagsins kemur fram að
verðið á veginum sé áætlað 3,5
milljarðar króna en til að hægt
sé að flýta framkvæmdum við
veginn og koma hönnun strax
af stað er lagt upp með að safna
100.000.000 kr. sem er einungis
brot af kostnaði vegarins, segir í
bókun sveitarstjórnarinnar sem
telur upphæðina nægja til að
hefja hönnun strax.
Elinborg færði
nótnasafn sitt að gjöf
Bóka- og héraðsskjalasafni
Húnaþings vestra barst góð gjöf
þegar Elinborg Sigurgeirsdóttir,
fyrrverandi skólastjóri Tónlistar-
skóla Húnaþings vestra, færði
safninu nótnasafn sitt sem
spannar 43 ára starfsferil en
síðustu 35 árin var hún leiðandi
Talsverðar skemmdir urðu á höfninni á
Hofsósi í hausthvelli.
MYND FRÁ SKAGAFJARÐARHÖFNUM.
Eldur frá Íbishóli eftir sigur á Fjórðungs-
móti. MYND: BRYNJA GNÁ BERGMANN
Guðni Ágústsson og Geirmundur Valtýs-
son með glæsihryssuna Sóley á milli
sín. MYND: HJÖRTUR GEIRMUNDSSON.
03/2022 13