Feykir - 26.01.2022, Síða 9
HVERNIG GÆTI SAMEINAÐ SVEITARFÉLAG LITIÐ ÚT?
MENNING, FRÍSTUNDIR OG LÝÐHEILSA
Framtíðarsýn
• Gott og fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf er grunnur að góðu samfélagi
• Markmiðið er að stuðla að enn fjölskylduvænna samfélagi með auknu
framboði og bættu aðgengi að félags-, íþrótta- og menningarstarfi
• Áhersla á heilbrigði og lýðheilsu
• Frístundaheimili og frístundaakstur fyrir unga sem aldna
• Varðveita menningu og sérkenni hvers svæðis
Áskoranir
• Samræming skóla- og frístundastarfs
• Að tryggja að menningararfleið svæðanna
njóti sín og sérstaða glatist ekki
• Tryggja aðgengi allra íbúa að aðstöðu
til menningar- og frístundastarfs
FÉLAGS- OG SKÓLAÞJÓNUSTA
Framtíðarsýn
• Blönduskóli og Húnavallaskóli sameinist í nýjan skóla haustið 2022 og að
starfsemin verði komin á einn stað á Blönduósi eigi síðar en árið 2024.
• Leikskóli verði sjálfstæð stofnun með starfsstöðvar á Blönduósi
og Húnavöllum.
• Skýr menntastefna fyrir sameinað sveitarfélag með áherslu
á fjölbreytt nám fyrir nemendur
• Skapa aðstöðu til frístundastarfs eftir skóla fyrir nemendur
• Félags- og skólaþjónusta verði efld og færð inn
í rekstur nýs sveitarfélags
• Framhaldsskólanemar njóti námsstyrkja líkt og
boðið er upp á í Húnavatnshreppi
• Áfram verði boðið upp á dreifnám á framhaldsskólastigi
• Efla þjónustu við aldraða með uppbyggingu á fleiri
þjónustuíbúðum og akstri
Áskoranir
• Skapa fleiri störf fyrir fagmenntað fólk
• Tengja saman skólaakstur, frístundaakstur og akstur vegna dreifnáms
• Þróun og innleiðing fjarkennslu í skólastarfi
• Samþætting þjónustu við börn í samræmi við nýjar lagakröfur
UMHVERFIS-, SKIPULAGS-
OG BYGGINGARMÁL
Framtíðarsýn
• Framtíðarsýnin er að verða umhverfisvænasta sveitarfélag á Íslandi
• Stofnuð verði umhverfisakademía á Húnavöllum
• Sérstök umhverfisnefnd sem fer með úrgangs-, fráveitu- og loftslagsmál
• Einfaldari og skilvirkari framkvæmd skipulags- og byggingarmála
• Heildstæð sýn á sameiginlega hagsmuni svæðisins
Áskoranir
• Vaxandi kröfur í umhverfis-, loftslags- og skipulagsmálum
• Stórt skipulagssvæði og margvíslegir hagsmunir
• Vinna þarf nýtt aðalskipulag fyrir sameinað sveitarfélag
ATVINNUMÁL, BYGGÐAÞRÓUN
OG ÖRYGGISMÁL
Framtíðarsýn
• Vistvænt samfélag fyrir íbúa og atvinnulíf í samræmi
við Stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018-2024
• Öflug atvinnuþróun og samgöngubætur
• Aukin áhersla á rannsóknir og þróun, m.a. í textíliðnaði
og hátæknimatvælaframleiðslu.
• Umhverfisakademía og skyld starfsemi á Húnavöllum
• Tryggt verði að sveitarfélagið kosti eðlilegt viðhald
á gangnamannaskálum, réttum og afréttagirðingum
• Mikilvægt er að koma upp aðstöðu fyrir
„Störf án staðsetningar“ á svæðinu
Áskoranir
• Íbúaþróun
• Fjölga störfum og atvinnutækifærum
• Breytingar í landbúnaði og matvælaframleiðslu
• Breytingar í verslun og þjónustu með aukinni snjallvæðingu
• Bættar samgöngur innan svæðis
• Tryggja eignarhald sveitarfélagsins á Húnaneti ehf.
• Tryggja háhraðatengingu á Blönduósi
• Tryggja fullnægjandi flutningsgetu raforkunetsins
og að orka sem framleidd er í héraði nýtist innan þess
FJÁRMÁL
Framtíðarsýn
• Við sameiningu sveitarfélaganna munu rekstrartekjur hækka og tækifæri
eru til hagræðingar í rekstri.
• Skuldir og vaxtakostnaður mun lækka vegna sameiningarframlaga.
• Fjárfestingageta mun aukast.
• Sveitarfélögin áætla að fjárfesta fyrir 700 m.kr. á næstu fjórum árum.
• Framlög Jöfnunarsjóðs vegna sameiningar eru áætluð 555 m.kr. miðað við
ársreikninga 2020. Þar af eru 275 m.kr. til niðurgreiðslu skulda og 200 m.kr.
til breytinga á stjórnsýslu og þjónustu.
• Að teknu tilliti til sameiningarframlaga og hagræðingar í rekstri má gera ráð
fyrir því að sameinað sveitarfélag nái rekstrarjafnvægi fyrr en nú er áætlað
og svigrúm til fjárfestinga aukist.
• Áætlað er að árleg tekju- og útgjaldajöfnunarframlög úr
Jöfnunarsjóði hækki um 24 mkr. á ári.
• Áætlað rekstrarhagræði af sameiningu Blönduskóla og Húnavallaskóla
eru 40-50 m.kr. á ári.
• Jöfnunarsjóður mun veita óbreytt framlög til skólanna í fimm ár eftir sameiningu
þeirra á einn stað, en að þeim tíma liðnum er áætlað að þau lækki um 44 m.kr.
Ávinningurinn er 200-250 m.kr. fyrstu 5 árin en 190-270 m.kr. sé horft til 10 ára.
• Verði af sameiningu þarf að samræma gjaldskrár þar sem þjónusta er sú
sama en ætluð áhrif á þjónustugjöld og þjónustustig eru óveruleg.
Áskoranir
• Rekstur beggja sveitarfélaga er viðkvæmur, en fjárhagsáætlanir
gera ráð fyrir batnandi rekstri.
• Í fjárhagsáætlunum beggja sveitarfélaga er ekki gert ráð fyrir því að
veltufé standi undir afborgunum langtíma lána til ársins 2023.
Það er því lítið svigrúm til fjárfestinga.
• Hvorugt sveitarfélag stóðst jafnvægisreglu árin
2018-2020 en sameinað sveitarfélag hefði staðist
regluna 2018 og 2019.
• Hlutfall skulda og skuldbindinga af rekstrartekjum
A og B hluta árið 2020 var 140% hjá Blönduósbæ
og 80% í Húnavatnshreppi. Skuldahlutfall
sameinaðs sveitarfélags hefði verið 121%.
SAMGÖNGUR OG INNVIÐIR
Framtíðarsýn
• Uppbygging og bundið slitlag á héraðs- og tengivegi
• Nýtt slitlag á Blönduóssflugvöll
• Bætt vetrarþjónusta á þjóðvegum
Áskoranir
• Ástand flugvallar kemur í veg fyrir að hann þjóni öryggishlutverki
sínu fyrir sjúkraflug
• Slæmt ástand héraðs- og tengivega
• Mikil samkeppni um takmarkaða fjármuni til viðhalds vega
• Setja skýrar reglur varðandi snjómokstur
STJÓRNSKIPULAG
Framtíðarsýn
• Valið verði nýtt heiti á sameinað sveitarfélag
• Ráðhúsi verði fundinn nýr staður á Blönduósi
• Mikilvægt er að gott aðgengi íbúa að stjórnsýslu verði tryggt
• Boðleiðir verði áfram stuttar þrátt fyrir að valdið færist á færri hendur
• Sveitarstjórnarfulltrúar verði níu, með heimild í sérreglum
í sveitarstjórnarlögum
• Áhersla verði lögð á að nefndir sveitarfélagsins séu virkar og áhrif
íbúanna á nærumhverfi og staðbundna hagsmuni séu tryggð
• Tillaga að nefndaskipan:
• Byggðarráð
• Fræðslunefnd
• Félagsmálanefnd
• Íþrótta-, tómstunda- og lýðheilsunefnd
• Umhverfis- og landbúnaðarnefnd
• Fjórar fjallskilanefndir
• Skipulags- og byggingarnefnd
• Atvinnu- og menningarmálanefnd
Áskoranir
• Vaxandi kröfur til stjórnsýslu sveitarfélaga bæði af hálfu
Alþingis og íbúa sem kalla á aukna fagmennsku og sérhæfingu
• Tæknilegar breytingar skapa nýjar áskoranir fyrir sveitarfélögin,
hvort sem kemur til sameiningar eða ekki
TILLAGA AÐ
SKIPURITI