Feykir - 09.02.2022, Blaðsíða 4
„Það þarf fólk eins og þig, fyrir fólk eins og mig“
ÁSKORANDAPENNINN | palli@feykir.is
Nú á dögunum tók
ég áskorun Ólafs
Magnússonar, óðalsbónda
á Sveinsstöðum, um að
rita nokkur orð undir
liðnum „Áskorendapenni
Feykis“. Það á ekki að
vefjast fyrir okkur, ef á
annað borð maður getur
ákveðið hvað skal skrifa
um, því af mörgu er að
taka í samfélaginu okkar
hér á Norðurlandi vestra.
Fyrst kom Covid einhverra
hluta vegna upp í hugann,
en nei andskotinn, eigum
við ekki að vona að þetta
sé að verða búið bara.
Auk þess erum við
ágætlega skipuð
sérfræðingum og
náttúrulega ennþá
meira af sjálfskipuðum
sófasérfræðingum sem
geta einbeitt sér að því
svo ég sé ekki að bæta í
sarpinn.
Snjómokstur er mér
ofarlega í huga, ég hef nú
keyrt á milli Sauðárkróks
og Blönduóss, yfir
Þverárfjallið til skóla og
vinnu í að verða sjö ár,
hjá Dögun rækjuvinnslu,
Fisk Seafood og
fiskeldisfræðinámi í
Háskólanum að Hólum.
Á þessu tímabili hef ég
vitanlega haft nokkurt
tækifæri til að fylgjast
með snjómokstri á þessari
skemmtilegu leið, sem
hefur og er að ganga
í gegnum endurnýjun
lífdaga með viðamiklum
framkvæmdum sem er vel.
Mig langar að nota
tækifærið til að hrósa
mokstursmönnunum
okkar fyrir frábær
vinnubrögð. Ég hef þó
nokkurn samanburð af
öðrum fjallvegum, enda
verið ansi mikið á ferðinni
undanfarin ár á öðrum
fjallvegum landsins vegna
hinna ýmsustu erinda.
Og verð að segja að mér
hlýnar alltaf örlítið um
hjartarætur þegar ég mæti
mokstursbílnum, reyni
að víkja vel og sýna þeim
allt það umburðarlyndi
sem til þarf, enda að mæta
sannkölluðum konungum
þjóðveganna.
Þegar þetta er skrifað er
Evrópumótinu í handbolta
nýlega lokið, helvítis
Danirnir hindruðu okkur í
að komast í undanúrslit en
strákarnir okkar stóðu sig
frábærlega undir styrkri
stjórn Guðmundar okkar
Guðmundssonar.
Það er ákveðin
rómantík yfir því þegar
handboltalandsliðið er
að keppa á stórmóti. Í
byrjun móts sér maður
fyrir sér rólega gæðastund
með fjölskyldunni, þar
sem allir gleðjast yfir
velgengni strákanna og
taka náttúrulega þátt í
þeim skakkaföllum sem
á dynja eins og gengur
og gerist. En ég verð að
segja, að þessi rómantíska
glansmynd breytist strax
við fyrsta leik.
Það er nú einhvern veginn
þannig að eiginkona mín,
hin dagfarsprúða og
elskulega Þórdís mín, er
afskaplega kappsöm svo
meira sé ekki sagt, og
þegar „Strákarnir hennar“
í handboltanum eru að
keppa kveður við alveg
nýjan tón hjá gömlu.
Þegar upphafsflautið
gellur, er hún búin að
undirstrika það nokkrum
sinnum hvað hún er
spennt og svo verður
hún hreinlega andsetin í
sófanum. Maður þorir ekki
fyrir sitt litla líf að taka
undir með dómaranum
ef dæmt er á Ísland og
maður óttast nánast um
líf sitt í sófanum. Við
feðgarnir reynum að halda
okkur aðeins til hlés þar
til leiktímanum er lokið,
þá fellur allt í ljúfa löð
og óttablandin virðing
fyrir konunni víkur fyrir
daglegu amstri. Oft hef ég
hugsað hvorum okkar sé
meira létt þegar lokaflautið
heyrist, mér eða Gumma
þjálfara.
Áfram Ísland!
Ólafur Magnússon
skrifaði í pistli sínum um
sameiningarviðræður
Blönduóss og
Húnavatnshrepps. Það
er mér ljúft og skylt að
fjalla um þetta málefni,
verandi einn af fulltrúum
sveitarfélagsins Blönduóss
í sameiningarnefndinni.
Óli vinur minn er hlynntur
sameiningu og nefnir hann
til nokkur atriði sem styðja
við þá skoðun hans.
Sem fulltrúi í
sameiningarnefndinni
þá verð ég að hvetja
íbúa Blönduóss og
Húnavatnshrepps til að
kynna sér vel þá valkosti
sem eru í stöðunni. Bæði
sveitarfélög þurfa á hvoru
öðru að halda eins og Óli
kemur inn á og sameinuð
verðum við sterkari en ella.
Hagkvæmniskostirnir með
stofnun nýs sveitarfélags
eru miklir, svo og
tækifærin sem skapast
með hagkvæmari rekstri,
aukinni fjárfestingargetu,
eflingu innviða og svo
margt fleira.
Ef af sameiningu verður,
þá er það vitanlega
í höndum nýrrar
sveitastjórnar að ganga
þannig frá málum að vel
sé, og þegar öllu er á
botninn hvolft er það í
hendi hvers og eins íbúa
að kjósa eftir sinni eigin
sannfæringu, og hlýtur það
því að vera á ábyrgð hvers
og eins að kynna sér kosti,
og eða galla, við stofnun
nýs sveitarfélags.
Og hafandi sagt það,
stofnun nýs sveitarfélags,
þá erum við ekki að kjósa
um yfirtöku, samruna eða
sameiningu sem slíka því
ef niðurstaða kosninga
verður jákvæð verður nýtt
sveitarfélag byggt á grunni
þessara tveggja.
Ég tek heilshugar undir
með Óla vini mínum og
segi hiklaust „Já“ við
myndun og uppbyggingu
nýs sveitarfélags því eins
og Óli nefndi í pistlinum,
þá getur Blönduós ekki
án sveitarinnar verið og
sveitin ekki án Blönduóss
verið. Eða eins og Rúnni
okkar Júll söng um árið
„Það þarf fólk eins og þig,
fyrir fólk eins og mig“.
Hér við situr, komið að
leiðarlokum í pistlinum,
og ekki úr vegi að skora á
næsta áskoranda.
Góðar stundir!
- Ég skora á Guðmund Hauk
Jakobsson á Blönduósi að
taka við keflinu.
Jón Örn Stefánsson Blönduósi
Jón Örn Stefánsson ásamt Þórdísi Erlu Björnsdóttur. MYND AÐSEND
Drangey-smábátafélag Skagafjarðar
Skorað á matvælaráðherra að falla frá skerðingu strandveiðikvóta
Drangey-smábátafélag
Skagafjarðar, skorar á
matvæla-ráðherra að falla frá
fyrirætlan sinni um skerðingu á
heildarafla til strandveiða á
komandi sumri og beinir því til
allra stjórnmála-flokka á Alþingi
að sameinast um að festa 48
veiðidaga á sumri í sessi.
Telur félagið að sú stefna
sem mótuð var fyrir fjórum
árum um að heimila strand-
veiðar í tólf daga á mánuði, alls
48 daga á sumri hafi, þrátt fyrir
frávik á síðustu tveimur árum,
reynst afar skynsamleg með
tilliti til hagvæmni, öryggis við
veiðarnar og jafnræðis milli
landshluta.
„Drangey beinir því til allra
stjórnmálaflokka á Alþingi að
sameinast um að festa slíkt
fyrirkomulag í sessi með
lagasetningu enda strand-
veiðar mikilægt atvinnu- og
byggðamál eins og margoft
hefur komið fram,“ segir í
ályktun Drangeyjar sem
samþykkt var í gær.
Rímar þessi ályktun við
bókun byggðarráðs Svf.
Skagafjarðar, fyrir viku síðan,
sem skorar einnig á Svandísi
Svavarsdóttur, matvælaráð-
herra, að endurskoða ákvörð-
un sína. Telur ráðið að sú
stefna sem mótuð var fyrir
fjórum árum um að heimila
strandveiðar í tólf daga á
mánuði, alls 48 daga á sumri,
hafi reynst afar skynsamleg.
„Þannig náðist hvoru tveggja;
að eyða hættulegum keppnis-
þætti veiðanna og að tryggja
að mestu jafnræði milli
veiðisvæða allt í kringum
landið.“
Þá hefur stjórn SSNV hvatt
hæstvirtan matvælaráðherra
til að hverfa frá þessum 1.500
tonna niðurskurði afla-
Frá smábátahöfninni á Sauðárkróki. MYND: PF.
heimilda til strandveiða árið
2022. „Mikilvægt er fyrir
sjávarbyggðalög á Norður-
andi vestra að strandveiðar
verið heimilaðar í 48 daga, 12
daga í hverjum mánuði á
tímabilinu maí til ágúst og
jafnræðis verði gætt milli
veiðisvæða,“ segir í ályktun
stjórnarinnar enda um mikla
hagsmuni að ræða fyrir
sjávarbyggðalög í lands-
hlutanum. /PF
4 06/2022