Feykir - 09.02.2022, Blaðsíða 5
Subway deildin
Súrt tap á þorranum
Stólarnir þurftu að láta í minni
pokann þegar þeir öttu kappi
við Breiðablik í Smáranum í
Kópavogi í síðastliðið
mánudagskvöld í Subway deild
karla. Eftir jafnan fyrri hálfleik
náðu gestgjafar tíu stiga forystu
sem þeir létu ekki af hendi það
sem lifði leiks og unnu með 107
stigum gegn 98.
Þrátt fyrir góða baráttu
Tindastóls má segja að varnar-
vinnan og tapaðir boltar hafi
ráðið úrslitum leiksins að þessu
sinni og er áhyggjuefni fyrir
framhaldið. Má segja að þetta
komi á óvart þar sem mikið var
lagt upp úr vörninni strax í
upphafi tímabils. „Þurfum að
hætta að fá á okkur 100 stig í
leik,“ sagði Baldur Þór, þjálfari
Stóla í viðtali við Karfan.is eftir
leikinn og Pétur Ingvarsson,
þjálfari Breiðabliks, var einnig
tekinn í viðtal og minntist á
varnarleikinn: „Þeir eru ekki
góðir varnarlega, eiga erfitt með
að halda mönnum fyrir framan
sig og eru seinir og við nýttum
okkur það.”
Tíu stiga forskot
Tindastóll og Grindavík
mættust í HS Orku-höllinni
suður með sjó sl. fimmtudags-
kvöld en bæði lið voru með 14
stig fyrir leik. Leikurinn var að
mörgu leyti ágæt skemmtun,
sagði Óli Arnar í umfjöllun
sinni á Feykir.is eftir leik, þar
sem bæði lið spiluðu ágætan
sóknarbolta en „margir
söknuðu þess að Stólarnir
spiluðu alvöru varnarleik“. Líkt
og í leiknum í Kópavogi náðu
heimamenn tíu stiga forystu, en
nú í fyrsta leikhluta, og það bil
náðu gestirnir aldrei að brúa þó
oft hafi aðeins vantað herslu-
muninn. Lokatölur urðu 101-
93 fyrir Grindavík.
Nú situr Tindastóll í 7. sæti
deildarinnar með 14 stig meðan
ÍR, Breiðablik og KR raða sér í
næstu sæti fyrir neðan með 12
stig og ljóst að nú þarf að hysja
upp um sig sokkana ætli liðið í
úrslitakeppnina. Næsti leikur er
gegn Njarðvík á fimmtudaginn
og þá þurfa stuðningsmenn að
fjölmenna í Síkið og leggja sitt
af mörkum í baráttunni.
Áfram Tindastóll! /PF
Kjarnafæðismótið
Kvennalið Tindastóls með góðan sigur á Þór/KA
Meistaraflokkur Tindastóls kvenna sigraði Þór/
KA 0-3 síðastliðinn sunnudag í A-deild Kjarna-
fæðismótsins sem fram fór á Akureyri.
Leikurinn byrjaði af miklum krafti okkar stelpna
gegn ungu liði Þórs/KA, segir á heimasíðu
Tindastóls.
„Murielle skoraði frábært skallamark eftir
góða fyrirgjöf frá Sólveigu Birtu strax á 5.
mínútu leiksins. Elísa Bríet Björnsdóttir (fædd
2008) skoraði þá sitt fyrsta mark fyrir Tindastól,
í sínum fyrsta meistaraflokksleik, með
stórglæsilegu skoti upp í samskeytin eftir að
hafa tekið frákast eftir hornspyrnu. 2-0 var
staðan í hálfleik.
Strax í byrjun seinni hálfleiks skoraði Aldís
María Jóhannsdóttir gott mark eftir frábæran
liðsundirbúning. Virkilega gott spil sem endaði
með því að Aldís slapp ein í gegn, kláraði færið
vel og gerði út um leikinn,“ segir í lýsingu á
Tindastóll.is.
„Heilt yfir góð frammistaða gegn mjög
sprækum og barráttuglöðum ungum
leikmönnum Þórs/KA. Liðið hélt hreinu og
skoraði 3 mörk. Margir fínir spilkaflar og allir
leikmenn að leggja sig fram fyrir hvor aðra.
Allir leikmenn komu við sögu í leiknum. Þrír
leikmenn fæddir 2008 spiluðu sinn fyrsta
meistaraflokksleik og stóðu sig vel og verður
gaman að fylgjast með þeim í framhaldinu,“
sagði Donni þjálfari stelpnanna eftir leikinn við
tíðindamann Tindastóls.
Tindastólsstelpur leika næst í Lengjubikarnum
og mæta þá liði Breiðabliks nk. laugardag, 12.
febrúar. /ÓAB
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Það tók Murielle fimm mínútur að finna markið þetta árið.
Hún er að hefja sitt fimmta tímabil með Tindastól og hefur
hingað til skorað 87 mörk í 76 KSÍ-leikjum. MYND: ÓAB
Knattspyrnudeild Tindastóls
Johanna Henriksson
ráðin þjálfari
Knattspyrnudeild Tindastóls
hefur ráðið Svíann Johönnu
Henriksson sem þjálfara hjá
deildinni en hún mun verða
aðalþjálfari 3. flokks kvenna
og nýstofnaðs 2. flokks
kvenna og einnig hluti af
þjálfarateymi meistaraflokks
kvenna og karla í
markmannsþjálfun.
Á heimasíðu Tindastóls
segir að Donni, þjálfari
meistaraflokka Tindastóls,
hafi áður unnið með Johönnu
en hún kom fyrst til Íslands
sem markmaður hjá Þór/KA
fyrir nokkrum árum meðan
Donni þjálfaði þar.
„Ég er svakalega glaður að
fá Johönnu Henriksson, eða
Jojo eins og við köllum hana,
inn í þjálfaraliðið okkar.
Johanna kom fyrst til Íslands
sem markmaður hjá Þór/KA
fyrir nokkrum árum og stóð
sig vel. Það sem hún kemur
með sem þjálfari er mikill
metnaður og ástríða. Hún
leggur sig alltaf fram og
erdrífandi og jákvæður
einstaklingur. Jojo vill læra og
gera allt sem hún gerir eins
vel og kostur er. Við erum að
mínu mati einstaklega heppin
að fá svona flottan þjálfara til
liðs við okkur og hún mun
klárlega leggja sitt af mörkum
til að gera alla í kringum sig
betri,“ er haft efir Donna sem
bætir við: „Ég vona að allir
taki sérstaklega vel á móti
Jojo sem mun vafalaust setja
skemmtilegan svip á starfið
okkar.“ /PF
Johanna Henriksson kampakát eftir
að hafa skrifað undir samning við
Tindastól. MYND AF TINDASTÓLL.IS
1. deild kvenna í körfubolta
Enn einn stórleikurinn hjá Maddie
Tindastóll og Stjarnan mættust í
1. deild kvenna í körfubolta í
Síkinu sl. laugardag og var um
hörkurimmu að ræða. Leikurinn
var allan tímann jafn og
spennandi en lið Tindastóls átti
góðan kafla í upphafi fjórða
leikhluta, náði þá átta stiga
forystu sem lið gestanna náði
aldrei að saxa alla leið niður
þrátt fyrir nokkur áhlaup.
Þær réðu einfaldlega ekki við
Maddie Sutton sem var í
banastuði hjá Stólastúlkum og
endaði leikinn með 62 framlags-
punkta sem er sjaldséð tala.
Lokatölur 84-77 og mikilvægur
sigur í baráttunni um sæti í
úrslitakeppni 1. deildar.
Gestirnir komust í 3-10 eftir
rúmlega tvær mínútur en þá
skelltu Stólastúlkur í lás í
vörninni og fimm mínútur liðu
þangað til Stjarnan bætti við
körfu en þá var staðan orðin 16-
10. Staðan var 22-17 að loknum
fyrsta leikhluta og mestur varð
munurinn átta stig snemma í
öðrum leikhluta eftir sniðskot
frá Evu Rún, 31-23. Þá hófu
Stjörnustúlkur að saxa á
forskotið og þegar tvær og hálf
mínúta voru til leikhlés höfðu
þær minnkað muninn í eitt stig,
35-34, en þristur frá Önnu
Karen jók muninn á ný. Karfa
frá Evu Rún jók muninn í átta
stig en Stjarnan gerði síðustu sex
stig fyrri hálfleiks á síðustu
mínútu annars leikhluta og
minntu rækilega á að hægt er að
snúa við körfuboltaleik á
örskömmum tíma. Staðan 42-40
í hálfleik.
Elva Lára Sverrisdóttir hóf
síðari hálfleik með því að setja
niður þrist og koma gestunum
yfir. Næstu mínútur var allt í
járnum en rétt fyrir miðjan
leikhlutann náði Stjarnan fimm
stiga forskoti. Stólastúlkur voru
snöggar að jafna og tvær
mikilvægar körfur frá Ingibjörgu
Fjólu komu liði Tindastóls yfir
en aðeins munaði einu stigi,
staðan 61-60, þegar fjórði
leikhluti hófst. Þá voru það
heimastúlkur sem mættu
baráttuglaðari til leiks og gerðu
fyrstu sjö stigin; fyrst Eva, þá
setti Ingigerður ísköld niður
þrist áður en Maddie skilaði
íleggju rétta leið. Vörn Tindastóls
var góð en bæði lið gerðu slatta
af mistökum enda spennustigið
hátt. Stólastúlkur héldu sex til
níu stiga forystu þangað til rúm
mínúta var eftir en þá náði Elva
Lára að stela boltanum, fékk víti
og minnkaði muninn í fimm
stig, 78-73. Nú reyndist Maddie
drjúg en gestirnir neyddust til að
brjóta ítrekað á henni og senda á
vítalínuna og þar gerði hún ekki
mörg mistök.
Eftir smá drama á
lokasekúndunum fór vel á því að
Maddie kláraði leikinn fyrir
Stólastúlkur. Hún gerði 43 stig í
leiknum, tók 29 fráköst og þar af
15 í sókn en auk þess átti hún sex
stoðsendingar og fiskaði 15
villur. Kallað er eftir því að hún
verði sameinuð Skagafirði
hvernig svo sem sameiningar-
kosningar Akrahrepps og
Skagafjarðar fara. Eva Rún átti
sömuleiðis fínan leik, gerði 17
stig en hún gerði átta körfur í
ellefu skotum innan teigs. Anna
Karen, Fanney María og
Ingigerður voru allar með sex
stig í leiknum. Í liði Stjörnunnar
var Diljá Ögn stigahæst með 26
stig en Elva Lára skilaði 17
stigum. /ÓAB
Stólastúlkur hæstánægðar að loknum góðum sigri sl. laugardag.
MYND AF FB KKD. TINDASTÓLS
06/2022 5