Feykir


Feykir - 23.03.2022, Blaðsíða 6

Feykir - 23.03.2022, Blaðsíða 6
Ansi mörg ungmenni hafa þann háttinn á að loknu námi í framhaldsskóla að sækja sér tilbreytingu og reyna fyrir sér í lýðháskóla áður en teknar eru stórar ákvarðanir um framhaldsnám, störf og stefnu í lífinu. Sumum finnst upplagt að kynnast nýrri menningu, upplifa smá ævintýri og eignast nýja vini, daðra pínu við sjálfið og finna sér kannski einhverja braut fyrir áhugamálin og sjá hvort það leiðir eitthvert. Blaðamaður Feykis rak augun í það á Facebook að Króksarinn Eyvör Pálsdóttir var stödd í Úganda, í miðri Afríku, nú á dögunum ásamt nemendum og kennurum í ISI íþrótta- lýðháskólanum. Lýðháskólarnir eru margir og ólíkir. Sumir bjóða upp á mikla fjölbreytni og aðrir meiri sérhæfni eins og íþróttir, tónlist, hönnun, fjölmiðlun, netvinnslu, ljósmyndun, kvik- myndagerð – sumir skólarnir bjóða upp á þetta allt og fleira til. ISI íþróttalýðháskólinn er staðsettur í Ikast í Danmörku, eiginlega í miðju Jótlandi, norður af Billund og vestur af Árósum. Margir skólanna bjóða nemendum upp á Eyvör Pálsdóttir heimsótti Úganda með skólanum sínum „Fólk tók rosalega vel á móti okkur“ Eyvör í Úganda. „Allir mjög spenntir að vera með á myndinni.“ MYNDIR AÐSENDAR VIÐTAL Óli Arnar Brynjarsson After-skí þema í einu partyinu í skólanum. spennandi ferðalög en ferð til Úganda er nú sennilega frekar óvanalegt ævintýri fyrir flesta. Feyki lék forvitni á að vita hvernig ferðin gekk fyrir sig og hafði því samband við Eyvöru. Segðu okkur aðeins frá skól- anum sem þú ert í? „Ég er í íþróttalýðháskólanum ISI í Danmörku. Ég er á fótbolta- línunni og er því á fót- boltaæfingum fjóra daga í viku, svo erum við með tvö íþróttafög og tvö inspiration fög á stunda- töflunni auk þess að hafa söngstund og svo tíma þar sem við erum öll saman og tölum um eða gerum mismunandi hluti. Ég er ekki alveg viss hvað við erum mörg í skólanum en ég held að við séum í kringum 70-80 manns. Það er mjög gaman, allir mjög hressir og mjög mikið félagslíf. Á kvöldin hittast yfirleitt allir niðri í litlum sal og horfa á fótboltaleiki eða myndir eða spila spil og bara höfum gaman saman. Mætti alveg skilja meira í dönskunni, ég tala alls enga dönsku.“ Er eitthvað sem hefur komið þér á óvart í Danaveldi eða í skólanum? „Já, þau syngja rosalega mikið, við erum með tíma tvo eða þrjá daga í viku sem heita bara samvera og söngur þar sem við stöndum í kringum píanó og syngjum lög úr danskri lýðháskóla söngbók.“ Nú fór hluti nemenda skólans til Úganda á dögunum, hver er hugmyndin með ferðinni? „Já, við fórum um það bil 62 nemendur ásamt fjórum kennurum og fjölskyldum tveggja kennara. Hugmyndin með ferðinni var aðallega að upplifa Afríku, sjá hvernig lífið í Úganda er, hvernig fólkið er og þess háttar. Svo vorum við einnig að heimsækja fótbolta- akademíuna El Cambio Aca- demy en sá sem stofnaði hana er danskur og svo er skólinn minn að styrkja akademíuna þannig að það eru mikil tengsl þar á milli og hefur skólinn minn farið núna þrisvar sinnum út til Úganda.“ Það var alveg rosalega heitt Geturðu sagt lesendum Feykis aðeins frá ferðalaginu og hvað var gert? „Ferðalagið hófst aðfararnótt 5. mars, þá keyrð- um við til Billund, flugum til Amsterdam og þaðan til Entebbe þar sem við gistum eina nótt.“ Entebbe er 90 þús- und manna borg á norður- strönd Viktoríuvatns og má segja að miðbaugurinn liggi nánast í gegnum borgina. Entebbe er u.þ.b. 40 km suður af höfuðborg Úganda, Kam- pala. „Um morguninn keyrð- um við svo til Masaka þar sem við heimsóttum mismunandi skóla þar sem við vorum með planaða leiki fyrir þau og þau með eitthvað planað fyrir okkur sem var oftast þjóðardans Afríku. Krakkarnir voru allir svo spenntir að fá okkur og allir að berjast við það að fá að leiða mann. Svo heimsóttum við El Cambio Academy og fengum að kynnast krökkunum og starfsfólkinu þar. Við heim- sóttum einnig bóndabæ sem ræktaði kaffibaunir og þar í kring bjuggu fjölskyldur sem Eyvör eftir leik við lýðháskólann í Århus. Eyvör og Joel sem er einn af krökkunum í El Cambio Academy. Íslendingarnir að dansa þjóðardans Úganda með krökkunum. 6 12/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.