Feykir


Feykir - 23.03.2022, Blaðsíða 4

Feykir - 23.03.2022, Blaðsíða 4
AÐSENT | Frá Skipulags- og byggingarnefnd aðalskipulagi er áætlað að íbúum Skagafjarðar fjölgi um 0,5% að meðaltali á ári út skipulagstímabilið, sem jafn- gildir um 370 manns á 15 árum. Mikilvægt er að þessari fjölgun verði fylgt vel eftir með öflugri uppbyggingu á allri þjónustu fyrir íbúa ásamt fjölbreyttu og öflugu atvinnu- lífi. Það er megininntak nýs aðalskipulags að móta um- gjörð til að sett markmið náist. Þéttbýlisuppdrættirnir af Sauðárkróki, Varmahlíð, Steinsstöðum, Hólum og Hofsósi voru endurskoðaðir og uppfærðir. Á öllum stöð- unum er nú tryggt að nægjanlegt landrými er fyrir íbúabyggingar til næstu ára- tuga og einnig að svæði fyrir atvinnuuppbygginu eru til staðar. Á bæði Sauðárkróki og í Varmahlíð koma inn ný íbúa- og athafnasvæði ásamt því að breytingar verða gerðar á öllum stöðunum um gerð og nýtingu svæða. Mikil vinna var lögð í upp- færslu á tillögum að reiðleiðum um sveitarfélagið og var sú vinna unnin meðal annars í samráði við hestamannafélög og ferðaþjónustuaðila. Jafn- framt er lögð áhersla á að göngu- og hjólastígum fjölgi bæði innan þéttbýlis og milli þeirra. Af öðrum stórum sam- gönguþáttum má nefna beina tillögu um vegtengingu yfir á Kjálka með nýrri brú yfir Héraðsvötnin. Sú vegtenging eykur lífsgæði þeirra sem búa í framhluta héraðsins ásamt því að opna nýjar leiðir fyrir ferðamenn með hringakstri um héraðið. Einnig er lagt til að veggöng verði milli Siglu- fjarðar og Fljóta og veggöng undir Hjaltadalsheiði, en með þeim munu byggðir vestan Tröllaskaga tengast betur við Eyjafjörðinn. Í skipulaginu er lögð áhersla á skynsamlega nýtingu Aðalskipulag fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð 2020-2035 Horfum til framtíðar Frá fundi vegna skipulagsmála í Húsi frítímans á Sauðárkrókii. MYNDIR AÐSENDAR Á vordögum 2019 samþykkti sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar að hefja vinnu við endurskoðun á gildandi aðalskipulagi sveitarfélagsins, en aðalskipulag er skipulags- áætlun sem nær til alls lands sveitarfélagsins. Í aðalskipu- laginu er mótuð stefna um framtíðarnotkun lands og fyrirkomulag byggðar ásamt því að sett er fram stefna sveitarstjórnar um byggða- þróun, samgöngur, reiðleiðir, gönguleiðir og margt annað sem snýr að gerð og þjónustu sveitarfélagsins. Í vinnuferlinu var frá upphafi mikið lagt upp úr því að eiga gott samráð og samtal við íbúa og hagsmunaðila við gerð aðalskipulagsins. Leitað var til íbúa Skagafjarðar þar sem þeim var gefinn kostur á að koma á framfæri sínum skoð- unum og sjónarmiðum um framtíðarsýn á fyrirkomulag byggðar og þjónustu í sveitar- félaginu. Fyrst var leitað til nemenda í 7. og 9. bekk grunn- skólanna þriggja í Skagafirði þar sem þeir svöruðu spurn- ingum og settu fram hug- myndir um hver væri þeirra framtíðarsýn fyrir Sveitarfél- agið Skagafjörð. Haldnir voru fjórir íbúafundir auk þess sem fólki var gefinn kostur á að koma hugmyndum sínum á framfæri í gegnum samráðs- vefinn Betra Ísland. Við gerð skipulagsins og mótun tillagna var tekið mið af þeim sjónar- miðum sem komu fram á þessum fundum. Einnig var skipulagstillagan kynnt íbúum og hagsmunaaðilum á vinnslu- stigi og höfðu íbúar þá tækifæri til að gera formlegar athuga- semdir við efni hennar. Í kjölfarið var svo fundað með fjölmörgum einstaklingum og hagsmunahópum um mis- munandi útfærslur á einstaka þáttum skipulagsins og komist að sameiginlegri niðurstöðu sem þjónar sem flestum, en eitt af hlutverkum skipulags- og byggingarnefndar er að leiða til lykta ólík sjónarmið um gerð samfélagsins og þarfir þess. Á íbúafundunum kom fram skýr vilji um íbúafjölgun í Skagafirði og að sveitarfélagið hefði sterka innviði til að taka á móti þeirri fjölgun. Í nýju opinna svæða með það að markmiði að svæðin henti til leikjaiðkunar og útivistar. Einnig er gert ráð fyrir stækkun golfvallarins á Sauð- árkróki bæði til vesturs og síðan til suðurs í átt að Sauðá frá núverandi svæði. Á Sauð- árkróki er áfram stefnt að því að ný íbúabyggð sé staðsett á Nöfunum. Áður fyrirhuguð vegtenging yfir Sauðá var felld brott en í staðinn er gert ráð fyrir að framtíðar vegtenging upp á Nafirnar verði norðar- lega í bænum. Vinna við nánari útfærslu á þeirri leið þarf síðan að fara í vinnsluferil í framhaldi af samþykkt þessa skipulags. Í þessu nýja aðalskipulagi er lögð áhersla á að vernda gott landbúnaðarland en á íbúa- fundum kom fram krafa um mikilvægi þess að sveitar- félagið stæði vörð um slík svæði. Búið er að grófflokka land í Skagafirði og skilgreina hvaða gerðir lands tilheyra hverjum flokki en markmið sveitarfélagsins er að reyna eftir fremsta megni að tryggja að gott ræktanlegt land verði notað undir ræktun á grasi eða aðra fóðuröflun fyrir menn eða dýr. Í aðalskipulaginu er gerð tillaga að hugsanlegri stað- setningu vindmyllugarða til rafmagnsframleiðslu en til- lagan byggir á athugun á vindafari og mögulegum teng- ingum við núverandi flutn- ingskerfi. Áherslur sem sveitarfélagið leggur við frekari skoðun á möguleikum til að nýta vindorku eru að svæðin séu ekki nálægt líklegum farleiðum fugla og að þau þurfi að vera í ásættanlegri fjarlægð frá þéttbýli og vinsælum úti- vistar- eða ferðamannastöðum. Jafnframt að tengingar frá þeim verði jarðstrengir. Endurskoðunin á aðal- skipulagi Sveitarfélagsins Skagafjarðar var viðamikið verkefni, en í stuttri samantekt sem þessari er einungis hægt að gera grein fyrir hluta þeirra mála sem tekið var á í því ferli. Aðalskipulagið er hins vegar og verður áfram lifandi plagg sem þarf að endurskoða eftir þörfum en ein af þeim breyt- ingum sem nú hafa verið gerð- ar er að öll kort og uppdrættir eru framvegis á stafrænu formi sem á að auðvelda og einfalda alla vinnu við breytingar í framtíðinni. Skipulags- og byggingar- nefnd vill þakka öllum íbúum Skagafjarðar sem þátt tóku í vinnu við endurskoðun á aðal- skipulaginu ásamt starfsfólki Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Verkfræðistofunni VSÓ sem leiddi verkefnið. Jafnframt vonum við að íbúar muni áfram taka þátt í þeim breyt- ingum sem gerðar verða á komandi árum en öllum samfélögum er nauðsynlegt að hafa góða sýn á framtíðar- möguleika og þarfir síns sam- félags. Aðalskipulag fyrir Sveitar- félagið Skagafjörð 2020-2035 er nú aðgengilegt á heimasíðu sveitarfélagsins. Einar E. Einarsson, formaður Regína Valdimarsdóttir, varaformaður Álfhildur Leifsdóttir, ritari Sveinn F. Úlfarsson, áheyrnarfulltrúi. Grænir Frumkvöðlar Framtíðar Fyrsta MAKEathonið af stað í Árskóla Í gær hófst í Árskóla á Sauðárkróki fyrsta MAKEathon af þremur í verkefninu Grænir Frumkvöðlar Framtíðar (GFF). Hin tvö fara fram fyrir páska í Grunnskóla Bolungarvíkur og Nesskóla í Neskaupstað en MAKEathon verkefnið er nýsköpunar- keppni sem stendur yfir tvo daga. Í þessu fyrsta MAKEathoni tekur 31 nemandi í níunda bekk þátt sem vinna saman í teymum og keppast við að kynna lausn á áskoruninni: Hvernig getum við dregið úr notkun plasts við pökkun fisks og rækju? „Þeir reyna að búa til einhvers konar frumgerð (e. prototype), m.a. í samstarfi við FabLab Íslands smiðjur á hverjum stað auk þess sem starfsfólk Matís verður á staðnum til aðstoðar, segir í frétta- tilkynningu frá MATÍS. Þar segir að nemendur hafi komið auga á áskorunina þegar þeir fengu heimsóknir sjávarútvegsfyrirtækjunum Dögun og FISK Seafood og fengu fræðslu um starfsemi þeirra, sem var einn þáttur GFF verkefnisins. „Þar að auki fengu þeir innsýn í mögulegar áskoranir hvað varðar áhrif loftslagsbreytinga á hafið og þeirra nærumhverfi en það var hluti af einni vinnustofu verkefnisins, vinnustofu 4. Allt efni GFF verður gert aðgengilegt eftir að verkefninu lýkur.“ Verkefnið Grænir Frumkvöðlar Fram- tíðar hófst í skólunum í september 2021 og MAKEathonin eru síðasti hluti verk- efnisins. Landskeppni á milli skólanna þriggja fer fram í maí og verða úrslit hennar kynnt í Nýsköpunarvikunni, þann 20. maí. Verkefnið er styrkt af Lofts- lagssjóði og hægt að fylgjast með gangi þess á heimasíða verkefnisins: graenirfrumkvodlar.com. /PF Verkefnið Grænir Frumkvöðlar Framtíðar er farið á fullt í Árskóla, Sauðárkróki. MYND AÐSEND 4 12/2022

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.