Feykir - 23.03.2022, Blaðsíða 10
Sameyki – stéttarfélag í
almannaþjónustu – hefur
kynnt úrslit í vali á fyrir-
myndarstofnun ársins 2021.
Ein stofnun á Norðurlandi
vestra komst á lista yfir slíkar
stofnanir í flokki ríkis- og
sjálfseignarstofnana en það
var Fjölbrautaskóli Norður-
lands vestra sem hafnaði í
fjórða sæti yfir fyrirmyndar-
stofnanir með 40-89
starfsmenn.
Í frétt á vef Sameykis segir: „Í
flokki meðalstórra stofnana eru
fyrirmyndarstofnanirnar einnig
fimm, auk Menntaskólans á
Egilsstöðum eru það Ríkis-
endurskoðun, Fjölbrautaskólinn
í Garðabæ, Fjölbrautaskóli
Norðurlands vestra og Skóg-
ræktin sem fá sæmdarheitið
„fyrirmyndarstofnun“. Allar
þessar stofnanir voru í flokki
stórra stofnana í síðustu mæl-
ingu, nema Menntaskólinn á
Egilsstöðum. Ríkisendurskoðun
var þá í fjórða sæti, Fjöl-
brautaskólinn í Garðabæ í öðru
sæti, Fjölbrautaskóli Norður-
lands vestra var í þriðja sæti og
Skógræktin í því níunda.“
Stofnanirnar þrjár sem
reyndust sigurvegarar í sínum
flokkum voru; Heilsustofnun
NLFÍ sem sigraði í flokki stórra
stofnana, Menntaskólinn á
Egilsstöðum í flokki meðal-
stórra stofnana og Jafnréttisstofa
reyndist hlutskörpust í flokki
minnstu stofnananna. /ÓAB
Fjölbrautaskóli
Norðurlands vestra
Áfram á
lista yfir
fyrirmyndar-
stofnanir
Söngvarakeppni Grunnskóla
Húnaþings vestra fór fram fyrir
nokkru og stigu margir nem-
endur þar á stokk og fluttu
fallega tóna.
Á heimasíðu skólans segir að
Ísey Lilja Waage hafi sigrað á
yngra stigi og Arna Ísabella
Jóhannesdóttir og Steinunn
Daníela Jóhannesdóttir á því
eldra. „Við óskum öllum kepp-
endum til hamingju með
frammistöðuna og sigurveg-
urum til hamingju með sigur-
inn,“ segir í færslu skólans og
Feykir tekur heilshugar undir./PF
Söngvarakeppni 2022
Ísey, Arna
og Steinunn
sigruðu
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Halla Mjöll Stefánsdóttir
ÁRGANGUR: 1991
FJÖLSKYLDUHAGIR: Alsæl í sambúð með Sigurjóni mínum Hilmari.
BÚSETA: Reykjavík.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALIN: Ég er dóttir Stefáns frá
Gauksstöðum og Ólafar frá Sauðárkróki og Hofsósi. Ég er uppalin á
Sauðárkróki.
STARF / NÁM: Ég er menntaður fjölmiðlafræðingur og starfa sem
sérfræðingur á ráðgjafasviði hjá Eignaumsjón hf, fyrirtæki sem
sérhæfir sig í rekstri húsfélaga.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Fram undan eru nokkrar strembnar vikur í
vinnunni auk þess að skipuleggja sumarið sem lítur út fyrir að vera
stútfullt af ferðalögum bæði innanlands og (loksins) utanlands.
Halla Mjöll
Hvað gerir þú betur en allir aðrir
á þínu heimili? Að brjóta saman
þvott. Minn kæri sambýlismaður
er alveg vonlaus þegar kemur
að því að ganga frá þvotti og
enda ég gjarnan á að brjóta allt
saman upp á nýtt þegar hann
kemst í þvottinn. Þetta snýst
allt um að fötin passi í skápinn,
sjáðu til! En hann fær samt 10
stig fyrir viðleitni blessaður.
Hvert er snilldarverkið þitt í
eldhúsinu? Ég vil meina að ég
geri ómótstæðilegt rjómapasta.
Hættulegasta helgarnammið?
Hvað er helgarnammi? Í mínu
tilfelli er nammi ekki bundið við
helgar. Ég borða alltof oft nammi
og er nammi-barinn í Hagkaup
langt umfram minn uppáhalds
bar, á virkum dögum sem og um
helgar.
Hvernig er eggið best? Rauðan
sprengd og vel eldað báðum
megin.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Ætli ég verði ekki að
segja tilhneiging mín til að vera
svolítið óþolinmóð og jafnvel
stundum með of stuttan þráð.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari annarra? Mér þykir fátt
jafn óheillandi og hroki í fari
annarra, eða þegar fólk tekur
sig of alvarlega eða hefur ekki
nægan húmor fyrir sjálfu sér.
Hver er elsta minningin sem
þú átt? Sennilega þegar ég
var í frekjukasti í leikskólanum
og eyddi mörgum dögum í að
skipuleggja flótta. Mig vantaði
hins vegar kjarkinn til að reyna
að flýja. Þegar ég komst í
grunnskóla áttaði ég mig á hvað
ég hafði haft það gott á Furukoti.
Þú vaknar einn morgun í líkama
frægrar manneskju og þarft að
dúsa þar einn dag. Hver værirðu
til í að vera og hvað myndirðu
gera? Ég væri alveg til í að vera
Victoria Beckham, en bara til að
geta dáðst að David og horft á
hann allan daginn og dekrað við
kallinn.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur (og af hverju)?
Ég á ekki einn uppáhalds
rithöfund en verð að nýta
tækifærið og mæla með síðustu
bók sem ég las. Hún heitir
Svínshöfuð og er eftir Bergþóru
Snæbjörnsdóttur.
Orð eða frasi sem þú notar
of mikið? „Kíkjum á þetta á
morgun.“
Hvaða þremur persónum
vildirðu bjóða í
draumakvöldverð? Ég myndi
bjóða Jonathan Van Ness,
Tan France, og Bobby Berk
úr Queer Eye þáttunum á
Netflix. Mér finnst þeir svo
dásamlega fullir af lífsgleði og
ánægju og fáránlega fyndnir og
skemmtilegir.
Hver væri titillinn á ævisögu
þinni? Halla – hetja húsfélagsins.
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél
og réðir hvert hún færi, þá
færirðu... beinustu leið til Hawaii
og myndi nýta nokkrar vikur í
að ferðast á milli eyjanna þar og
drekka kokteil úr kókoshnetu og
synda í hlýjum sjónum.
Bucket list spurningin: Nefndu
eitthvað þrennt sem þér finnst
þú mega til að gera áður en þú
gefur upp öndina:
1) Komast til Hawaii og setja
persónulegt met í kokteildrykkju
þar.
2) Hlaupa maraþon erlendis.
3) Fara í nokkurra vikna
siglingu á skemmtiferðaskipi
á Miðjarðarhafinu þegar ég er
orðin 65 +.
Hvar og hvenær sástu núver-
andi maka þinn fyrst? Leiðir
okkar lágu saman á einstaklega
klístruðu og skítugu gólfinu á
Pósthúsbarnum (sem var og hét)
á Akureyri í lok ársins 2019.
Rómantíkin allsráðandi.
Hvernig slakarðu á? Ég fer
gjarnan í langt og frekar heitt
bað á meðan ég horfi á einn
þátt.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Sá var nú tíminn
þegar ég fór alltaf heim og
horfði á Bold and the Beautiful
eftir vinnu. Ég hef blessunarlega
ekki tíma í dag til að fylgjast
með Bold.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Ég fór á
fyrirlestur um daginn hjá
Vilborgu Örnu, pólfara, sem
skildi helling eftir sig. Mér
finnst hún ótrúlega flott og skýr
stelpa með afskaplega þroskað
og yfirvegað lífsviðhorf. Þá
hefur hún gengið í gegnum
náttúruhamfarir og fleira sem
hefur reynt mikið á feril hennar
sem fjallagarpur.
Hvernig nemandi varstu?
Almennt held ég að ég hafi
verið ágætis nemandi. Eflaust
temmilega óþolandi og spjallin
ef áfanginn var ekkert sérlega
spennandi, en vissulega oftast
samviskusöm og dugleg.
Hvað er eftirminnilegast frá
fermingardeginum? Hvíti
leðurjakkinn sem ég fermdist í
og forljóta pilsið sem Edda systir
var í.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Atvinnumaður
í fótbolta var efst í huganum.
Svo átti ég mér alltaf leynilegan
draum um að verða leikkona
eða söngkona. Edda systir fékk
sennilega alla sönghæfileikana í
vöggugjöf, en hver veit nema að
ég vippi mér upp á leiksvið einn
daginn.
Hvert var uppáhalds leikfangið
þitt þegar þú varst krakki? Allan
daginn fótbolti, sem iðulega var
aldrei langt undan.
Besti ilmurinn? Án efa lyktin
af nýþvegnum þvotti, helst af
snúrunni heima í Lerkihlíð um
mitt sumar.
Systrahópurinn. Frá vinstri: Gígja, Klara, Halla og Edda.
MYND AÐSEND
10 12/2022