Feykir


Feykir - 23.03.2022, Blaðsíða 5

Feykir - 23.03.2022, Blaðsíða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F Fjörugur leikur á Sauðárkróksvelli Sigur gegn Stjörnunni í lokaleik Lengjubikarsins Stólastúlkur léku síðasta leik sinn í Lengjubikarnum sl. laugardag þegar lið Stjörnunnar kom í heimsókn. Gengi liðanna hafði verið misjafnt; lið Tindastóls með eitt stig að loknum fjórum leikjum en Stjarnan með níu stig. Leikurinn varð hinn fjörugasti og loka- kaflinn reyndist liði Tindastóls drjúgur og dugði til 3-2 sigurs sem svo sannarlega var sætur. Snjó kyngdi niður á Krókn- um að morgni leikdags og fram yfir hádegið og karlalið Tinda- stóls mætti með skóflur á gervigrasvöllinn til að gera tilraun til að hreinsa völlinn. Nokkrir grjótharðir stuðnings- menn mættu með tæki og tól sem gerðu gæfumuninn þannig að hægt var að hefja leik eftir smá töf á upphafsflauti. Að- stæður urðu svo enn betri þegar á leið og snjókoman varð blautari. Logn var á Króknum þannig að aðstæður voru ágætar til boltasparks. Stjarnan náði 0-2 forystu um miðjan fyrri hálfleik en þær voru heilt yfir betra liðið í fyrri hálfleik. Fyrst skoraði Jasmín Erla Ingadóttir á 21. mínútu og Alma Mathiesen bætti marki við á 29. mínútu. Á 31. mínútu lagaði Hugrún Palla og Guð- nýjar stöðuna og stóð 1-2 í hálfleik. Tindastólsliðið fékk 2-3 sénsa á upphafsmínútum síðari hálfleiks til að jafna leikinn en síðan voru það gestirnir sem ítrekað reyndu að koma bolt- anum inn fyrir vörn Tindastóls og oft munaði mjóu en Amber var sem fyrr bæði huguð og á tánum og bjargaði nokkrum sinnum meistaralega með mögnuðum úthlaupum. Á 78. mínútu fengu Stólastúlkur síðan hornspyrnu eftir ágæta sókn og eftir smá klafs á markteignum kom Bryndís Rut fyrirliði boltanum í markið og fagnaði innilega. Fimm mínút- um síðar átti Murr góða sendingu á Hugrúnu sem þaut með boltann inn í vítateig Stjörnunnar þar sem hún var sneidd niður. Víti dæmt og á punktinn steig María Dögg Jóa og Helgu og hún lét Sandiford í marki Stjörnunnar verja frá sér en fylgdi á eftir og setti boltann af öryggi í markið. Síðustu mínútur leiksins náðu gestirnir ekki að ógna að ráði, bæði lið fengu þó mögu- leika og Stjarnan m.a. auka- spyrnu fyrir litlar sakir rétt utan teigs en boltinn hafnaði í fanginu á Amber. „Við hefðum klárlega getað gert aðeins betur i mörkunum sem við fengum á okkur og örlítil heppni þeim i hag þar líka. En frábær mörk hjá okkur og [við] fengum góð færi til að skora fleiri. Það sem ég er hvað ánægðastur með er baráttan, vinnusemin og liðsandinn hjá liðinu. Kemur svo sem ekkert á óvart en þessar stelpur okkar sýna ótrúlegan vilja til að vinna og það er eftirsóknarvert,“ sagði Donni þjálfari að leik loknum. /ÓAB Stólastúlkur fagna sigri á laugardaginn. MYND: ÓAB Júdódeild Tindastóls Góður árangur á Vormóti JSÍ 2022 Vormót Júdósambands Íslands 2022 fyrir yngri keppendur fór fram á Akureyri 12. mars sl. Júdódeild Tindastóls mætti til leiks með fjóra keppendur en sumir þurftu að hætta við þátttöku vegna Covid-smita og var mikið um forföll hjá öllum félögum sem þátt tóku í mótinu. Í frétt á heimasíðu Tindastóls segir að greinilegt hafi verið að keppendar frá Tindastóli hafi bætt sig mikið síðan á Afmælismótinu þrátt fyrir að lítið hafi verið hægt að æfa vegna Covid. „Allir stóðu sig vel og var sérstaklega tekið fram þegar þjálfarar töluðu saman að móti loknu að hópur júdókeppenda hjá Tindastóli sé orðinn öflugur en keppendur okkar fóru heim með eitt gull, eitt silfur og tvenn bronsverðlaun. Haldið var upp á árangurinn með ísferð að móti loknu. /ÓAB Keppendur Tindastóls brosmildir að móti loknu. MYND: TINDASTÓLL.IS Feykir sagði frá góðum árangri krakka af Norðurlandi vestra á Meistaramóti Íslands 11-14 ára sem fram fór í Reykjavík um síðustu helgi. Skemmtilegt að geta bætt því við að Björgvin Kári Jónsson, sem ættaður er úr Skagafirði, náði einnig frábærum árangri þar sem hann komst á pall í öllum þeim greinum sem hann tók þátt í og varð Íslandsmeistari í 600m hlaupi 12 ára pilta. Björgvin Kári keppir fyrir ÍR en hann háði harða baráttu við Húnvetningana Valdimar Loga Guðmannsson, sem vann allar sínar greinar, og Aron Örn Ólafsson, sem varð sæti ofar en Björgvin í kúluvarpi . Björgvin Kári náði öðru sæti í hástökki og langstökki 12 ára pilta, en Íslandsmeist-aratitillinn varð hans í 600 metra hlaupi á tímanum 1:58,31. Þar varð Aron Örn í öðru sæti. Þannig fór að Björgvin Kári og félagar hans í ÍR unnu liðakeppnina 12 ára drengja. Tenging Björgvins Kára við Skagafjörðinn er þannig að móðir hans, Harpa Þöll, er dóttir Gísla Halldórssonar dýralæknis, og Jónínu Halls- dóttur hjúkrunarfræðings úr Varmahlíð, sem bjuggu lengi í Skagafirði. /PF Lengjubikarinn í knattspyrnu Lukkan ekki í liði með Húnvetningum Lið Kormáks/Hvatar var hársbreidd frá því að næla í fyrstu stigin í B deild karla, riðli C, í Lengjubikarnum sl. laugardag þegar Húnvetn- ingar mættu liði ÍH í Skessunni í Hafnarfirði. Þeir voru 3-4 yfir þegar venjulegur leiktími var liðinn en fengu á sig tvö mörk í uppbótartíma Það var nú fátt sem benti til markaveislu í byrjun leiks í Skessunni því aðeins var skorað eitt mark í fyrri hálfleik og það gerðu heimamenn í ÍH á 41. mínútu. Þorgrímur Goði jafnaði leikinn á 50. mínútu en á 59. mínútu náði ÍH aftur forystunni. Gestirnir settu Alfreð Má Hjaltalín inn á á 63. mínútu og örfáum mínútum síðar var hann búinn að skora tvö mörk. Hann jafnaði leikinn á 67. mínútu, Akil De Freitas kom gestunum yfir tveimur mínútum síðar og Alfreð bætti við fjórða marki Kormáks/Hvatar á 70. mínútu – semsagt þrjú mörk gestanna á fjórum mínútum og staðan 2-4! Heimamenn í ÍH minnk- uðu muninn á 84. mínútu og sem fyrr segir gerðu þeir tvö mörk í uppbótartíma og unnu því 5-4. Lið Kormáks/Hvatar er því enn án stiga í sínum riðli. Stólarnir mörðu Samherja Það er orðið ansi langt síðan meistaraflokkur karla hjá Tindastóli skeiðaði út á knatt- spyrnuvöllinn en það hafðist loks sl. sunnudag þegar spil- að var við lið Samherja í Boganum á Akureyri. Aðeins eitt mark leit dagsins ljós og það gerði spænski varnar- jaxlinn Domi, fékk boltann inn á vítateig eftir laglegt þríhyrningaspil með Adda og negldi boltanum í markið frá vinstra markteigshorni. Donni þjálfari var ánægður með spilamennsku liðsins. /ÓAB Frjálsar íþróttir Skagfirsk ættaður Íslandsmeistari Björgvin Kári sæll. MYND AÐSEND 12/2022 5

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.