Feykir


Feykir - 06.04.2022, Qupperneq 7

Feykir - 06.04.2022, Qupperneq 7
14/2022 7 Fjölnir sultuslakur með Múmínbolla á lofti og ævisögu fjallamannsins Anatoli Boukreev innan seilingar. MYND AÐSEND Við þjónustum bílinn þinn Tjónaskoðun Cabas Erum með samninga við öll tryggingfélög. Erum með bilanagreinir fyrir flestar tegundir bíla, einnig vörubíla og traktora. Bílaverkstæði Bílaverkstæði KS - Hesteyri 2 - 550 Sauðárkróki - Sími 455 4570 kominn er ég ekki svo lengi að skrifa. Kannski þrjá mánuði. Bannað að eyðileggja sem kom út í fyrra var mjög erfið í fæðingu. Ég var ekki búinn með söguþráðinn þegar ég byrjaði að drita stöfum á diskinn. Ég vonaði bara að þetta myndi þróast og reddast við skrifin. Það gerðist ekki. Þannig að þegar ég var búinn að skrifa í tvo mánuði áttaði ég mig á því að þetta var drasl. Svo ég henti bókinni og byrjaði upp á nýtt. Og ákvað að taka viðtöl við fólk með þekkingu á ADHD. Það tók þrjár vikur. Og þá small þetta. Er bókin Stungusending frá Stólastúlku ekki í smíðum? Merkilegt að þú skulir spyrja. En ... nei! Hvað er skemmtilegast við að skrifa fyrir börn og unglinga? Að vera Guð. Rithöf- undurinn ræður öllu í sínum bókum og er guðinn í skrifunum. Og svo er mjög gaman að nota klisjur og stíla sem aðeins hafa verið notaðir fyrir fullorðna. Ég get þá kynnt það fyrir ungum lesendum. Hefur þú heimsótt staði sérstaklega vegna þess að þeir tengjast bókum sem þú ert að skrifa? Já, ég fer á alla staði sem ég skrifa um. Þegar ég skrifaði Barist í Barcelona sem dæmi fór ég í heimsókn til Barcelona FC og fékk leiðsögn um allt æfingasvæðið þeirra og húsið sem er kallað La Masia. Maður verður að þekkja það sem maður skrifar um. Hver er eftirminnilegasta bókin sem þú hefur fengið að gjöf? 60 kíló af kjafst- höggum fékk ég senda með tölvupósti síðasta sumar frá Hallgrími bróður. Hann hefur ekki lagt það í vana sinn að leyfa mér að lesa bækurnar hans fyrir útgáfu. En þarna var ég veikur og fékk bókina senda. Ég prentaði hana út og las á tveimur dögum. Og henti mér svo í að lesa Sólskinið aftur. Ógleymanlegir dagar. Hvað er best með bóklestri? Ró og friður. Ef þú ættir að gefa einhverjum sem þér þykir vænt um bók, hvaða bók yrði þá fyrir valinu? Það fer alveg eftir því hver manneskjan er. En ég gef nú fullt af fólki mínar bækur á hverju ári. En sumir vilja reyfara á meðan aðrir vilja eitthvað þyngra. Manstu hvaða bækur þú fékkst helstar í fermingargjöf, fékkstu of mikið af einhverri bók? Ég fékk eintómar ljóðabækur. Man eftir bókunum með ljóðum eftir Þorstein Eggertsson og Grím Thomsen. Get nú varla sagt að þetta hafi slegið í gegn hjá mér 13 ára. Hvers konar bækur varstu helst að lesa í kringum fermingaraldurinn? Myndasögu- bækur, Ævintýrabækurnar, Fimm bæk- urnar og bara allt sem ég kom höndum yfir. Ég var fastagestur á Sólheimabóka- safninu og man þegar ég kláraði það einn daginn. Var búinn að lesa allt sem var í boði. Þá fór ég bara út í fótbolta. Manstu hvaða hug þú hafðir til ferm- ingarinnar þegar þú fermdist? Já, ég taldi mér trú um að ég væri trúaður. En það var geggjað að fá gjafirnar og veisluna. Gunni og Felix í hörkustuði. MYND: MUMMI LÚ Á efri myndinni eru þeir félagar staddir fyrir utan ráðhúsið á Króknum. MYND AF FACEBOOK

x

Feykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.