Feykir - 26.10.2022, Page 4
FYRIRTÆKI Á
NORÐURLANDI VESTRA
Í FREMSTU RÖÐ!
Við erum stolt af því að vera í hópi
framúrskarandi fyrirtækja á Norðurlandi vestra
samkvæmt útnefningu Creditinfo.
2022
Ámundakinn ehf.
Sigurður Albertsson, alm. skurðlæknir 18. og 19. maí
Orri Ingþórsson, kvensjúkdómalæknir 29. maí
Haraldur Hauksson, alm./æðaskurðlæknir 25. maí (nokkrir tímar lausir) SÉRFRÆÐIKOMUR Í NÓVEMBER
Sigurður Albertsson, alm. skurðlæknir 14. og 15. nóvember
Haraldur Hauksson, alm./æðaskurðlæknir 21. nóvember
Orri Ingþórsson, kvensjúkdómalæknir 24. og 25. nóvember
Tímapantanir í síma 432 4236
Alls eru 92 fyrirtæki, eða 10,5% af heildarfjöld-
anum, á lista Creditinfo yfir framúrskarandi
fyrirtæki í ár staðsett á Norðurlandi og fimm þau
efstu öll í flokki stórra fyrirtækja. Þau skipa
FISK-Seafood á Sauðárkróki, Rammi á Siglufirði
og Búfesti, KEA og SS Byggir sem öll eru á
Akureyri en 48% fyrirtækjanna á listanum á
Norðurlandi eru staðsett á Akureyri.
Níu fyrirtæki í lands-
hlutanum hafa verið á list-
anum á hverju ári síðan hann
kom fyrst út árið 2010 en
það eru Trétak, Kælismiðjan,
Sætak, Dekkjahöllin, Rafeyri,
Fóðurverksmiðjan Laxá, Tré-
smiðjan Rein, Garðræktar-
félag Reykhverfinga og Stein-
ull á Sauðárkróki.
Þrettán fyrirtæki á Norður-
landi koma ný inn á listann í
ár; Finnur, BB Byggingar,
Vökvaþjónusta Kópaskers,
Klemenz Jónsson, HeiðGuð-
Byggir, Ekill, Alkemia, Marúlfur, Vinnuvélar
Reynis B. Ingólfssonar, Ekja, Stóru-Tjarnir og
skagfirsku fyrirtækin K-Tak og Þ-Hansen.
Í tilkynningu frá Creditinfo er vakin athygli á
óvenju háu hlutfalli framúrskarandi fyrirtækja
á Drangsnesi, sem fellur innan landshlutans í
samantektinni, en þar eiga 17% fyrirtækja árs-
reikning fyrir 2021 sem uppfylla kröfur Credit-
info, eða tvö af tólf fyrirtækjum. Það er hækkun
frá því í fyrra en þá var hlutfallið 11%.
Þetta er í þrettánda sinn sem Creditinfo veitir
framúrskarandi fyrirtækjum í íslensku atvinnu-
lífi vottun fyrir góðan og traustan rekstur en
listinn í ár var gerður opinber á viðburði í Hörpu
á miðvikudag í síðustu viku. Alls hafa 1.881
fyrirtæki einhvern tímann komist á listann en
aðeins 54 þeirra hafa hlotið nafnbótina öll árin.
Þegar Creditinfo metur hvort fyrirtæki teljist
framúrskarandi er m.a. horft til þess hvort
ársreikningi hafi verið skilað á réttum tíma, og
þegar litið sé til síðustu þriggja ára sé rekstrar-
hagnaður, ársniðurstaðan jákvæð, rekstrartekj-
ur að lágmarki 50 millj. kr. og eiginfjárhlutfall
a.m.k. 20%.
Um 39 þúsund fyrirtæki skila ársreikningi en
þegar litið er til allra annarra skilyrða sem
fyrirtæki þurfa að uppfylla, þá teljast aðeins um
2% fyrirtækja framúrskarandi. /PF
Creditinfo veitir framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningar
K-Tak og Þ-Hansen ný inn á lista
Fjöldi gesta var á viðburði Creditinfo í Hörpu í síðustu viku. AÐSENDAR MYNDIR
Á undanförnum árum hefur verið unnið að því í
gegnum verkefnið Ísland ljóstengt að koma á
ljósleiðaratengingu í dreifbýli utan markaðssvæða
í Skagafirði en því verkefni er nú lokið. Gsm og
tetra-samband í Skagafirði er hins vegar víða
stopult eða ekki til staðar, segir í fundargerð
byggðarráðs Skagafjarðar. .
Jafnframt kemur fram að þetta eigi við nokkuð
víða, t.a.m. í inndölum þar sem m.a. er stundaður
landbúnaður og ferðaþjónusta, auk þess sem þau
svæði laði að sér marga gesti til útivistar. Því sé
enn óleyst það mikilvæga verkefni að tryggja
fjarskiptasamband fyrir almenning til neyðar- og
viðbragðsaðila gegnum 112.
Á fundi byggðarráðs fyrir helgi lýsti það yfir
áhyggjum af lélegu fjarskiptasambandi víða um
Skagafjörð sem dregur úr öryggi þeirra sem búa á
svæðinu eða eiga leið um það.
„Í óveðri sem gekk yfir landið fyrir skemmstu
kom sú staða upp að rafmagn fór af hluta Skaga-
fjarðar og í kjölfarið datt farsímasamband einnig
út þannig að íbúar á svæðinu voru með öllu
sambandslausir við umheiminn. Áður höfðu
íbúar símasamband í sambærilegum aðstæðum í
gegnum gamla koparvírinn sem ekki þurfti
sértengingu við rafmagn til að virka,“ segir í
fundagerðinni og hvetur byggðarráð Neyðarlín-
una og ríkisvaldið til að tryggja fullnægjandi
fjarskiptasamband með uppsetningu fleiri senda
og tryggara varaafls, auk þess sem Tetra-
sambandið verði stórlega bætt til að auka öryggi
íbúa og ferðamanna í landshlutanum.. /PF
Byggðarráð Skagafjarðar
Áhyggjur af lélegu fjarskiptasambandi
4 40/2022