Feykir - 26.10.2022, Blaðsíða 12
Kaffi Krókur á Sauðárkróki
opnaði á ný um helgina eftir að
honum var lokað um
mánaðamótin ágúst septem-
ber. Auglýstur var langur
laugardagur og létu Skag-
firðingar ekki bíða eftir sér og
fögnuðu gestir staðarins
fram á myrka nótt.
„Viðtökurnar voru ótrúlegar.
Það var allan daginn stanslaus
straumur af fólki og frá níu var
stappað í húsinu, bæði uppi og
niðri, alveg til þrjú,“ segir Ingólfur
Örn Friðriksson, rekstrarstjóri
staðarins. „Maður fór alveg tuttugu
ár aftur í tímann,“ segir hann enda
skemmdi ekki fyrir að einn
vinsælasti trúbador landsins þess
tíma, Einar Ágúst, var að spila.
Á nýrri Facebook-síðu staðarins
má finna girnilegan matseðil þar
sem alls kyns borgarar verða í boði,
samlokur, pítsur og sérréttir svo
eitthvað sé nefnt og segir Ingólfur
að einnig verði boðið upp á kokteila
eins og þeir gerast bestir. Til þess að
standa undir sportbarnum verður
boðið upp á alls kyns íþróttir á
skjánum og poolborð og pílubrautir
fyrir áhugasama.
Að sögn Ingólfs heldur fjörið
áfram næstu helgar þar sem búið er
að bóka trúbadora næstu fjórar
helgar. / PF
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
40
TBL
26. október 2022 42. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Huldumenn á grasafjalli
Svo bar einu sinni til að fólk
sem var á grasafjalli sá í
glaðasta sólskini tvo menn
nokkuð einkennilega vera
allskammt frá sér að tína
grös og fylgdi þeim svart-
ur hundur. Fólkið horfði
stundarkorn á þessa menn
og bar enginn kennsl á þá. Loksins fóru tveir úr
hópnum á leið til þeirra, en þegar þeir vóru á
leiðinni gengu hinir ókunnu menn fyrir lítið holt
og sáust ekki framar, og engin merki sáust á
jörðunni þar sem þeir sýndust vera, þess að grös
hefði þar tínd verið. Og aldrei varð komizt fyrir þó
reynt væri hvernig á þessari sýn stóð, og var því
gjörð úr henni álfasaga. /PF
Þjóðsögur Jóns Árnasonar
Álfar
Kaffi Krókur opnar á ný
Fullt út úr dyrum
á opnunarkvöldinu
Nú á haustdögum fékk unglingastig Grunnskólans
austan Vatna úthlutað 120 plöntum úr Yrkju – sjóði
æskunnar til ræktunar landsins. Búið var að finna
plöntunum stað og hlutverk á Neistasvæðinu, við
Hlíðarhús í Óslandshlíðinni, sem skjól fyrir
norðvestanáttinni.
Í frétt á vef skólans segir að þann 13. október fóru
stelpurnar í 8. bekk í blíðskaparveðri og gróðursettu af
mikilli natni. Framtakið vakti mikla lukku nærstaddra
en Sigurmon Þórðarson, umsjónarmaður svæðisins,
tók út verkið og gaf bæði vinnubrögðum og starfsanda
sín bestu meðmæli.
Yrkja – sjóður æskunnar til ræktunar landsins er
sjóður sem úthlutar trjáplöntum til grunnskólabarna.
Sjóðurinn hefur eigin stjórn, en Skógræktarfélag Íslands
hefur umsjón með honum. / ÓAB
Grunnskólinn austan Vatna
Unglingsstúlkur gróður-
settu 120 plöntur
Mikill gestagangur var á löngum laugardegi Kaffi Króks og fögnuðu gestir langt fram á nótt.
MYNDIR AÐSENDAR
Frá gróðursetningu á svæði Neista MYND AF VEF GAV
Sálarrannsóknarfélag Skagafjarðar
kennir að spá í bolla laugardaginn 5. nóvember nk. Einnig bíður hún upp á
einkatíma þann sama dag. Enn eru lausir tímar bæði á námskeiðið og í einkatíma.
Skráning í síma 868 5670 á fimmtudögum, frá kl. 17 til 19 eða á facebooksíðu félagsins.
Sunna Árnadóttir er fædd í Vestmannaeyjum 1955. Hún spáir í bolla og notar
þrennskonar spil: Rúnarspil, víkingaspil og tarotspil. Sunna hefur verið sjáandi
frá barnæsku og lærði af móður sinni að spá í bolla. Þegar hún spáir fyrir
fólki fer hún inn á hvað hefur verið að gerast í þeirra lífi og hvað er
framundan hjá þeim. Hún getur leiðbeint hvert það á
að leita eða hvert skal stefnt í lífinu.
Kærleiks kveðja, StjórninSkagfirðingabraut 9a - Allir velkomnir
Sunna Árnadóttir miðill