Harmonikublaðið - 15.05.2019, Side 2

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Side 2
Ávarp formanns Kæru félagar og lesendur Gleðilegt sumar með þökk fyrir veturinn! Með hækkandi sól á formaður sambandsins ekki að vera með daprar hugrenningar en þessa dagana eru þær nú frekar daprar í sambandi við félögin í landinu. Sambandið hefur misst eitt félag úr sínum hóp síðan síðasta blað kom út, en Harmonikuunnendur á Vesturlandi hafa ákveðið að draga sig út úr starfi SIHU amk. tímabundið. Einnig heyri ég að mörg félög út um land hafi verið með frekar litla starfsemi og þykir mér það miður. En nú hækkar sól og vor er í lofti og þá lifnar vonin líka um að félagsstarfið vakni af vetrardvala og eflist um allan helming. Sumarhátíðirnar eru á næsta leiti með sinni frábæru skemmtan og vonandi kemst ég á þær flestar. Hvetjið sem flesta til að mæta og njóta þess að skemmta sér í góðra vina hópi, allir eru velkomnir. FHUR hefur boðist til að halda næsta landsmót og verður það í Stykkishólmi árið 2020. Þar verður áreiðanlega frábær skemmtun að vanda, síðasta landsmót voru dýrðardagar á Isafirði og ekki verður það síðra í Stykkishólmi. Þegar þetta er skrifað er Harmonikudagurinn framundan og þá skal harmonikan þanin á öllum landshornum. Oska ég þess að sem flest félög spili og skemmti sér og sínum, þannig að tónar harmonikunnar heyrist sem víðast og færi landsmönnum öllum boð um batnandi tíð með blóm í haga, sæta langa sumardaga. Hittumst hress og kát á komandi sumri Filippía Sigurjónsdóttir, formaður SIHU Frá Harmonikufélagi Héraðsbúa Héraðsbúar d sviðinu í ídölum, Jón, Gylfi, Jónas Þór og Pálmi Starfsemi félagsins á liðnu ári var á þessa leið. Nokkrir félagar í Harmonikufélagi Héraðsbúa sóttu sumarhátíðina að Idölum 27. til 28. júli. Þar tóku lagið á föstudagskvöld Gylfi Björnsson, Jón Sigfússon, Jónas Þór Jóhannsson og Pálmi Stefánsson í klukkutíma og á laugardagskvöld léku Gylfi og Jón í klukkustund. Haustball H.F.H.var haldið í Valaskjálf síðasta laugardaginn í ágúst að venju. Þar léku á harmonikur Hreinn Halldórsson, Jónas Þór og Aðalsteinn Isfjörð auk þess sem hljómsveit Harmonikuunnenda á Norðfirði lék fyrir dansi. Ragnar Eymundsson sá um trommuleikinn og Andrés Einarsson á var á gítar, Elvar Sigurðsson söng. Formaður félagsins sótti aðalfund S.I.H.U. í Kjarnaskógi síðasta haust ásamt fulltrúa. H.F.H.tók að sér að halda harmonikuböll í Hlymsdölum, húsnæði Félags eldri borgara á Fljótsdalshéraði í hverjum mánuði. Fyrsta ballið var 20. október og það síðasta 13. apríl. Dansað var frá kl. 20:00 til ld. 23:00. Alls voru haldin sex böll í vetur og voru þau vel sótt og mikið dansað. H.F.H. spilaði á Harmonikudaginn í verslunum á Egilsstöðum, Nettó, Húsa- smiðjunni og Dyngju hjúkrunarheimili aldraðra á Egilsstöðum. Næstu verkefni eru ágústballið í Valaskjálf og aðalfundur S.Í.H.U. sem verður haldinn á Egilsstöðum 27. til 29. september í Hótel Valaskjálf. Fleira ekki frá H.F.H. Jón Sigfusson Mynd: Siggi Harðar Harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar býður öldruðum harmonikum farsælt ævikvöld á Byggðasafni Vestfjarða. Sími: 456 3485 og 844 0172. Byggðas&íu Nctfang: assigu@intcrnct.is Vcffang: www.ncdsti.is 2

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.