Harmonikublaðið - 15.05.2019, Page 4
Vorferð Harmonikufélags Þingeyinga
Dagana 12.-14. apríl efndi Harmonikufélag
Þingeyinga til ferðar að Hótel Smyrlabjörgum
í Suðursveit í Hornafirði á hagyrðingamót og
dansleik, sem Félag Harmonikuunnenda
Hornafirði stóð fyrir. I ferðina fóru 37 manns.
Tekin var á leigu rúta frá S.B.A. Okumaður
var Pálmi H Björnsson félagi okkar. Lagt var
af stað föstudagsmorgunn kl.7:30 frá Akureyri,
félagar tíndir upp á leiðinni í Breiðumýri, en
þar beið hópur eftir rútunni. Teknir farþegar
við Reykjahlíð og var þá fullskipað og haldið
austur á fjöllin. Gerðist fljótt fjörugt í rútunni
var mikið hlegið, enda voru með í för
hagyrðingarnir Þorgrímur Björnsson, Davíð
Herbertsson og Sigríður Ivarsdóttir og fóru
þau á kostum sem þeirra var von og vísa.
Stansað var á Egilsstöðum drjúga stund, en
svo áfram haldið á Djúpavog. Þar var farið á
veitingastaðinn, „Við Voginn“ og var þar
stansað í fast að klukkustund og þar fengu
menn sér að borða. Haldið áfram og tekinn
krókur niður á Höfn Hornafirði að skoða sig
þar um, síðan ekið beinustu leið í Hótel
Smyrlabjörg og þar renndum við í hlað um
kl. 17:30. Er hópurinn hafði komið sér fyrir
á herbergjunum var farið í léttan kvöldverð í
borðsal hótelsins. Um kvöldið kom svo
hópurinn saman við söng og gleði við undirleik
þeirra Guðmundar Sigurpálssonar og Rúnars
Hannessonar á harmonikur og á gítar spilaði
Pálmi H Björnsson. Drifu að þessum gleðskap
okkar fleiri hótelgestir og var mikið fjör fram
um miðnætti. Fóru þá allir að sofa, eftir
stórskemmtilegan dag. Laugardagsmorguninn
heilsaði með rigningu og súld en fremur
kyrrlátu og hlýju veðri og er morgunverði lauk
var ekið að Hala og skoðað Þórbergssetur.
Dvaldist mönnum þar, enda mikið að skoða.
Þar fékk hópurinn sér súpu að borða. Ekið
var ögn lengra en í Hala og að Jökulsárlóni að
skoða það. Er við komum til baka á hótelið
var frjáls tími, sumir fóru í göngutúr en aðrir
hvíldu sig. Nú hafði fjölgað mjög á hótelinu
og var safnast í setustofuna að hlýða á
harmonikuleik félaga og annarra. En nú var
komið að stóru stundinni. Kl. 19:00 hófst
sameiginlegur hátíðarkvöldverður í borðsal
hótelsins, fast að 190 manns. Kl. 21:00 hófst
hagyrðingaþáttur, sem stóð til fram yfir
ld.23:00. Hagyrðingar voru Ragnar Ingi
Aðalsteinsson, Andrés Björnsson, Snorri
Aðalsteinsson og Kristín Jónsdóttir, allt
alræmdir skælingar. Stjórnandi var Hjálmar
Jónsson.Var þetta í alla staði stórkostleg
skemmtun og veltist salurinn um af hlátri.
Kvöldinu lauk svo með dansleik sem stóð til
rúmlega kl. 02:00 um nóttina. Fyrir dansi léku
Hilmar og fuglarnir og Ekrubandið.
Sunnudagsmorgunn vöknuðu allir hressir og
eftir að hafa snætt morgunverð og þakkað
hótelhöldurum fyrir frábærar móttökur var
haldið af stað heimleiðis kl. 10:00. Eins og
4
I stökun d Smyrlabjörgum ejtir ferðalagið að norðan
Beðið eftir matnum i ró og spekt
Einhvers staðar Leyndust hljóðfieri þegar að vargáð
áður í ferðinni var glens og gaman í rútunni,
sagðar sögur og brandarar og ortar vísur. Veður
var sæmilegt, en súld og skúrir allt norður
undir Grímsstaði á Hólsfjöllum. Komið við á
Djúpavogi og næst stansað í Breiðdalsvík, þar
sem við hugðumst fá okkur að borða, en þar
var ekkert að hafa, ekki opnað fyrr en kl. 17:00.
Var þá ákveðið að fá sér í gogginn á
Fáskrúðsfirði, en það fór á sömu leið, ekkert
að hafa þar fyrr en kl. 17:00. Var nú komið
mælanlegt sultarhljóð í mannskapinn. En
sjaldan er ein báran stök, því nú var komið að
lögboðnum hvíldartíma hjá bílstjóranum.
Máttum við svo bíða á Fáskrúðsfirði í um eina
klukkustund, ókum síðan á Egilsstaði og þar
fengum við okkur að borða. Var síðan haldið
stanslaust áfram, farþegum hleypt út í
Reykjahlíð við Mývatn og svo komið í
Breiðumýri þar sem hópurinn kvaddist og
hver hélt til síns heima, en rútan hélt áfram
til Akureyrar með leifarnar af hópnum.Var
þar með lokið vel heppnaðri og skemmtilegri
ferð félagsins.
Texti og myndir: Jón Helgi Jóhannsson