Harmonikublaðið - 15.05.2019, Síða 8
Sitt lítið af hverju hjá FHUR
Vetrarstarfið hjá FHUR hélt áfram eftir
áramótin með dansleik 12. janúar. Aðsókn var
heldur slök eins og fyrir áramót, þó boðið væri
upp á miklar kræsingar í hljóðfæraleik. Það
var kvennahljómsveit félagsins sem hóf leik,
en hún samanstendur af Elísabetu Einarsdóttur
formanni félagsins, Gyðu Guðmundsdóttur,
Halldóru Bjarnadóttur, Ulfhildi Grímsdóttur
og Guðrúnu Erlu Aðalsteinsdóttur. Er þetta
trúlega eina hljómsveit landsins þar sem tveir
hjúkrunarfræðingar eru innanborðs, sem eru
þær Guðrún Erla og Ulfhildur. Garðar
Olgeirsson leysti þær svo af og lék þar til
Sigurðar Alfonsson tók við og lauk ballinu.
Þessum til aðstoðar voru þeir Haukur
Ingibergsson á gítar, Hreinn Vilhjálmsson á
bassa og Guðmundur Steingrímsson á
trommur. Næst var komið að Þorrablóti
félagsins þann 2. febrúar. Aðsókn var nánast
sú sama og á síðasta ári og var þetta hin
ágætasta skemmtun. Friðjón sá um veislustjórn.
Hefðbundinn fjöldasöngur, sem mjög góð
þátttaka var í, auk þess sem Pétur Bjarnason
flutti gamanmál sem kitlaði hláturtaugarnar.
Auk þess sá Emil Hjartar ástæðu til að gera að
gamni sínu. Þá voru seldir happadrættismiðar,
sem runnu út eins og heitar lummur.
Vinningar voru af hinum ýmsu gerðum og
gerðu margir góða ferð. Þá má geta
botnakeppni sem fram fór, en það hefur lengi
verið siður á þorrablótum FHUR að nokkrir
fyrripartar eru á borðum, gestum til gamans
og áskorunar. Fyrripartana orti einn af félögum
FHUR, Jökuldælingurinn Ragnar Ingi
Aðalsteinsson prófessor í bragfræði. Verðlaun
voru hin veglegustu, því Ragnar Ingi gaf
nýjustu Ijóðabók sína,
Bragarblóm, þá nýútkomna í
tilefni af 75 ára afmælis
meistarans, en í henni eru 75
limrur. Þátttaka var ásættanleg,
en árangurinn þokkalegur og
bárust nokkrir góðir botnar.
Auk þess barst mikið af hnoði
ogtöluvertafleirburði. Nokkuð
öruggur sigurvegari varð Birgir
Hartmannsson, Skagfirðingur
búsettur á Selfossi, alræmdur
hagyrðingur, harmonikuleikari
og dansari. I dómnefnd sátu þeir Emil
Hjartarson og Páll Elíasson. Svona hljóðar
verðlaunabotninn.
Nú er gott að syngja saman,
sœlan fylgir þorrablótum.
Seinna, þegar gerist gaman,
ganga menn á völtum fótum.
Birgir fékk svo aukaverðlaun fyrir þennan.
Aðan leit ég hraustan hal,
hann var fremur slunginn.
At hann svið og kœstan hval.
og klóraði sér í hnakkanum.
Sigurður Alfonsson hóf dansinn upp úr níu
og lék þar til Erlingur Helgason tók við. Svenni
Sigurjóns lauk síðan ballinu stuttu fyrir eitt.
Meðleikarar voru þeir Fróði Oddsson á gítar,
Hreinn á bassa og Eggert Kristinsson
trommuleikari. Næst var blásið til dansleiks
9. mars. Afram var aðsókn undir væntingum.
Þeir félagarnir Gunnar Kvaran og Pétur
Bjarnason hófu leik, en fljótlega kom Friðjón
til liðs við þá og gekk þá Pétur úr skaftinu.
Sigurður Alfonsson tók við af þeim og
Þórleifur Finnsson og Páll Elíasson luku síðan
ballinu um miðnættið. Góð þátttaka var í
dansinum, enda nóg pláss á gólfinu, sökum
fámennis. Eins og oftast áður í vetur sáu um
undirleik þeir Haukur, Hreinn og Eggert
Kristinsson. Síðasti dansleikur vetrarins fór
svo fram 27. apríl. Þar hófu leik þau Hilmar
Hjartarson og Linda Guðmundsdóttir og léku
þar til Hildur Petra Friðriksdóttir og Guðný
Kristín Erlingsdóttir tóku við og léku til 23:00.
Tvær úr kvennasveit FHUR, þær Elísabet
Einarsdóttir og Gyða Guðmundsdóttir luku
síðan dansinum um miðnættið. Haukur
Ingibergs lék á gítar á þessum síðasta dansleik
vetrarins, en Hreinn og Jónas Bjarnason á
bassa. Sveinn Ingi Sveinsson var á trommunum.
Næsti dansleikur FHUR verður síðan á Borg
í Grímsnesi 2. ágúst.
Friðjón Hallgrímsson
Myndir: Siggi Harðar
Hann varþéttsetinn Svarfaðardalurinn á þorrablótinu
Kokkurinn meetti á þorrablótið í Breiðfirðingabúð
Það var góðþátttaka í dansinum á lokaballinu
8
Stjörnupolkinn tekinn með stœl.