Harmonikublaðið - 15.05.2019, Qupperneq 10
Af Eyfirðingum
Veglegir styrkir til félagsins
A haustmánuðum ákvað félagið að sækja um
styrki til að efla starf stórsveitarinnar og
félagsins alls. Var sótt um styrki hjá nokkrum
fyrirtækjum, stofnunum og samtökum jafn
óðum og auglýst var eftir umsóknum í
staðarmiðlum. Fyrst hlaut félagið
samfélagsstyrk frá Norðurorku sem notaður
verður í kynningarstarf félagsins og til að
kanna möguleika á að fjölga ungum
nemendum á harmoniku. Frá Upp-
byggingarsjóði Eyþings kom síðan veglegur
styrkur til rekstrar stórsveitar félagsins. Eyþing
er samband sveitarfélaga í Eyjafirði og
Þingeyjarsýslu. Uppbyggingarsjóður er
samkeppnissjóður og er hluti af Sóknaráætlun
Norðurlands eystra. Sjóðurinn hefur það
hlutverk að veita verkefnastyrki til menn-
ingarverkefna, atvinnuþróunar og nýsköpunar
auk stofn- og rekstrarstyrkja til menningarmála.
Eru þeim Norðurorku og Eyþingi færðar
miklar þakkir fyrir en þessir styrkir gera
félaginu kleift að halda úti stórsveit með
stjórnanda út næsta vetur, þeir gefa einnig
félaginu mun meiri möguleika á að byggja
upp öfluga stórsveit sem vonandi verður til
þess að fleiri harmonikuleikarar bætist í
hópinn. Til lengri tíma litið ber félagið þá von
að með meiri sýnileika og þátttöku sveitarinnar
á opinberum vettvangi fjölgi nemendum á
harmoniku á svæðinu og auki fjölbreytileika
í menningarstarfi á Eyjafjarðarsvæðinu.
Dansleikir í vetur
Dansleikir hafa verið haldnir mánaðarlega eftir
áramótin, hafa þeir verið vel sóttir og
stemmingin eftir því. Flestir voru þeir með
hefðbundnu sniði en á dansleiknum í mars
var brugðið örlítið út af vananum. I samstarfi
við dansfélagið Vefarann var marserað góða
stund en dansfélagið Vefarinn er þjóðdansafélag
á svæðinu sem æflr vikulega allan veturinn og
hefur sýnt þjóðdansa og aðra sýningardansa
undanfarin ár. Stýrðu félagar dansfélagsins
marseringu og nokkrum hópdönsum við
góðar undirtektir dansþyrstra gesta áður en
hefðbundinn dansleikur tók við. Er óhætt að
segja að almenn ánægja hafi verið með þessa
nýbreytni og er stefnt að frekara samstarfi við
dansfélagið Vefarann í framtíðinni. Mun
viðburðurinn „Marserum í mars“ verða
haldinn árlega héðan í frá með dyggri aðstoð
Vefarafélaga eins lengi og mögulegt er. Að
halda úti svo mörgum dansleikjum á einum
vetri er ekki sjálfgefið og hefði ekki verið
mögulegt nema með aðkomu margra góðra
aðila og er þeim öllum hér með færðar kærar
þakkir fyrir þeirra framlag í vetur.
Starfið framundan
Þegar þetta er ritað á góðviðrisdegi um páska
er Harmonikudagurinn 4. maí í undirbúningi.
Deginum áður, eða föstudaginn 3. maí munu
nokkrir félagar fara um bæinn og leika fyrir
gesti og gangandi í tilefni dagsins. Félagið mun
síðan venju samkvæmt vera með kaffitónleika
á harmonikudaginn sjálfan. Á kaffitónleikunum
munu reyndir harmonikuleikarar taka lagið,
harmonikunemendur koma fram og stórsveitin
taka nokkur vel valin lög af dagskrá sinni á
vortónleikum sem verða haldnir síðar í
mánuðinum. Harmonikudeginum lýkur síðan
um kvöldið með dansleik og þá mun „sveitin
öll kveða af dansi og spili“ eins og segir í laginu
en það verður síðasti dansleikur vetrarins enda
komið vel inn í vorið þegar þar er komið við
sögu. Stórsveitin hefur æft markvisst undir
stjórn Roars Kvam vikulega í allan vetur með
það að markmiði að halda vortónleika. Verða
tónleikarnir haldnir í sal Brekkuskóla á
Akureyri þann 19. maí nk. Stórsveitin telur
að þessu sinni tíu harmonikuleikara ásamt
þriggja manna hrynsveit og er verkefnaskráin
fjölbreytt og metnaðarfull að vanda.
Undirbúningur fyrir Ydali 2019 er síðan
hafinn en hátíðin er haldin í samstarfi við
H.F.Þ. eins og hefur verið undanfarin ár.
Hátíðin hefur vaxið og dafnað jafnt og þétt
undanfarin ár. Þar, eins og víða annars staðar,
verður bryddað upp á nýjungum sem verður
vonandi flestum til gleði og ánægju og
hlökkum við til að hitta ykkur sem flest þar.
AHJ
Helgi Jóhannesson, forstjóri Noriurorku, ajhendir styrk til
félagsins
Frd styrkúthlutun Eyþings