Harmonikublaðið - 15.05.2019, Page 14

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Page 14
Vorönnin 2019 Vorönnin var að mestu leyti hefðbundin. Það voru dansleikir mánaðarlega og þorrablót í byrjun febrúar á vegum skemmtinefndar félagsins, í umsjón Friðjóns skemmtinefndar- formannsins og mun hann segja frá þeim skemmtunum í annarri grein. Hljóms- veitaræfmgar voru á miðvikudagskvöldum að vanda í Arskógum og verða þær haldnar fram að Harmonikudeginum 4. maí. Við endurvöktum skemmtifundarformið sem var ekki í gangi í fyrra. Skemmtifundinn Arina af Akranesi, œttuð frá Rússlandi vakti athygli í Breiðfirðingabúð Jóhannes Bjarki Másson lék á skemmtifundinum héldum við 23. febrúar í Breiðfirðingabúð og kynnir var að vanda Friðjón Hallgrímsson. Við lögðum áherslu á að fá unga harmonikuleikara til að koma fram. Við Friðjón höfðum samband við kennara og uppskárum vel. En því miður komust nemendur frá Hvolsvelli ekki en nemendur Sigurðar Alfons, Halldórs Péturs af höfuðborgarsvæðinu og Rutar Berg frá Akranesi, komu fram og voru alveg til sóma. Það verður gaman að fylgjast með þessu unga fólki. Þau voru: Arina 12 ára frá Akranesi, Eiður Orri Vignisson 13 ára Reykjavík, Erlendur Stefán Gíslason 13 ára Reykjavík, Gabriel Harasimczuk 13 ára Hafnarfirði/ Garðabæ, Guðmundur Sveinn Gunnarsson 14 ára Akranesi, Jóhannes Bjarki Másson 15 ára Reykjavík ogTheodora Skúladóttir 16 ára 14 hjá Félagi harmonikuunnenda Reykjavík. Reynir Jónasson og Sigurður Alfons léku dúetta eins og þeim er einum lagið og hljómsveit FHUR lék nokkur lög undir stjórn Hannesar Baldurssonar. Dansparið Elín Guðmundsdóttir og Hjörtur Árnason sýndu dansana sömbu, rúmbu og enskan vals, við undirleik hljómsveitarinnar. Kunnu allir vel að meta að sjá og heyra. Skemmtifundinum lauk svo með því að þeir Sigvaldi Fjeldsted, Erlingur, Petur, Gunnar Gröndal og Dansinn stiginn íÁrskógum Eggert léku fyrir dansi til hálf fimm. Þátttaka félagsmanna var mjög góð og við hugum að þessu næsta vetur. Við Sigurður Alfons lékum á þorra- blótsskemmtun fyrir ömmur og afa á leikskólanum Maríuborg í Grafarholti og börnin sungu og dönsuðu. Hljómsveitar- meðlimir léku líka fyrir dansi á Osku- dagsskemmtun í Árskógum og Hannes lék undir fyrir fjöldasöng og var þetta hin besta skemmtun. Þá var komið að „Opinni æfingu" í Árskógum í marsmánuði, með svipuðum hætti og í októberlok og var mætingin mjög góð. Góðir félagar okkar, Sveinn og Stefanía, leiddu sporin í Tennessee polka og fleiri sérdansar voru teknir fyrir. Við teljum þetta fyrirkomulag vera mjög bætandi fyrir félagsandann og félagsstarfið. Fólk mætir og dansar eða spjallar og svo átti góður félagi okkar 71 árs afmæli þennan dag, Guðjón Sveinbjörnsson frá Akranesi, sem er harmonikuunnendum um allt land vel kunnur. Ávallt duglegur að mæta á dansleiki og útilegur og spilar á trommuna sína við samspil á túninu. " Á Gististaðir í Stykkishólmi vegna landsmóts SÍHU 2. - 5. júlí 2020 Fosshótel, Borgarbraut 8, Stykkishólmi, sími 430 2100, stykkisholmur@fosshotel.is Hótel Breiðafjörður, Aðalgötu 8, Stykkishólmi, sími 433 2200, info@hotelbreidafjordur.is Hótel Egilsen, Aðalgötu 2, Stykkishólmi, sími 554 7700, booking@egilsen.is Hótel Fransiskus, Austurgötu 7, Stykkishólmi, sími 422 1101, fransiskus@fransiskus.is Harbour Hostel, gistiheimili, Hafnargötu 4, Stykkishólmi, sími 517 5353, info@harbourhostel.is Syslo guesthouse, Aðalgötu 7, Stykkishólmi, sími 554 7700, booking@egilsen.is Heimagisting Ölmu, Sundabakka 12, Stykkishólmi, sími 438 1435 / 848 9833 almdie@simnet.is Akkeri guesthouse, Frúarstíg 1, Stykkishólmi, sími 844 1050 akkeri@simnet.is Heimagisting Langey, Víkugötu 5, Stykkishólmi, sími 898 1457 booking.com Gisting Höfðagötu 11 gisting B&B, Stykkishólmi, sími 831 1806 booking@egilsen.is Farfuglaheimilið Sjónarhóll, Höfðagötu 1, Stykkishólmi, sími 438 1417 Smáhýsi Vatnsási 10, Stykkishólmi, sími 868 3932, ejkab@simnet.is Olofshús VR, Víkurgötu 2, Stykkishólmi Orlofshús Eflingar og BHM við Laufásveg Orlofshúsin við Laufásveg, sími 899 1797 Helgafell 2 guesthouse, Helgafelli, sími 861 6290, Iara84@simnet.is Helgafell farmhouse, Helgafelli, sími 867 0790, booking.com Pantið tímanlega því Stykkishólmur er vinsæli ferðamannastaður V_____________________________________________________________________________J Fundir stjórnar hafa verið mánaðarlega og margt rætt og yfirleitt 5-6 atriði til umfjöllunar. Ákveðið var m.a. að Elísabet formaður, Haukur gjaldkeri og Friðjón skemmtinefndarformaður sæju um fram- kvæmdina fyrir Landsmót SIHU í Stykkishólmi 2.- 5- júlí 2020. Við Friðjón fórum í Hólminn ásamt mökum og vorum alveg einstaklega heppin með allar móttökur. Bæjarstjórinn, viðburðastjórinn, tónlistars- kólastjórinn, íþróttamannvirkjastjórinn og hótelstjórinn voru öll svo jákvæð. Friðjón hafði rætt áður við umsjónarmann tjaldsvæðanna og safnað saman gistimöguleikum sem hann birtir væntanlega í blaðinu. Aðalfundur FHUR verður haldinn 28. maí í húsi Þjóðdansafélags Reykjavíkur. Og framundan verða svo öll harmonikumótin víða um land og þar sem verður gaman að hittast. Með harmonikusumarkveðju, Elísabet H Einarsdóttir formaður FHUR Myndir: Siggi Harðar

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.