Harmonikublaðið - 15.05.2019, Síða 15

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Síða 15
Ásgeir S. Sigurðsson jyrrverandi formaður SÍHU f. 21. nóvember 1937 - d. 20. apríl 2019 Ásgeir lést á Isafirði 20. apríl sl. og var jarðsunginn frá Isafjarðarkirkju 27. apríl 2019. Ásgeir var einn af stofnendum Harmo- nikufélags Vestfjarða, formaður þess í yfir tuttugu ár og heiðursfélagi síðan. Hann var formaður Sambands íslenskra harmo- nikuunnenda árin 1993 til 1996. Harmo- nikan, saga hennar og virðing var Ásgeiri alltaf hugstæð. Og hann lét ekki sitja við að hugsa bara til hennar heldur lét hann verkin tala. Ásgeir spilaði á harmoniku frá unga aldri og var afar laghentur. Hann fór að gera við gamlar harmonikur fyrir nokkrum áratugum og fljótlega fóru honum að berast gamlar harmonikur til varðveislu, margar þeirra með merka sögu. Ur varð að hann fór að safna harmonikum af alvöru. Honum bárust harmonikur úr öllum landshornum, margar frá þekktum spilurum. Hann fékk líka harmonikur utanlands frá, sem margar voru afar fágætar. Ásgeir skráði sögu hverrar og einnar og gerði við það sem þurfti. Þau Ásgeir og Messíana Marsellíusdóttur eiginkona hans afhentu Isafjarðarbæ safnið til varðveislu fyrir allmörgum árum. Safnið telur núna yfir tvö hundruð harmonikur og er varðveitt á Byggðasafni Vestfjarða undir nafninu: Harmonikusafn Asgeirs S. Sigurðssonar. Þau hjónin Ásgeir og Messíana voru einstaklega samhent og hún studdi Ásgeir dyggilega í því að efla viðgang harmonikunnar. Messíana er píanókennari, en eftir stofnun Harmonikufélags Vestfjarða 1986, kom í ljós að það sárvantaði harmonikukennara. Hún dreif sig að læra á þetta hljóðfæri og kenndi síðan tugum nemenda á Isafirði, ef ekki á annað hundrað. Ásgeir var einstakt ljúfmenni og traustur vinur. Prúðmennska og snyrtimennska einkenndi allt hans dagfar og húmorinn var aldrei langt undan. Eg get gert forn ummæli að mínum og sagt: „Þá minnist ég Ásgeirs vinar míns er ég heyri góðs manns getið“. Ásgeirs verður saknað af mörgum. Eg sendi Messíönu og fjölskyldu þeirra innilegar samúðarkveðjur. Pétur Bjarnason Kveðja frá Harmonikufélagi Vestfjarða Látinn er heiðursfélagi Harmonikufélags Vestfjarða. Hann var einn af stofnendum og kosinn fyrsti formaður þess á stofnfundi 16. nóvember 1986 og gegndi því starfi þar til í janúar 2009 að undanskildum þremur árum er hann var formaður Sambands íslenskra harmonikuunn- endal993 til 1996. Ásgeir var einstakt ljúfmenni sem kom öliu til leiðar í sátt og samlyndi með sinni einstöku prúðmennsku og húmor, hann hallmælti aldrei nokkrum manni, honum lánaðist að líta lífið alltaf björtum augum og deildi þeirri sýn. Ásgeir hlýtur að teljast helsti boðberi og unnandi harmonikunnar, mikill tónlistaráhuga- maður og ötull í öllu félagsstarfi tengdu harmonikunni. Eitt er það sem ekki síst mun halda minningu hans á lofti; söfnun hans á eldri og lúnum nikkum, sem hann gerði við og kom til betra horfs. Harmonikusafn Ásgeirs S. Sigurðssonar telur nú liðlega 200 eintök. Safnið er einstakt á Islandi og jafnvel þó víðar væri leitað. Það var afhent ísafjarðarbæ til varðveislu og er nú til húsa á Byggðasafni Vestfjarða. Vonandi næst fljótlega að bæta þá aðstöðu svo almenningur getið notið þessara gersema. Eitt það sem Ásgeir kom á í sínu formannsstarfi, var að halda Atburðabók. Þar var allt skráð, fundir, samkomur og annað starf í félaginu. Þarna er hryggjarstykkið í sögu félagsins í þau 33 ár sem það hefur starfað. Ásgeir var sannur Isfirðingur og einnig mjög stoltur af sínum þingeyska uppruna sem hann hampaði oft bæði í gamni og alvöru. Ásgeir kom víðar við í félagsmálum, hann var bróðir í Oddfellowstúkunni nr 6. Gesti og gaf mikið af sér í því starfi og má segja að einkunnarorð hennar Vinátta - Kærleikur - Sannleikur lýsi Ásgeir S. Sigurðssyni vel. Vertu sæll kæri vinur. Minning þín lifir. Við sendum Messíönu og fjölskyldu innilegustu samúðarkveðjur. Fyrir hönd stjórnar Harmonikufélags Vestjjarða Hafiteinn Vilhjálmsson formaður 15

x

Harmonikublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.