Harmonikublaðið - 15.05.2019, Síða 16
„Það var kátt hérna á laugardagskvöldið“
Hagyrðingakvöld og ball
Margir unnendur vísna og harmonikutóna
biðu spenntir eftir laugardeginum 13. apríl sl.
Af hverju? Jú þá var stefnt á hagyxðingakvöld
með balli og góðum mat á Hótel
Smyrlabjörgum í Suðursveit í Austur-
Skaftafellssýslu. A föstudeginum var fólk sem
lengst átti að komið í hús á Smyrlabjörgum.
Þar voru á ferð Þingeyingar, Skagfirðingar og
hjón frá Súðavík sem lengst voru að komin.
Þessir góðu gestir hófu upphitun strax um
kvöldið með harmonikuleik og söng.
Laugardagurinn rann upp með ágætis
ferðaveðri og eftir hádegi fóru gestir að tínast
í hlað.
Þegar Sverrir Þórhallsson stjórnarmaður í
Félagi harmonikuunnenda á Hornafirði steig
í pontu og bauð fólkið velkomið, vorum um
200 manns mættir til leiks. En þessi hátíð er
samstarfsverkefni Hótel Smyrlabjarga og
Félags harmonikuunnenda á Hornafirði.
Hátíðin sem haldin var í fyrsta skipti í fyrra
þótti takast það vel að áfram var haldið. Eftir
að hafa raðað í sig þrírétta máltíð stigu
hagyrðingar á svið tilbúnir í vísnaslaginn. Sr.
Hjálmar Jónsson sá um að stjórna
vísnakvöldinu, kynnti hann til leiks
hagyrðingana: Kristínu Jónsdóttir frá Hlíð í
Lóni, Snorra Aðalsteinsson frá Höfn af
Vaðbrekkuætt, Ragnar Inga Aðalsteinsson
frænda Snorra og Andrés Björnsson úr
Borgarfirði eystra. Einvalalið. Var nú hverri
vísunni annarri betri kastað fram eftir
innleiðingu spurninga frá sr. Hjálmari og
fengu hagyrðingar góðar móttökur gesta í sal
og gott uppklapp í lokin. Eftir að hagyrðingar
gengu frá borði var farið að gera klárt fyrir
ballið. Tvær hornfirskar hljómsveitir stigu á
svið, Ekrubandið sem var skipað tveimur
nikkuspilurum, ásamt píanó, bassa,
trommuleikara og söngvara. Hin sveitin var
Hilmar og fuglarnir sem var skipuð harmoniku,
bassa, gítar og trommuleikurum, ásamt
söngvara sem söng reyndar með báðum
sveitunum. Ekrubandið, sem skipað er þeim
Zophoníasi Torfasyni og Hauki Helga
Þorvaldssyni á nikkur, Einari Sigjónssyni á
píanó, Sigurði Hannessyni á bassa, Ragnari
Eymundssyni á trommur og Erni Arnarsyni
söngvara, hóf leik og létu dansgestir ekki á sér
standa og smelltu sér í valsa, ræla, tangóa,
vínarkrusa, skottísa og smá sving. Hilmar og
fuglarnir tóku síðan lokasprettinn og léku inn
í nóttina, en auk hans eru í hljómsveitinni,
Haukur Helgi á nikku, Jóhann Móravek á
bassa, Júlíus Sigfússon á gítar, Ragnar á
trommur og Orn söngvari. Lauk balli með því
að allir í salnum mynduðu hring á dansgólfinu
og sungu lagið Ferðalok (Er völlur grær...) með
viðeigandi hreyfingum.
Vonandi áttu allir góða heimferð og er öllum
sem gerðu þessa hátíð á Smyrlabjörgum svona
góða og skemmtilega færðar kærar þakkir.
Sjáumst á sama tíma að ári!
Spurt var: Hvað hefði Drottinn átt að gera
betur ?
Upp gafit Drottinn á efsta degi,
svo erfið var honum sköpunin.
Eg heldþað hafi ekki verið úr vegi,
að vanda sig betur með karlmanninn.
Kristín Jónsdóttir Hlið
Spurt var. Hvað í fari mínu heillar hitt
kynið ?
Haustblómin anga alltaf sœtast,
afeigin reynslu ég hiklaust tel.
Þar sem gáfur oggredda mœtast,
getur ekki annað enfarið vel.
Kristín Jónsdóttir Hlið
Það vakti furðu mína þegar ég spjallaði við
stjórn FHUH að öll eiga þau harmonikur
en kunna ekkert að spila.
Þau félagar teljast sem tónspili unna,
þó tornæm séu á do re mí.
Að eiga nikku en ekkert kunna,
á ensku er kallað wannabe.
Snorri Aðalsteinsson
Spurt var um áramótaheit.
A komandi ári égfer minnaferða,
friðelskandi heill ogsannur.
Svo langar mig auðvitað Líka að verða,
Ljóshœrður, unglegur, hár oggrannur.
Snorri Aðalsteinsson
Spurt var. Hvað gerir grái fiðringurinn fyrir
þíg?
Besta aldri brátt ég nœ
og bjargfóst er mín trúin
ég engan gráan fiðringfie,
fyrr en hin er búin.
Andrés Björnsson Borgarfirði eystri
16