Harmonikublaðið - 15.05.2019, Qupperneq 17

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Qupperneq 17
Fólk himtaði afathygli Hornfirskir harmonikuleikarar á humarhátíð Spurt var. Hvað sérðu þegar þú lítur í spegil? Aðpekkja myndfrd spegli er mikilglíma, pví mínu útliti égget ei treyst. Egglápi á sjálfan mig í gó8an tíma, Guð hvað Mónakó Lísa hefur breyst. Andrés Björnsson Borgarfirði eystri • ••••••••••• Spurt var um Sverrir Þórhallson í FHUH Sverri í jýrsta sinn égsá, og svolitla tengingu komin er með. Mér finnst hann talsvert minna á, mann sem ég hef aldrei séð. Andrés Björnsson Borgarfirði eystri Stjórn Félags harmonikuunnenda á Hornafirði. Myndir: Sigurður Aðalsteinsson Bragi Hlíðberg 95 ára Einn af heiðursfélögum SIHU, Bragi Hlíðberg, varð 95 ára, 26. nóvember sl. Bragi hefur um áratuga skeið glatt harmonikuunnendur með leik sínum. Hann fékk ungur leiðsögn á harmoniku og sló í gegn strax á unga aldri og æ síðan hefur hann verið íslenskum harmonikuleikurum mikil fýrirmynd. Þegar erlendir harmonikuleikarar komu til landsins til tónleikahalds var gjarnan spurt eftir leik þeirra. „Er hann betri en Bragi?“ Þessi setning sýnir best hversu mikils hann er metinn meðal harmonikuunnenda. A sínum yngri árum lék hann með hinum ýmsu danshljómsveitum borgarinnar, en þegar þau Ingrid eiginkona hans komu sér upp fjölskyldu á sjötta áratugnum, hvarf hann fljótlega af þeim vettvangi. Hann var hins vegar oft kallaður til þegar mikið lá við, td. í Þjóðleikhúsinu, en þar réði ríkjum á sjöunda áratugnum gamall spilafélagi af ballárunum, Carl Billich tónlistarstjóri. Smám saman fór þó að heyrast meira í hljóðfærinu hans og síðustu þrjá áratugina hafa tónar Braga Hlíðberg borist um meðal harmonikumótsgesta víðs vegar um landið. Bragi og Ingrid hafa í gegnum tíðina heiðrað harmonikumót um land allt með nærveru sinni mörg undanfarin ár. Ferðagleði þeirra hjónanna hefur verið miklum eindæmum og í raun dæmalaust hve miklu þau hafa komið í verk, en eitt síðasta mótið sem þau tóku þátt í var landsmótið á Isafirði 2017. Varðandi harmonikuleikarann er alveg stórmerkilegt að Bragi á að baki sáralítið tónlistarnám og er að mestu sjálfmenntaður, sem segir meira en mörg orð, um hans miklu hæfileika. Braga hefur verið sýndur margur heiður um dagana, en ætíð hefur það verið A Fjallabaki undir Laufafelli efst í Rangárbotnum eystri *m A góðri stund í Fljótshlíðinni 2017 hógværðin, sem hefur verið aðalsmerki listamannsins. Hann er hins vegar ekki allur þar sem hann er séður, því það er hægt að spyrja Braga um allt milli himins og jarðar. Að sjálfsögðu er hann með á nótunum þegar tónlist er annars vegar, en hann getur líka sagt manni til varðandi smíðar á eldhúsinn- réttingum eða gera við bíla. Þeim heiðurs- hjónum Braga og Ingrid eru hér með sendar síðbúnar afmæliskveðjur frá Félagi harmo- nikuunnenda í Reykjavík og innilegar þakkir fyrir allt sem þau hafa lagt félaginu til. Við óskum þeim gleðilegs sumars og vonandi eigum við eftir að sjá þau á einhverri harmo- nikuhátíð sumarsins. Siggi Harðar Vegna plássleysis í blaðinu komst greinin ekki fyrir í desemberblaðinu. Bragi Hlíðberg heiðursfélagi SÍHU lést um það bil sem blaðið fór í prentun. 17

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.