Harmonikublaðið - 15.05.2019, Page 23

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Page 23
Carl Billich Carl Billich var fæddur í Vínarborg árið 1911. Honum var snemma komið til náms í píanóleik en sýndi náminu heldur lítinn áhuga til að byrja með. Fljótlega vaknaði þó löngun til að læra og var þá ekki að sökum að spyrja, námið gekk ljómandi vel enda hæfileikarnir ótvíræðir. Hann hafði öðlast mikla reynslu sem tónlistarmaður, þegar hann árið 1933 fékk tilboð frá Rosenberg á Hótel Islandi, sem stóð á horni Aðalstrætis og Austurstrætis, að koma og leika sem einn af þremur í Vínartríói, sem leika skyldi fyrir gesti hótelsins. Fiðlu- leikarinn í tríóinu var Josef Felzmann, æskuvinur Carls. Samningur þeirra félaganna var til átta mánaða en þeir settust báðir hér að og voru sannkallaður hvalreki fyrir íslenskt tónlistarlíf. Þeir lentu báðir í hremmingum vegna heimsstyrjaldarinnar, því við hernámið í maí 1940 voru þeir báðir handteknir og fluttir til Englands í fangabúðir. Þar máttu þeir dúsa til stríðsloka og gott betur. Billich lék með mörgum danshljómsveitum í gegnum tíðina og með hann við slaghörpuna gátu hinir verið rólegir. Hann var tónlistarstjóri Þjóðleikhússins frá 1964 til starfsloka 1981. Billich varð fljótlega önnum kafinn við útsetningar, enda smekklegur og vandvirkur svo af bar. Hann vann með MA kvartettinum, Smára kvartettinum og Leikbræðrum svo einhverjir séu nefndir. Ekki var mikið um tónsmíðar hjá Billich, en þó kom fyrir að lag og lag datt úr penna hans. 1 fangavistinni í Englandi varð Oli lokbrá, hans þekktasta lag til. Annað lag Billich komst á plötu þegar Sigurður Ólafsson söng Astavísu hestamanns- ins með hljómsveit Billich inn á 78 snúninga plötu, sem út kom 1955. Carl Billich kvæntist eiginkonu sinni Þóru Jónsdóttur árið 1939 og eignuðust þau eina dóttur. Hægt er að fræðast um Billich í bókinni „Norður í svalanrí', sem út kom 1982 og innheldur ma. minningabrot frá ævi listamannsins, sem lést í Reykjavík 1989. Munið myndasíðuna á netinu: www.harmnniku-unnendur.com Nú er lag á Borg“ Hin árlega harmonikuhátíd FHUR verður haldin á Borg í Grímsnesi um verslunarmannahelgina 2. - 5. ágúst Sérstakir gestir veröa harmonikusnillingarnir Ásta Soffía Þorgeirsdóttir, Þingeyingur og Kristina Farstad Björdal, frá Noregi, en þær hafa slegið í gegn með stórkostlegum harmonikuleik. Tónleikar þeirra verða laugardaginn 3. ágúst. Á Borg eru góð hjólhýsastæði, stór danssalur, glæsileg sundlaug, verslun, góðir harmoniku- leikarar og vonandi jafn gott veður. Glæsileg dagskrá alla helgina, dansleikir, tónleikar, markaður, harmonikukynning EG tóna og ýmislegt fleira. Fjölmennum og tökum með okkur góóa gesti og gott skap Félag harmonikuunnenda í Reykjavík Símar 894 2322, 696 6422, 864 8539 23

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.