Harmonikublaðið - 15.05.2019, Page 24

Harmonikublaðið - 15.05.2019, Page 24
Pistill úr Dölum - af högum Nikkólínu vöfflukaffi og skoðaði handverkið. Alltaf gaman að spila þar, góðar móttökur, skemmtilegir áheyrendur og flottur handverksmarkaður. Félag sauðfjárbænda í Dölum heldur árlega Sauðfjárhátíð fyrsta vetrardag. A föstudeginum er sviðaveisla með skemmtidagskrá, þar fara hagyrðingar á kostum og margt fleira sér til gamans gert. Að þessu sinni tók Nikkólína að sér að spila í upphafi dagskrár og undir borðhaldi. Það gekk alveg ljómandi vel, við fengum dynjandi undirtektir áheyrenda og gerum fastlega ráð fyrir því að spila þarna aftur næsta haust. Jólalögin voru æfð í nóvember og hljómsveitin spilaði á jólamarkaði og kaffisölu handverkshópsins Ossu í Króksfjarðarnesi 1. des. Daginn eftir var svo spilað að vanda á dvalarheimilinu Fellsenda á aðventuhátíð. Þetta eru orðnir alveg fastir liðir á jólaföstunni. Sömuleiðis heimsóttum við dvalarheimilið Silfurtún og eins var spilað í Kjörbúðinni í Búðardal rétt fyrir jólin. Félagar úr Nikkólínu fóru í leikskólaheimsókn í Búðardal 6. feb., þar var mikið spilað, sungið og dansað og allir skemmtu sér dável, ekkerr kynslóðabil þar. Jörvagleði, menningarhátíð Dalamanna var haldin núna um sumarmálin með fjölbreyttri dagskrá í tali og tónum, víðavangshlaupi og gönguferðum enda heilsaði sumarið með einmuna blíðu. Á laugardaginn var tónlistarhátíð í félagsheimilinu að Staðarfelli, troðið hús og hápunktur Jörvagleði. Félagsheimilið var byggt 1929 aml. í sjálfboðavinnu og hefur því staðið í 90 ár, steypt hús sem stendur enn fyrir sínu, en það hefur að vísu verið byggt við það tvisvar síðan. Þarna skemmti Þorrakórinn, sönghópurinn „Systkinin“, sagt var frá byggingu hússins og flutt gamanmál. Síðan var glæsilegt kaffihlaðborð fyrir samkomugesti og þá spilaði Nikkólína fram eftir kvöldi. Mjög skemmtilegt kvöld, alltaf sérstaklega góð stemming á Staðarfelli. Á Harmonikudaginn 4. maí spiluðu Nikkólínufélagar svo á Barmahlíð á Reykhólum, sungin voru nokkur sumarlög enda glampandi sól í heiði og á eftir var veislukaffi með heimilisfólkinu. Góður endir á vetrarstarfmu. Nú er hafinn sauðburður í sveitum í Dölum eins og um allt land. Á meðan liggja æfingar niðri en ekki má taka langt hlé því 14.-16. júní halda Nikkólína og Harmonikuunnendur í Húnavatnssýslum Harmonikuhátíð jjöl- skyldunnar á Laugarbakka í Miðfirði. Nikkólínufélagar hlakka til skemmtilegrar helgar í góðra vina hópi og við vonum að sem flestir harmoniku- og dansunnendur sjái sér fært að mæta og skemmta sér með okkur. SBH Ljósmyndir: Vilhjálmur Bragason Starfið hjá okkur í Harmonikufélaginu Nikkólínu hefur verið með nokkuð hefðbundum hætti þetta árið. Það hefur svo sem ekki verið æft alveg reglulega, en hins vegar slegið þess betur í þegar tilefni hefur gefist til. Félagið hefur aðstöðu til æfinga í húsnæði tónlistardeildar Auðarskóla og á æfingum er bæði spilað og spjallað með kaffi og góðu meðlæti. Á Harmonikudaginn 5. maí 2018 spiluðu félagar úr Nikkólínu í Kjörbúðinni í Búðardal og svo á dvalarheimilinu Silfurtúni. Stærsta verkefnið á árinu var svo auðvitað útihátíðin á Laugarbakka 15.-17. júní, þar spilaði Nikkólína á föstudagsballinu að vanda. Hátíðin var afskaplega skemmtileg og nú er farið að styttast í næstu Laugarbakkahátíð. Þar verður örugglega góðra vina fundur og skemmtileg helgi. Bæjarhátíðin Heim í Búðardal var haldin sl. sumar, helgina 14.-15. júlí. Það er komin föst hefð að halda bæjarhátíð það ár sem Jörvagleðin er ekki. Heimamönnum og gestum var boðið í brunch í Dalabúð á laugardag og þar spilaði Nikkólína á meðan aðrir gæddu sér á kræsingunum. Einhvern veginn er oftar spilað seinni hluta dags eða fram eftir nóttu, en þarna var mætt að morgni dags og spilað af krafti með kaffibollann við hendina. Á Reykhóladögum þann 29. júlí var spilað í handverkshúsinu (gamla kaupfélaginu) í Króksfjarðarnesi, á meðan fólk gæddi sér á Spilað í Króksjjarðarnesi í byrjun des Spilað í Króksjjarðarnesi á Reykhóladögum Jörvagleðitónleikar á Staðarfelli 24

x

Harmonikublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.