Harmonikublaðið - 15.09.2019, Qupperneq 3
Harmonikublaðið
ISSN 1670-200X
Abyrgðarmaður:
Friðjón Hallgrímsson
Espigerði 2, 108 Rejk/avík
Sími 696 6422, fridjonoggudnj@internet.is
Prentvinnsla: '*?'
Héraðsprent, Egilsstöðum, www.heradsprent.is PrentgriPur
Forsíða: Eorsíðumjndin að pessu sinni var tekin af
Sigga Harðar á harmonikuhátíðinni á Ydölum í
Aðaldal síðastliðið sumar.
Meðal efnis:
-1 fréttum var þetta helst
- Itríó - bravóóó bravóóó
- Hvítasunnan á Borg í Grímsnesi
- Minning, Bragi Hlíðberg
- Jónsmessan á Steinsstöðum
- Islensk - norskir tónleikar á Borg
- Fréttir af vori og sumri ásamt vetrarstarfi FHUE
- Tónleikar í Grafarvogskirkju
- Ýdalagleði
- Harmonikuhátíðin á Laugarbakka 2019
- Harmonikudagurinn á Hornafirði
- Fréttir af Héraði
- Nú er lag á Borg
- Lag blaðsins - Skógarvalsinn eftir
Vigdísi Jónsdóttur
- Frostpinnar að vestan
Auglýsingaverð:
Baksíða 1/1 síða kr. 28.000
1/2 síða kr. 18.000
Innsíður 1/1 síða kr. 22.500
1 /2 síða kr. 14.000
1/4 síða kr. 8.500
1/8 síða kr. 5.500
Smáaugtjsingar kr. 3.500
Skilafrestur efnis fyrir næsta blað er
25. nóvember 2019.
Stjórn S.Í.H.U. nöfn, netföng,
heimilisföng og símanúmer:
Formaður:
Filippía Sigurjónsdóttir
8208834@internet.is
Hólatúni 16, 600 Akureyri
S: 462 5534 / 820 8834
Varaformaður: Haraldur Konráðsson
budarholl@simnet.is
Sólbakka 15, 861 Hvolsvöllur
S: 487-8578 / 893-4578
Ritari: Sigrún B. Halldórsdóttir
sigrunogvilli@gmail.com
Breiðabólstað, 371 Búðardalur.
S: 434-1207/ 861-5998
Gjaldkeri: Melkorka Bendiktsdóttir
melb.ss@simnet.is
Vígholtsstöðum, 371 Búðardalur
S: 434 1223 / 869 9265
Meðstjórnandi: Pétur Bjarnason
peturbjarna@internet.is
Geitlandi 8, 108 Reykjavík
S: 456-4684 / 892-0855
Varamaður: Sigurður Ölafsson
sandur2s@magnavik. is
Sandi 2, 641 Húsavík
S: 464-3539 / 847-5406
Varamaður: Sólveig Inga Friðriksdóttir
bolstadarhlid2@gmail.com
Bólstaðarhlíð 2, 541 Blönduós
S: 452-7107/ 856-1187
Kt. SÍHU: 611103-4170
.... |"’Kl'
Frá því ég hóf að starfa í Félagi harmonikuunnenda í Reykjavík fyrir ríflega
40 árum hefi ég farið á fjölmarga tónleika með hinum ýmsu
harmonikuleikurum. Allir hafa þeir átt það sameiginlegt að vera góðir
tónlistarmenn og margir framúrskarandi. Þeir fyrstu sem ég hlýddi á voru
af, því sem ég kalla, gamla skólanum. Stór hluti þeirra tónleika saman stóð
af verkum eftir höfunda á borð við Pietro Frosini, Pietro Deiro, Ragnar
Sundqvist, Arnstein johansson, Walter Eriksson og ýmsa fleiri. Eg minnist
harmonikuleikara á borð við Lars Ek, Nils Flácke, Sigmund Dehli, Anders
Larsson, Anniku Anderson og margra fleiri í þeirra anda. Allir áttu þeir
sameiginlega mikla spilagleði, sem smitaðist út í áheyrendahópinn, sem naut
stundarinnar til hins ýtrasta. En það var annar hópur harmonikuleikara, sem hingað kom til
tónleikahalds, sem var á annarri bylgjulengd, ef svo má segja. Þar í hópi voru td. Hrólfur Vagnsson,
Elisbeth Mosel, Geir Draugsvoll, Vladimir Chuchran, Renzo Ruggieri og fleiri. Síðari hópurinn
lék af sömu spilagleðinni og hinn, en tónlistin var allt annars eðlis. Þeirra tónlist var svokölluð
nútímatónlist, jafnvel framúrstefnutónlist. Þar giltu jafnvel önnur lögmál varðandi laglínu, sem
stundum fyrirfannst jafnvel ekki. Sumt af þessum tónsmíðum hljómuðu jafnvel sem einhvers
konar prakkarastrik, þó áheyrendur hafa ekki allir heyrt þau sem slík. Sumt mátti jafnvel flokka
sem uppákomur. Það kom fljótlega í ljós að síðari hópurinn átti síður upp á pallborðið hjá hinum
almenna harmonikuunnenda, en hann átti sína aðdáendur engu að síður. Hópurinn smá hætti
að mæta, ef von var á framúrstefnutónlist. Það þurfti að samræma þessar tvær ólíku stefnur.
Hugleiðingar mínar að þessu sinni er til komnar vegna tónleika sem ég sótti um
verslunarmannahelgina á Borg í Grímsnesi. Þar má segja að komið hafi í ljós hvernig hlustun
harmonikunnenda hefur breyst með árunum. A sviðinu á Borg léku í dúett, tvær ungar
tónlistarkonur, menntaðar í Noregi, önnur íslensk hin norsk. Þær heilluðu áheyrendur með leik
sínum og kynningum, enda frábærir tónlistarmenn. Þær voru búnar að samræma dagskrárnar.
Þær léku reyndar ekki nútíma framúrstefnutónlist, eins og leikin er víða úti í heimi. Þær léku
að hluta til gamla sígilda tónlist, sem leikin hefur verið um árhundruð og var ekki einu sinni
samin fyrir harmoniku og svo nýja, sem samin er af ungum harmonikuleikurum, sem auðga
tónlistarlífið með nýrri tónlist. Það var reyndar mjög mikil norræn slagsíða á lagalistanum, en
það var trúlega bara berra. Nú brá hins vegar svo við að áheyrendur voru með á nótunum. Þeir
skemmtu sér konunglega og höfðu orð á því, hve vel þeim hafi fundist tónleikarnir hafa tekist.
Þó voru þarna mjög margir af gömlu harmonikuunnendunum, sem vanist höfðu eldri gerðinni.
Þeir eru búnir að taka nýju tegundina í sátt. Það er sem sagt nauðsynlegt að blanda þessu vel
saman, þá gengur dæmið ágætlega upp og harmonikunni er auðveldlega treystandi fyrir þess
háttar.
í fréttum var þetta helst
Harmonikusnillingurinn Jónas Ásgeir
Ásgeirsson og Ragnar Jónsson sellóleikari, halda
tónleika í Salnum í Kópavogi þriðjudaginn 8.
október. Tónleikarnir hefjast klukkan 19:30.
Á efnisskránni eru verk eftir Atla Heimi
Sveinsson, Atla Ingólfsson, Johann Sebastian
Bach, Igor Stravinsky og Sofiu Gabaildulinu.
Af þessu má sjá að efnisskráin er afar fjölbreytt
og ættu allir að fá eitthvað við sitt hæfi. Ohætt
er að mæla með þessum tónleikum, en þessi
hljóðfæraskipan er ekki daglegt brauð. Það
vitnar um óvenjulegan stórhug að leggja í að
taka Salinn í Kópavogi á leigu til að halda
tónleika sem þessa.
Komið er út nótnahefti með 20 lögum eftir
Hjördísi Pétursdóttur (1919-1971). Heftið er
til sölu íTónastöðinni og Hljóðfærahúsinu fyrir
sanngjarnt verð. Hjördís Pétursdóttir samdi
mörg ágætislög um dagana og er
Þórshafnarskottís í flutningi Grettis Björnssonar
þeirra frægast. Þá söng Haukur Morthens lagið,
Eldur í öskunni leynist, við ljóð Davíðs
Stefánssonar, á sínum tíma. Ekki er vafi að
nótnaheftið á erindi við harmonikuunnendur
sem og annað tónlistarfólk.
Eitthvað virðist lítið um að vera hjá sumum
harmonikufélögum um þessar mundir. Sáralítið
hefur verið um svör frá formönnum þeirra við
fyrirspurn ritstjórans. Starf félaganna virðist
því að mestu fara fram í kyrrþey. Það er von
ritstjórans að eitthvað rofi til með haustinu og
formenn félaganna sjái ástæðu til að rjúfa
leyndarhjúpinn.
Framundan er aðalfundur SIHU, sem að þessu
sinni verður haldinn á Egilssröðum síðustu
helgina í september. Aðalmál fundarins verður
trúlega tillaga FHUR um lagabreytingu
varðandi skiptingu hagnaðar eða taps af
landsmótum. Orlítið var málið rætt á síðasta
aðalfundi, en þá kom tillagan of seint fram til
að fá viðeigandi afgreiðslu.
Undirbúningur við komandi landsmót í
Stykkishólmi er á áætlun, en nú fer að líða að
lokaundirbúningi.
r
Heiðursfélagar SÍHU
Aðalsteinn fsfjörð, Baldur
Geirmundsson og Reynir Jóna: