Harmonikublaðið - 15.09.2019, Side 4
Ég hafði séð auglýsingu á
væri boðið að halda tónleika í tónleikaröðinni
Velkomin heim. Ég hafði áður heyrt í þeim á
landsmóti harmonikuunnenda á Isafirði og
aðeins á YouTube. Mér finnst gaman að
fylgjast með unga fólkinu okkar og sérstaklega
harmonikuleikurum. Ég var ákveðin í að reyna
að leiðbeina unga fólkinu aðeins um efnisval
því mér þótti það svolítið einhæft á Isafirði,
þ.e. sama tæknikunnátta oft og þá voru
Krummavísur í þeirra eigin útsetningu það
verk sem heillaði mig mest.
ítríóið skipa þau Helga Kristbjörg
Guðmundsdóttir frá Isafirði, Jón Þorsteinn
Reynisson úr Skagafirði og Jónas Asgeir
Ásgeirsson frá Reykjavík. Þau stunduðu öll
kammernám við einleikaradeild Konunglega
danska tónlistarháskólans í Kaupmannahöfn.
Þau hafa unnið til verðlauna m.a. hrepptu þau
annað sætið í alþjóðlegri harmonikukeppni í
Castelfidardo árið 2016 og fyrsta sæti í
kammertónleikakeppni í skólanum þeirra í
Kaupmannahöfn og þau hafa tekið þátt í
mörgum hátíðum.
Tónleikarnir 19. maí í Hörpu voru alveg
stórkostlegir! Efnisval var fjölbreytt og gaman
að kynnast ýmsum nýjungum í harmonikuleik.
Þau hófu leikinn á verkinu Sailing eftir Junchi
Deng og þetta var mjög áheyrilegt verk. Þá
tók við mjög sérstakt verk eftir Finn Karlsson
For AIl The Wrong Reasons og kynning
Jónasar Ásgeirs var á þann veg að verkið væri
eiginlega samið út frá kennitölum þeirra og
þetta þótt mér mjög merkilegt og fjölbreytt.
En svo kom verkið sem situr í
vellíðunarminninu, Suite Gothique efdr Léon
Boéllmann í fjórum þáttum Introduction
Jónas Ásgeir, Helga Kristbjörg ogjón Þorsteinn viðglervegginn jrœga í Hörpu
Choral, Menuett gothique og hið unaðslega
Priére á Notre-Dame og fín Toccata í lokin.
Mér þótti Priére vera himneskt og þvílík
sælutilfinning og hin verkin voru mjög góð.
Þá kom verk eftir japanskan höfund, nokkurs
konar hugleiðsluverk sem hefði notið sín betur
í lokuðum sal en umferð gangandi fólks
truflaði svolítið áhrifin. Þá kom hið
skemmtilega Krummi þ.e. tvö íslensk
krummalög í þeirra frábæru útsetningu.
Rondo Caprizzioso var líka alveg ljómandi hjá
þeim. Þau ylja alltaf fallegu íslensku lögin hans
Jóns Nordal, Smávinir fagrir og Hvert örstutt
spor og flutningur Itríós var virkilega fallegur.
Tónleikunum lauk svo með hressilegum
Balkan Dance. Því miður voru ansi fáir félagar
úr harmonikufélögum landsins á þessum
tónleikum en þarna voru margir aðrir góðir
gestir og nutu vel.
Helga Kristbjörg, Jón Þorsteinn og Jónas
Ásgeir, hjartans þakkir fyrir frábæra tónleika
og bráðskemmtilegar kynningar á verkunum.
Elísabet Halldóra Einarsdóttirformaður Félags
harmonikuunnenda í Reykjavík
4