Harmonikublaðið - 15.09.2019, Page 7
Wpr
Bragi Hlíðberg
f. 26. nóvember 1923 - d. 14. maí 2019
Látinn er Bragi Hlíðberg, heiðursfélagi
Sambands íslenskra harmonikuunnenda
SIHU, á nítugasta og sjötta aldursári.
Bragi hefur aukið veg harmonikunnar hér
á landi meira en flestir aðrir og hann var
um áratugaskeið einn allra besti
harmonikuleikari Iandsins. Tónlistarferill
hans er líka ótrúlega langur og glæstur að
sama skapi, en nú eru rúm áttatíu ár síðan
hann hélt fyrstu einleikstónleika sína í
Gamla bíó 1939, þá aðeins fimmtán ára
að aldri.
Bragi byrjaði 10 ára gamall að spila, fyrst
á hnappaharmoniku en svo valdi hann sér
píanóharmoniku og hélt sig við þær síðan.
Ferill Braga er stórglæsilegur og hann var
öll þessi áttatíu ár mjög starfsamur sem
harmonikuleikari auk þess sem hann tók
virkan þátt í félagsstarfi hljóðfæraleikara.
Bragi sigraði í fyrstu harmonikukeppni
sem haldin var hér á landi 1939. Hann
var kosinn vinsælasti hljóðfæraleikari
landsins 1949 og fékk heiðursviður-
kenningu Norðmanna í Bergen 1987.
Hann var einn af stofnendum Félags
harmonikunnenda í Reykjavík og heiðurs-
félagi þess. Bragi var kosinn harmoniku-
leikari tuttugustu aldarinnar af áskrif-
endum blaðsins Harmonikan og fékk
heiðursviðurkenningu frá SIHU 2001
fyrir fórnfúst starf í þágu harmoniku-
tónlistar á íslandi. Hann var heiðursfélagi
SÍHU frá árinu 2011.
Bragi var alltaf áhugasamur um félagsstarf
íslenskra harmonikuleikara og sótti
harmonikumót á sumrin, ásamt Ingrid
konu sinni, fram á síðustu ár. Þau
ferðuðust um á hjólhýsinu sínu, síðast á
Landsmóti SIHU á Isafirði fyrir tveimur
árum. Hann spilaði um áratugaskeið með
hljómsveit FHUR allt fram yfir nírætt.
Auk þess að vera snillingur á harmonikuna
samdi hann fjölda laga og gaf út
hljómplötur og diska. Lagasmíðar hans
voru, eins og tónlist hans, fágaðar og
vandaðar. Hann var jafnvígur á danstónlist
og klassísk verk.
Við í stjórn Sambands íslenkra harmoniku-
unnenda söknum vinar í stað og minnumst
þessa hógværa og prúða snillings með
djúpri virðingu. Jafnframt sendum við
Ingrid konu hans og fjölskyldu þeirra
hugheilar samúðarkveðjur.
Fyrir hönd stjórnar SIHU,
Filippía Sigurjónsdóttir, formaður
Lítilldtur, Ijúfur og kátur
leik þér ei úr máta.
Varastu spjátur, hœðni, hlátur
heimskir menn sig státa.
Það er líkt og mannkostamaðurinn Bragi,
hafi tamið sér að fara eftir heilræðum
Hallgríms Péturssonar. Við sem þekktum
Braga vel fundum að þar fór einstaklega
hógvær maður. Vandvirkni var hans
höfuðdyggð og handlagni hans vakti
aðdáun margra. Hann taldi aldrei eftir sér
að leika á harmonikuna í útilegum og
víðar. Margir muna eftir honum og
Flemming Viðari Valmundssyni, núna
einum efnilegasta harmonikuleikara
Islands, í Árnesi, þegar Flemming var 9
ára og Braga langaði til að þeir spiluðu
saman. Flemming sagði þá við meistarann:
„Hvað kanntu?“ Eg held við gleymum
aldrei brosinu hans Braga þá. En um leið
og Bragi er nefndur þá er Ingrid líka á
staðnum með gítarinn eða að mála. Ingrid
taldi ekki eftir sér að keyra eins og
herforingi með hjólhýsið þeirra.
Og af mörgum sumarútilegum er ein
sérstaklega minnistæð, á Breiðamýri 2001.
Þar voru Bragi, Ingrid, Grettir Björnsson
og Erna kona Grettis og fleiri góðir félagar.
Við bjuggum til torg á miðju svæðinu og
Hilmar Hjartarson nefndi þetta Stjörnu-
torgið. Þetta var alveg einstök upplifun.
Ingrid skrautmálaði, Bragi og Grettir
spiluðu og Erna hlustaði með okkur
hinum. I Harmonikublaðinu eru margar
greinar um Braga en hann ritaði mjög góða
og þarfa grein í 3. tbl. 1998-1999 m.a.
um „sjöundarsýki" þ.e. tilhneigingu
manna að spila sjöund í harmoniku-
bassanum þegar spila ætti dúrhljóm. Þetta
er ekki ósvipað því og er haft á orði um
íslenskuna að rita frekar einfalt i ef fólk er
í vafa, heldur en ypsílon. Árið 2000 var
Bragi valinn harmonikuleikari aldarinnar
1900-2000. Bragi samdi mikið af góðum
lögum sem komið hafa út í hefti, á plötum
og síðar á geisladiskum auk þessa hefur
hann leikið mörg vel valin lög. Bragi var
gerður að heiðursfélaga Félags harmoniku-
unnenda í Reykjavík (FHUR) þegar hann
varð sjötugur. Hann var alltaf tilbúinn að
styrkja hljómsveit FHUR. Hljómsveitin
hefur haft unun af að leika lögin hans,
m.a. í níutíu ára afmælisveislu Braga.
Ég undirrituð varð þess heiðurs aðnjótandi
að Bragi lék á harmoniku í 50 ára afmæli
mínu ásamt Gretti og fleirum.
Ég hitti Braga síðastliðið vor og sagði
honum að ég væri að æfa tvö lög eftir hann,
þ.e. lögin Dansað á þorranum og I
Húsafellsskógi og ég ætlaði að spila þau
fyrir hann þegar ég væri orðinn nógu vel
æfð. Ég hafði orð á hvað mér fyndist þau
vel samin og góðar fingraæfingar og þá
sagði Bragi: „þú hefur greinilega skilið að
þetta var einmitt tilgangurinn með
lagasmíðunum mínum.“ Ég vona að hann
heyri í mér í Sumarlandinu þar sem þeir
Grettir og fleiri stilla saman nikkurnar
sínar.
Margt höfum við upplifað saman og allar
minningarnar munu geymast og verða
rifjaðar upp. Við kveðjum með söknuði
og þakklæti, þennan ljúfling.
Við félagarnir í FHUR sendum okkar
dýpstu samúðarkveðjur til Ingridar og
allrar fjölskyldunnar. Minningin um
meistarann Braga Hlíðberg mun lifa.
Elísahet Halldóra Einarsdóttir
formaður FHUR
7