Harmonikublaðið - 15.09.2019, Síða 8
Skagfirðingar héldu sitt árlega harmonikumót
um Jónsmessuhelgina að Steinsstöðum.
Margir voru mættir á fimmtudeginum,
vongóðir um að veðrið yrði ásættanlegt. Ekki
höfðu veðurguðirnir sýnt Norðlendingum
neina linkind fram að þessu, en nú sýndu þeir
á sér skárri hliðina. I það minnsta varð Friðriki
Steingrímssyni að orði á föstudeginum.
Sumarið örlítinn sýnir nú vott,
sólkerfið tilþess er hannað.
Veðrið að heita má helvíti gott,
efhafgolan fitri eitthvað annað.
Dansleikur föstudagsins hófst á tilsettum tíma
þegar Geirmundur Valtýsson hóf upp raust
sína og var strax ljóst að ekki yrði slegið slöku
við. Fólk flykktist út á gólfið og dansaði sem
aldrei fyrr. Eftir rúman klukkutíma var svo
Aðalsteinn Isfjörð mættur til að leysa af og átti
ekki í vandræðum með að halda dönsurunum
á gólfinu. Geirmundur lauk svo ballinu þegar
nóg var komið að flestra mati. Laugardagurinn
heilsaði heiður og tær eins og einhvers staðar
sagði. Nú var komið að dagskrá, sem fram að
þessu hefur samanstaðið af tónleikum ungra
tónlistarmanna í Skagafirði, gamanmálum og
kaffihlaðborði. Allt var þetta á vísum stað að
vanda. Tónleikarnir hófust með leik tveggja
áungra hamonikuleikara úr Skagafirði, þeirra
Arnars Freys Guðmundssonar og Guðmundar
Smára Guðmundssonar. Þátókvið Matthildur
Ingimarsdóttir, 10 ára söngkona, ásamt móður
sinni Margréti Olafsdóttur, sem lék undir á
píanó. Samkomugestir sátu agndofa og þetta
Þa3 er lengra á milli þessara að öllu jöfnu. Ómar
Skarphéðinsson í Neskaupstað ogAstvaldur Guðmundsson
á Núpi í sumarbliöu í SkagafirÖi
var bara byrjunin. Hún söng það sem eftir var
með ungum gítarleikara Sæþóri Hinrikssyni
og þau slógu í gegn. Einlægur söngur þessarar
ungu stúlku heillaði áheyrendur upp úr
skónum. Það verður gaman að fylgjast með
henni í framtíðinni. Þá var komið að þeim
Finni Héðni Eiríkssyni og Isak Agnarssyni á
harmonikur. Er vonandi að þeir haldi áfram
í framtíðinni. Þá kvaddi sér hljóðs Atli
Gunnar Andrésson verkfræðingur, með sinn
pistil af kostulegum Skagfirðingum, en á þeim
er enginn skortur í þessum landshluta. Voru
nú hláturtaugar áheyrenda teknar til kostanna.
Dagskránni lauk á mjög eftirminnilegan hátt
þegar harmonikuhljómsveit fimm ungra
Skagfirðinga hóf leik. Var þetta mjög svo
óvænt, en gríðarlega skemmtilegt. Voru ungu
mennirnir klappaðir upp að lokum.
Kökuhlaðborð tók nú við og var því gerð góð
skil. Eftir grill og útispil í blíðuveðri, sem nú
átti leið hjá, hófst laugardagsballið. Sem fyrr
var það Geirmundur Valtýsson sem reið á
vaðið, en var fljótlega leystur af þegar
frændurnir Aðalsteinn ísfjörð og Stefán
Gíslason tóku við. Næst var komið að
Miðhúsagenginu, því Jón Gíslason í
Miðhúsum og dóttir hans Guðrún Helga tóku
yfir ballið ásamt Stefáni Gíslasyni og var nú
kominn galsi í mannskapinn. Geirmundur
lauk svo ballinu fagmannlega. Mótið fór hið
besta fram og voru gestir almennt ánægðir.
Sérstaklega lét fólk í ljósi ánægju með
tónleikana. Friðjón - Myndir: Siggi Harðar
Hljómsveitin sem sló ígegn á tónleikunum á Steinsstöðum. Fv. Óskar Stefánsson píanó, Þröng áþingi á iaugardagskvöidió
MagnúsJóhannsson hassi, Indriði Ægir Þórarinsson gítar, Guðmundur Smári Guðmundsson
trommur ogArnar Freyr Guðmundsson harmonika
Erlingur, Bjarki og Ingimar stilla saman
Allt með ró og spekt i Argarði
8