Harmonikublaðið - 15.09.2019, Page 13
i
i
GlaShlakkalegir Héraðsbúar á sviðinu að Ýdölum. Fv. Guðlaugur Sœbjörnsson, Jón Sigjusson, Þaðþurfti ekki að hvetja fólkið í dansinn
Gylfi Björnsson ogjónas Þór
sinni. Dagskránni lauk síðan með leik
stórsveitar FHUE og fór ekki milli mála að
þar hefur fólk tekið hlutina alvarlega undir
stjórn hins frábæra Norðmanns, Roars Kvam.
Tónleikunum lauk um hálf fimm leytið og
fannst einhverjum þeir í það lengsta, en góðir
voru þeir. A meðan á dagskránni stóð seldu
mótshaldarar happadrættismiða af miklum
móð og má segja að slegist hafi verið um
miðana, slíkur var áhuginn og fengu færri en
vildu. Að sjálfsögðu hélt Smári gjaldkeri utan
um fjársjóðinn og var að koma honum á
tryggan stað, þegar tjaldstag hljóp í veg fyrir
hann. Við það hrasaði Smári og missti
peningabaukinn. Þá orti Friðrik
Víða jjúka seðla sé
og svífa úr auraskrínum.
Heldur illa helst á fé
honum Smára mínum.
Laugardagskvöldið hófst með því að dregið
var í happadrættinu. Það var svo Einar
Guðmundsson sem hóf ballið og dró ekki af
sér. Fljótlega bætdst Alli Isfjörð við og fjörið
tók yfir, enda þeir félagar margreyndir í því
að koma fjöri af stað. Það var svo hið sívinsæla
Strákaband sem tók við af þeim. Ekki vafðist
fyrir þeim að halda hjörðinni á sínum stað og
dansinn dunaði. Hildur Petra lauk svo þessu
stórskemmdlega balli á þriðja tímanum um
nótdna. Eins og sést á þessari lesningu komu
fjölmargir harmonikuleikarar fram í Ydölum,
en ekki má gleyma þeim sem aðstoðuðu við
að halda taktinum á sínum stað.
Gítarleikararnir Haukur Ingólfsson, Pálmi
Björnsson, Birgir Karlsson og Guðlaugur
Sæbjörnsson. Bassaleikararnir Eiríkur Bóasson
og Arni Anton Þorvaldsson. Trommararnir
Árni Ketill Friðriksson og Magnús Kristinsson.
Skemmtilegu harmonikumóti var lokið og
fólk kvaddist við brottför £ 20 stiga hita á
sunnudeginum.
Friðjón Hallgrímsson
Myndir: Siggi Harðar
r
I
I
Gististaðir í Stykkishólmi vegna landsmóts SÍHU 2. - 5. júlí 2020
• Fosshótel, Borgarbraut 8, Stykkishólmi, sími 430 2100, stykkisholmur@fosshotel.is
• Hótel Breiðafjörður, Aðalgötu 8, Stykkishólmi, sími 433 2200, info@hotelbreidafjordur.is
• Hótel Egilsen, Aðalgötu 2, Stykkishólmi, sími 554 7700, booking@egilsen.is
• Hótel Fransiskus, Austurgötu 7, Stykkishólmi, sími 422 1101, fransiskus@fransiskus.is
• Harbour Hostel, gistiheimili, Hafnargötu 4, Stykkishólmi, sími 517 5353, info@harbourhostel.is
• Syslo guesthouse, Aðalgötu 7, Stykkishólmi, sími 554 7700, booking@egilsen.is
• Heimagisting Ölmu, Sundabakka 12, Stykkishólmi, sími 438 1435/848 9833 almdie@simnet.is
• Akkeri guesthouse, Frúarstíg 1, Stykkishólmi, sími 844 1050 akkeri@simnet.is
• Heimagisting Langey, Víkugötu 5, Stykkishólmi, sími 898 1457 booking.com
• Gisting Höfðagötu 11 gisting B&B, Stykkishólmi, sími 831 1806 booking@egilsen.is
• Farfuglaheimilið Sjónarhóll, Höfðagötu 1, Stykkishólmi, sími 438 1417
• Smáhýsi Vatnsási 10, Stykkishólmi, sími 868 3932, ejkab@simnet.is
• Orlofshús VR, Víkurgötu 2, Stykkishólmi
• Orlofshús Eflingar og BHM við Laufásveg
• Orlofshúsin við Laufásveg, sími 899 1797
• Helgafell 2 guesthouse, Helgafelli, sími 861 6290, Iara84@simnet.is
• Helgafell farmhouse, Helgafelli, sími 867 0790, booking.com
Pantiðtímanlega
því Stykkishólmur
er vinsæll
ferðamannastaður
J
13