Harmonikublaðið - 15.09.2019, Qupperneq 14

Harmonikublaðið - 15.09.2019, Qupperneq 14
Harmo .■il.. 1' Tifi i ( ■ ■/■ir'lf Harmonikuunnendur í Húnavatnssýslum og Nikkólína úr Dölum héldu sína árlegu harmonikuhátíð í Asbyrgi á Laugarbakka í Miðfirði helgina 14.-16. júní í sumar. Þetta er orðinn fastur og ómissandi liður, heilmikil vinna en allt unnið í góðu samstarfi félaganna, svo er þetta bara svo skemmtilegt og ekki spillir þessi frábæri félagsskapur. Föstudagurinn heilsaði okkur bjartur og fallegur, sólríkur en óneitanlega ekki of mikill lofthiti, það andaði eiginlega smáköldu. En það hefur engin áhrif á sanna harmonikuunnendur og tjaldstæðið fyiltist óðfluga, hvert glæsihýsið af öðru og fagnaðarfundir þegar vinir hittust komnir víða að og skemmtilegir dagar framundan. Fyrr en varði mátti heyra harmonikutóna hljóma á svæðinu og þannig á þetta einmitt að vera. Það var stórsveit Nikkólínu sem spilaði fyrir dansi á föstudagskvöldið frá klukkan níu til eitt. Hljómsveitina skipuðu að þessu sinni á harmoniku Halldór Þ. Þórðarson stjórnandi sveitarinnar, Steinþór Logi Arnarsson, Kristján Ingi Arnarsson, GuðbjarturA. Björgvinsson, Ragnar Ingi Aðalsteinsson, Sigvaldi Fjeldsted, Ingimar Einarsson, Jóhann Elísson, Asgerður Jónsdóttir, Melkorka Benediktsdóttir, Sigrún Halldórsdóttir og Kristján Olafsson, sem spilaði reyndar bæði á harmoniku og saxófón. Á gítar var Hafliði Ólafsson, á bassa Kristinn Valdimarsson og við trommurnar sat Ingvar Bæringsson. Jóhann Ríkarðsson okkar ágæti trommuleikari veiktist alvarlega í vetur og þegar ljóst var að hann gæti ekki spilað með hljómsveitinni í þetta sinn fengum við Ingvar til að bjarga málum sem hann gerði með glæsibrag. Hátíðin og dansleikurinn hófst kl. 21:00 og allt var sett á fullt og ballgestir teknir til kostanna. Dansgólfið fylltist eins og hendi væri veifað. Það var dansað, spilað og sungið af miklum móð. Þegar mestu hraustmennin á gólfinu tóku vel undir í lögum lá við að þakið lyftist af húsinu, enda vel tekið á því. Svo kom Númi Adolfsson og tók lagið með Nikkólínu, næst verðum við búin að æfa lögin hans. Og þannig leið kvöldið, alveg rífandi stemming allt fram til klukkan eitt. Þá þökkuðum við öllum góða mætingu og frábært ball og að lokum sungu svo allir viðstaddir saman af hjartans lyst Undir Dalanna sól og fleiri ættjarðarlög, áður menn röltu út í sumarnóttina til að halda gleðinni áfram eða taka á sig náðir. Já það er ekki hægt að segja annað en að þetta verður bara skemmtilegra með hverju árinu. Laugardagurinn rann svo upp bjartur og fagur. Menn tóku það rólega framan af, það var spjallað og spilað á útisvæðinu, þar myndast stundum heilu hljómsveitirnar og lagavalið fjölbreytt. Skemmtidagskráin hófst kl. 14. Melkorka bauð gesti velkomna og flutti kveðju frá Svenna Sigurjóns sem að þessu sinni var fjarri góðu gamni vegna veikinda. Fyrstur á svið var Þorvaldur Pálsson á Ytra- Bjargi með tríó að þessu sinni, það skipuðu auk hans, Sveinn Kjartansson æðarbóndi á Króksá og Einar Friðgeir Björnsson frá Bessastöðum. Þeir byrjuðu á lagi eftir Þorvald, síðan kom Blíðasti blær eftir Óðinn G. Þórarinsson, þá lag eftir Arnstein Johansen og að lokum You are my sunshine/Vertu sæll ég kveð þig kæri vinur. Aukalag var svo Káta Víkurmær. Skemmtilegt tríó, en þess má geta að Þorvaldur hefur verið með tónlistaratriði á Laugarbakkahátíðinni á hverju ári við mjög góðar undirtektir. Þá lék Einar Friðgeir 2 lög, eftir Frosini og Sundquist, eftir uppklapp spilaði hann svo Kenndu mér að kyssa rétt, sagði það vera Fagnaðarfundir á Laugarbakka Dansað af miklum móð, er þaðpolki eða rœll Og dansinn dunar enn, Nikkólína á sviðinu á fóstudagskvöldið í fullmiklu sviðsljósi, eiginlega blindandi 14 Þrir góðir taka lagið saman alveg klingjandi flottir. Jón Helgi Jóhannsson, Kolbeinn Erlendsson og Grétar Þorsteinsson

x

Harmonikublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.