Harmonikublaðið - 15.09.2019, Qupperneq 16
Sólveig ai undirbúa kaffihlaðborðið, það dtti enn eftir að bata miklu d borðið Hildur Petra, Guðný Kristín ogfélagar á fullri ferð, Sör Sigfiís
fullt af dansunnendum í miklu stuði. Þegar ballið var hálfnað var
tekið hefðbundið hlé til að draga í happdrættinu, en þar var eins og
venjulega fjöldi góðra vinninga. Friðjón sá um dráttinn og gætti
„jafnræðis“ í útdeilingu vinningsmiða. Merkilegt hvað sumir þurfa
oftar að sækja vinninga en aðrir. Þegar lukkulegir vinningshafar voru
búnir að sækja happafenginn til Melkorku og Sólveigar hófst ballið
aftur og var dansað af lífx og sál fram til kl. 1 þegar skemmtunin og
frábært ball endaði með fjöldasöng að vanda.
Sunnudagurinn rann svo upp einstaklega hlýr og fagur, þannig að
mönnum lá ekkert á heim, en nutu frekar veðurblíðunnar í góðum
félagsskap og nikkan hljómaði áfram um svæðið.
Þetta samstarf Húnvetninga og Nikkólínu hefur gengið afskaplega
vel og því engin ástæða til breytinga. Sólveig formaður HUH
tilkynnti í lok hátíðar að búið væri að ákveða harmonikuhátíðina í
Ásbyrgi á sama tíma að ári. Og þá er bara að taka frá helgina og
skemmta sér með okkur, allir velkomnir og hittumst hress og kát
að vanda!
SBH - Myndir Siggi Harðar
Það var dansað á fullu allt kvöldið, stundum þröng á þingi
firði var haldinn
Ekrunni á Höfn þar sem
sem átti harmonikur kom saman
og tók lagið. Elstur í hópnum
var Ragnar Arason frá Borg
ríflega níræður. Félag harmo-
nikuunnenda á Hornafirði sá um
daginn sem tókst mjög vel.
Boðið var upp á súpu og brauð.
Með bestu kveðju,
Haukur Helgi
Myndir Haukur Helgi
Nokkrirfélagar á Homafirði. Formaðurinn Hrefna Magnúsdóttir lengst til vinstri Aldursforsetinn Ragnar á Borg
16