Harmonikublaðið - 15.09.2019, Side 17
Starfsemi Harmonikufélags Héraðsbúa hefur
verið með hefðbundnum hætti síðasta starfsár.
Félagið hefur verið í samstarfi við félag eldri
borgara á Héraði og hefur það samstarf orðið
til þess að dansæfingar hafa verið haldnar í
félagsaðstöðu eldri borgara, Hlymsdölum,
einu sinni í mánuði og hafa þessar dansæfingar
verið vel sóttar. Félagið tók þátt í
Harmonikudeginum að venju og fóru félagar
í fyrirtæki og stofnanir og spiluðu þar í um
það bil eina klukkustund og var því vel tekið
af viðskiptavinum að því virtist þó að líklega
hafi þetta vakið mesta gleði hjá vistmönnum
Dyngju á Egilsstöðum. Arlegur ágústdansleikur
félagsins var haldinn í Valaskjálf laugardaginn
31. ágúst og var hann vel sóttur að venju en
sérlega ber að fagna árlegum heimsóknum
félaga úr Harmonikufélagi Þingeyinga og
Félagi harmonikuunnenda við Eyjafjörð. Að
þessu sinni heiðraði formaður S.I.H.U.
Filíppía Sigurjónsdóttir okkur með nærveru
sinni. Félagar í Harmonikufélagi Héraðsbúa,
Sveinn Vilhjálmsson, Jón Sigfússon og Gylfi
Björnsson spiluðu fyrir dansi ásamt gestum
sem voru að þessu sinni harmonikusnillingarnir
Aðalsteinn Isfjörð og Einar Guðmundsson.
Undirleikarar voru Andrés Einarsson (gítar),
Pálmi Björnsson (gítar), Ragnar Eymundsson
(trommur) og Jónas Þór (bassaharmonika)
Dansleikurinn fór vel fram en spilað var frá
kl 21:00 dl 01:00.
Á aðalfundi félagsins kom upp sú hugmynd
hvort félagið ætti að bjóðast til að halda
aðalfund Sambands ísienskra harmoniku-
unnenda í haust og því máli var vísað til
stjórnar til skoðunar og ákvörðunar.
Niðurstaða stjórnar var að þetta skyldi gert og
unnið hefur verið að undirbúningi fram til
dagsins í dag og nú styttist í fundinn en hann
verður haldinn í Hótel Valaskjálf dagana 27.
til 29. september næstkomandi. Staða mála
nú er að flest aðildarfélög S.I.H.U. hafa skráð
sína formenn og fulltrúa og nú hefst vinna við
lokaundirbúning fundarins. Félagar í HFH
hlakka til að sjá ykkur sem flest á aðalfundi
S.I.H.U. á næstu dögum og munu reyna eftir
föngum að gera dvöl ykkar ánægjulega.
Með kveðju að austan.
Jón Sigfússon formaður H.F.H.
Myndir: Siggi á Sandi
Pdlmi Björnsson, Ragnar Eymundsson, Alli Isjjörð, Einar Guðmunds og Jónas Þór, allt vanir menn
Kokkurinn var ad sjálfsögðu nmttur í Valaskjálf
Andrés Einarsson, Jón Sigfusson, Ragnar Eymundsson, Sveinn Vilhjálmsson ogjónas Þór í Valaskjálf
Munið myndasíðuna á netinu: www.harmoniku-unnendur.com
17