Harmonikublaðið - 15.09.2019, Side 21

Harmonikublaðið - 15.09.2019, Side 21
I tilefni af komandi landsmóti barmoniku- unnenda á næsta ári, efndi Félag harmoniku- unnenda í Reykjavík til samkeppni um lands- mótslag. Sigurvegari varð Vigdís Jónsdóttir, sem harmonikuunnendum er að góðu kunn fyrir leik sinn á dansleikjum með Hildi Petru Friðriksdóttur og einnig hefur hún undanfarin ár spilað talsvert með tónlistarmanninum og trúbadornum Halla Reynis. Vigdís fékk harmoniku í fertugsafmæligjöf frá manni sínum og byrjaði fljótlega eftir það að læra á hljóðfærið. Aður hafði hún aldrei snert á þessu hljóðfæri en hafði lært á píanó í 2-3 ár sem unglingur og það hjálpaði henni að vita hvað nóturnar hétu á píanóborðinu. „Eg varð eiginlega srrax nokkuð hugfangin af þessu hljóðfæri og langaði virkilega til að ná tökum á því“ segir Vigdís. Hún hefur undanfarin 12 ár sótt einkatíma í harmonikuleik hjá góðum kennurum auk þess að taka stök námskeið í tónfræði og hljómfræði. Hún hefur ekki farið í formlegt tónlistarnám í tónlistarskóla en tók grunnpróf í harmonikuleik síðastliðið vor með aðstoð Guðmundar Samúelssonar. Hún stefnir að því að raka miðstigið eftir 2-3 ár. Aðspurð um tónlistaráhuga og hljóðfæraiðkun á heimili sínu segir Vigdís að píanó hafi verið keypt inn á heimilið þegar hún var unglingur og hún lærði á það í 2-3 ár. „Mamma hlustaði mikið á tónlist og tveir bræður mínir hafa einnig verið mikið í tónlist, spilað á gítar, sungið og samið lög. Ég lét mér hins vegar nægja lengi vel að syngja í kórum og hlusta á tónlist en langaði samt alltaf að gera eitthvað meira. Tónlist hefur þannig alltaf skipt mig miklu máli en ég fór ekki að læra á hljóðfæri af neinu viti fyrr en ég fékk mína fyrstu harmoniku og þá er ég komin á fimmtugsaldur. Nokkuð seint, en í raun þá er aldrei neitt of seint í lífinu, maður á bara að láta slag standa og gera það sem mann langar til ef möguleiki er á því. Harmonikan hefur gefið mér ótrúlega mikið, ég hef fengið mörg tækifæri til að spila með frábæru fólki og taka þátt í skemmtilegum viðburðum bæði hérlendis og erlendis og fyrir það er ég mjög þakklát“ segir Vigdís. Hún vill ekki gera mikið úr tónskáldinu Vigdísi Jónsdóttur, en hefur þó samið nokkur lög, mest fyrir skúffuna enn sem komið er. Vigdís starfar sem framkvæmdastjóri VIRK — Starfsendur- hæfingarsjóðs og hefur byggt þá starfsemi upp frá grunni á síðustu 11 árum. Fisitalia Hágæða harmonikur á góðu verði 21

x

Harmonikublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.