Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 13

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 13
Landsfundur 1981 Leiöin til bættra lífskjara - stefnan í atvinnumálum Aukin þjóðarframleiðsla Mikilvægasta verkefni þjóðarinnar í atvinnumálum á næstu árum er að bæta Iífskjör, veita atvinnu því unga fólki, sem kemur inn á vinnumarkaðinn og auka framleiðslu þjóðarbúsins, svo að tryggja megi afkomu hvers einasta íslendings. Þannig verður að stöðva flótta fjölda ís- lendinga til annarra landa í atvinnuleit í von um betri lífskjör fyrir sig og fjöl- skyldur sínar. Sá flótti hefur hafist fyrir alvöru á allra síðustu árum samhliða stöðnun í atvinnumálum. Þeirri stöðnun er hvorki að kenna atorkuleysi hjá þjóð- inni né skorti á verðmætum auðlindum í landinu, heldur ofstjórn og fyrirhyggju- leysi stjórnvalda. Framsýnum og djörfum aðgerðum viðreisnarstjórnar og stjórnar Geirs Hallgrímssonar í atvinnumálum hefur ekki verið fylgt eftir og afleiðingarnar eru nú farnar að koma í ljós í versnandi lífskjörum samanborið við nágranna- löndin. Þjóðin þarf að súpa seyðið af aftur- haldssamri vinstristefnu síðustu ára og nú keyrir um þverbak, þegar sjávarút- vegurinn er markvisst hrakinn í taprekst- ur undir merki svonefndrar núllstefnu og þannig gengið að íslenskum iðnaði, að við blasa uppsagnir starfsfólks og lokun fyrirtækjanna. Á sama tíma ríkir að- gerðarleysi í orkumálum og þessi mikil- væga auðlind þjóðarinnar er ekki notuð til að styrkja undirstöður atvinnulífsins. Sjálfstæðisflokkurinn telur, að brýn þörf sé á tvenns konar aðgerðum til að auka atvinnu og bæta lífskjör hér á landi og stöðva landflóttann án frekari dráttar. Annars vegar þarf víðtækar aðgerðir til þess að bæta starfsskilyrði atvinnuveg- unna, leysa úr læðingi atorku, hugvit og framtak einstaklinga og örva þannig atvinnustarfsemi. Hins vegar þarf að stórauka nýtingu orkulinda landsins, fyrst og fremst vatnsorkunnar, sem ennþá rennur að mestu ónotuð til sjávar °g byggja upp stóriðju til útflutnings og auka þannig atvinnu um land allt. Forsendur blómlegs atvinnu- lífs Þó að dregið hafi úr hagvexti hefur beint atvinnuleysi sem betur fer sneitt hjá garði á íslandi. Er það fyrst og fremst að þakka nokkrum grundvallarákvörð- unum í efnahagsmálum, sem teknar voru á tveimur síðustu áratugum undir forystu Sjálfstæðisflokksins og varða einkum starfsskilyrði atvinnuveganna. í fyrsta lagi voru innflutningshöft af- numin og Innflutningsskrifstofan lögð niður, komið á jafnvægi í viðskiptum við útlönd og gengisskráning við það miðuð að útflutningsatvinnuvegirnir og sam- keppnisgreinar gætu borið sig og starfað eðlilega, þannig að þjóðarframleiðsla fór vaxandi og full atvinna gat haldist. í öðru lagi voru fyrstu og erfiðustu sporin stigin á þeirri braut að nýta orku- lindir landsins í iðnaði til útflutnings. Virkjun Þjórsár hófst og álverið í Straumsvík og kísiliðjan við Mývatn risu. í þriðja lagi voru gerðir samningar um óheftan og tollfrjálsan aðgang flestra íslenskra afurða að Evrópumarkaði, en það hefur mikið gildi bæði fyrir sjávar- útveg og landbúnað og er forsenda upp- byggingar iðnaðar til útflutnings. I fjórða Iagi hafðist fram útfærsla auð- lindalögsögunnar í 200 mílur og endur- reisn helstu fiskistofna, en það er aftur undirstaða uppbyggingar sjávarútvegs- ins. Með þessum aðgerðum voru atvinnu- vegunum sköpuð hagstæð skilyrði til þess að starfa við. Er auðvelt að ímynda sér hvernig ástandið væri nú í atvinnu- málum hér á landi, ef úrtölumenn í Alþýðubandalagi og Framsóknarflokki hefðu fengið að ráða og ekkert af þessu verið framkvæmt. Þá væri hér nú ríkjandi alvarlegt atvinnuleysi og enn stórfelldari landflótti, sem haft hefðu ófyrirsjáanlegar þjóðfélagslegar afleið- ingar. Það er höfuðatriði, að haldið verði áfram að treysta þann grunn, sem þannig var lagður í atvinnumálum. Allir höfuð- atvinnuvegir þjóðarinnar landbúnaður, sjávarútvegur, iðnaður, verslun og þjónusta verða að fá að þróast og eflast í samræmi við kröfur tímans. Sjálfstæðis- flokkurinn telur eins og áður að það verði best gert með því að atvinnuveg- unum séu ætíð búin eðlileg starfsskilyrði, í smáum sem stórum fyrirtækjum og að almannavaldið sjái fyrir fjárfrekum þjónustumannvirkjum, sem nauðsynleg eru fyrir atvinnulífið. Jafnframt er nauð- synlegt að góð samvinna og samstarf sé ávallt milli samtaka atvinnuveganna, launþega og ríkisvaldsins. Atbeina almannavaldsins er þörf á stundum til að ná þjóðhagslegum markmiðum, svo sem hagkvæmri nýtingu sameiginlegra auð- linda lands og sjávar. Hinsvegar vill flokkurinn að atvinnuvegirnir fái að starfa án óþarfa íhlutunar og mismununar af opinberri hálfu og án þess að þeim sé íþyngt með álögum, sem erlendir keppi- nautar þeirra eru lausir við. Ef þessi s jónarmið hefðu verið höfð að leiðarljósi að undanförnu væru núverandi vanda- mál atvinnuveganna minni og auðleyst- ari en raun ber vitni. Sjálfstæðisflokkurinn Ieggur áherslu á grundvallarþýðingu rannsóknar- og þróunarstarfsemi atvinnulífsins í sókn til bættra lífskjara. Hann telur rétt að hvetja fyrirtæki til að auka slíka starf- semi með örvandi ákvæðum í skatta- lögum. Sjálfstæðisflokkurinn telur farsælast að atvinnurekstur hér á landi sé að sem mestu leyti í höndum innlendra einstakl- inga og samtaka þeirra. Aðild ríkisins og sveitarfélaga kemur þó til greina um stundarsakir þar til einkaaðilar hafa bol- magn til að taka við honum, þegar um er að ræða þjóðhagslega hagkvæma starf- semi sem ekki er grundvöllur fyrir með öðrum hætti. Svipuðu máli gegnir um þátttöku erlendra aðila í innlendum atvinnurekstri. Flokkurinn vill virkja þá atorku, sem í einstaklingnum býr, þjóðarheildinni til hagsbóta. Stjómmálamenn eiga ekki að segja einstaklingum fyrir verkum. Eðli- leg starfsskilyrði og frjálsræði í atvinnu- starfsemi ásamt jákvæðri afstöðu til við- fangsefna og vandamála, eru því heilla- vænlegasta framlag ríkisstjórna á hverjum tíma til að efla atvinnulífið í landinu. Hér mega stjórnvöld aldrei slaka á eða falla í freistni til að ná stundarávinningi á stjórnmálasviðinu á kostnað atvinnulífsins. Slík skammsýni er ávallt á kostnað framtíðaratvinnu og lífskjara almennings. Bætt starfsskilyrði atvinnu- veganna Megininntak stefnu Sjálfstæðisflokks-

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.