Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 16

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 16
Leiðin til bætlra lifskjaia Setningarfundurinn í Háskólabíói. atvinnuvegunum. Leiðir |)að jafnan til hallareksturs fyrirtækja. A þessu verður að ráða bót, áður en varanlegt tjón hefur af hlotist. Frjáls verslun - undirstaða velmegunar þjóðarinnar Verslun er upphaf og lokastig fram- leiðslunnar. Ekki má gleyma þeirri stað- reynd, að missir verslunarinnar úr Iandi árið 1262 Ieiddi til glötunar sjálfstæðis okkar. Viðskiptalegt sjálfstæði er því hymingarsteinn frjáls þjóðfélags. Á því sviði gegnir verslunin lykilhlutverki, ef hún nýtur jafnræðis á við aðra atvinnu- vegi. Vel reknum fyrirtækjum sé ekki refsað með upptöku hagnaðar. Atvinnufyrir- tækin þurfa að hagnast og fá að nýta þann hagnað til atvinnuuppbyggingar. Utrýma þarf þeim hugsunarhætti, að hagnaður eða ágóði sé af hinu illa. Sjálf- stæðisflokkurinn bendir á, að áratuga óhróður af hálfu vinstri aflanna hefur komið óorði á verslunina sem valdið hefur þjóðinni allri ómældum skaða og um leið tafið eðlilegar efnahagslegar framfarir. Koma þarf á frjálsari viðskiptum með erlendan gjaldeyri og tryggja versluninni frjálsan aðgang að erlendum vörukaupa- lánum í öllum vöruflokkum. Rýmka þarf heimildir til töku erlendra fjárfestingar- lána og heimila öllum bönkum verslun með erlendan gjaldeyri. Brýnt er að dugnaður einstaklinga fái að njóta sín í útflutningsversluninni, komið verði á nú- tímalegri verslunarháttum og horfið frá ríkjandi einokun, þar sem heilbrigð sam- keppni tryggir bestu verð og markaði á hverjum tíma. Tímabært er að endurskoða tollskrána með tilliti til samræmingar á tollaálög- um, þannig að skyldar vörur verði toll- aðar eins. Lækka þarf hæstu tolla, af- nema vörugjald og einfalda alla tollmeð- ferð og eftirlit. Heimila þarf gjaldfrest á greiðslu aðflutningsgjalda. Vakin skal sérstök athygli á því hættu- ástandi sem nú ríkir í innflutningsversl- un. Vörubirgðir í innlendri eigu eru nánast engar í landinu auk þess sem heildverslun hefur í stórum stíl flust á hendur erlendra aðila að nýju. Afnema þarf þá sérstöku skatta, sem lagðir eru á verslunina umfram aðrar atvinnugreinar. Sanngjarnt er, að þóknun sé greidd fyrir það mikla innheimtustarf, sem verslunin innir af hendi fyrir opinbera aðila. Með frelsi í verðmyndun og sam- keppni mun verða unnt að leysa þann vanda, sem dreifbýlisverslunin býr nú við. Iðnaður - vaxtarbroddur atvinnulífsins íslenskur iðnaður hefur tekið sér stöðu sem einn af undirstöðuatvinnu- vegum þjóðarinnar. Hann mun í vaxandi mæli taka við því hlutverki að vera vaxtarbroddur atvinnulífsins og ein helsta undirstaða aukinnar atvinnu og batnandi lífskjara þjóðarinnar. Við mikilvægar ákvarðanir í efnahagsmálum verður því að taka fullt tillit til hagsmuna hans, afkomu og atvinnuöryggis þeirra, sem í iðnaðinum starfa. Iðnaðurinn þarf að njóta jafnréttis um aðstöðu og starfs- skilyrði á öllum sviðum gagnvart öðrum innlendum atvinnugreinum og erlendum keppinautum. Nauðsynlegt er að iðnaður fyrir heimamarkað endurheimti sína fyrri stöðu og eflist frekar, en skilyrði þess er að hér á landi verði atvinnulíf í blóma, þjóðinni fjölgi eðlilega og sæmilegur stöðuleiki ríki í efnahagsmálum. Fyrir aðra undirstöðuatvinnuvegi landsins hefur sterkur iðnaður ómetanlega þýð- ingu, hvort sem litið er til mannvirkja- og vélaframleiðslu og þjónustu eða dag- legra nauðsynja. Þannig má minna á skipasmíðar og viðgerðir, smíði fisk- vinnslutækja og veiðarfæragerð í þágu útgerðar og fiskvinnslu. Rafeindatækni og örtölvur opna nýjar leiðir í iðnaði. Á því sviði eru framtíðar- möguleikar bæði hvað varðar fram- leiðslu fyrir innlendar þarfir og útflutn- ing. Stóraukin nýting jarðhita og vatns- orku hefur opnað nýja markaði innan- lands, sem iðnaðurinn sinnir í auknum mæli. Uppbyggingu stóriðju til útflutn- ings munu á sama hátt fylgja fjölbreytt iðnaðarverkefni í öllum landshlutum. Framleiðsla iðnaðarvöru til útflutn- ings hefur aukist meira en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Framleiðsla ullar- og skinnvöru er nú ein sér orðin mikil- vægur þáttur í þjóðarbúskapnum og veitir mikla atvinnu á fjölmörgum stöð- um á landinu. Annar útflutningur, sem á sama hátt byggir á sérhæfðri þekkingu og reynslu landsmanna, hugviti og verkhönnun er einnig óðum að hasla sér völl á erlendum mörkuðum. Lað væri hörmulegt, ef aðgerðir ísl- enskra stjómvalda yrðu til þess að erlendir markaðir, sem aflað hefur verið í harðri samkeppni við erlendan keppi- naut töpuðust. Höfuðnauðsyn er að eðlileg skilyrði og efnaleg hvatning séu ætíð fyrir hendi til þess að íslenskt hugvit og þekking og sérstök hráefni nýtist til atvinnuupp- byggingar. Hér hafa einstaklingsframtak og lítil fyrirtæki sérstöku brautryðjanda hlutverki að gegna þjóðarheildinni til hagsbóta. Sjálfstæðisflokkurinn telur jafnframt að nú séu hagstæð skilyrði til þess að nýta orkulindir þjóðarinnar í stórum stíl til iðnaðar víða um land eins og gerð hefur verið grein fyrir hér að framan.

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.