Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 7

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins - 01.11.1981, Side 7
Landsfundur 1981 þess hefur á Vesturlöndum verið unnt að tryggja félagslegt öryggi og samhjálp betur en nokkru sinni áður í sögu mann- kyns, Þessi þróun hefur átt sér stað hér á landi ekki síður en annars staðar og Sjálf- stæðisflokkurinn hefur staðið þar í farar- broddi og því forystuhlutverki er skylda hans að halda. En forsenda þess er að undirstaðan sé réttilega fundin, að fram- leiðsla og framleiðni, hagvöxtur haldist, svo að meira sé til skiptanna með fjölg- andi þjóð, ella brestur flótti á lið lands- manna. Við verðum fyrst að afla, áður en við eyðum. Því ber ekki að neita að á þeim vandamálum ber meðal vestrænna ríkja, að velferðarríki eru á villigötum, eins og fram kemur í nýútkominni bók Jónasar Haralz, vegna þess að of mikið er tekið af framleiðslunni og verðmætasköpuninni til sameiginlegra þarfa, að umsvif og frjáls samskipti einstaklinga eru skert og færð hinu opinbera í hendur. Afleiðingin hefur annars vegar orðið sú, að hagvöxt- ur hefur staðnað, en það sem verra er, að fjármunir þeir, sem fara um hendur ríkis- ins rýrna og þjónusta hins opinbera kemst ekki nema að hluta til skila þótt skattaálögur þyngist og kostnaður vaxi. Hér verður að leita nýrra leiða, ekki með því að draga úr samhjálp og félagslegu öryggi heldur með því að gera meiri kröfur til árangurs og nýta kosti ábyrgðar og framtaks einstaklinga og samtaka þeirra, sem mest er að þakka sú verð- mætasköpun og framleiðsluaukning sem félagsleg samhjálp byggist á. Hættan er sú, sem jafnvei þróunin hér á landi leiðir í ljós, að því meiri verkefni sem ríkið tekur til sín, þeim mun meira vald hafa stjórnarherrarnir yfir borgur- unum, ákvörðunarvaldið flyst frá ein- staklingunum til hins opinbera, frá héruðum til höfuðborgar, frá sveitar- stjörnum til ríkisstjórnar. Atleiðingin er sú, að í stað þess að maðurinn sjálfur sé í öndvegi, þá er hann týndur og villtur í kerfinu og fær ekki notið sín í lífi og starfi. Þessari þróun verður Sjálfstæðis- flokkurinn að snúa við. Sáttaviðræður Öllum er kunnugt um, að fram hafa farið viðræður milli formanns Sjálf- stæðisflokksins og stjórnar þingflokks annars vegar og ráðherra úr Sjálfstæðis- flokknum og Eggerts Haukdal hins vegar til þess að leita samkomulags meðal sjálf- stæðismanna eftir þann ágreining, sem upp kom vegna myndunar núverandi ríkisstjórnar, stefnu hennar og starfa. Tillögur þessa efnis komu fram á báðum þeim flokksráðsfundum ásíðasta ári,, sem lýstu ákveðinni stjórnarand- stöðu. Tillögur þessar voru ekki sam- þykktar en vísað til miðstjórnar og þing- flokks. Ég hét því að beita mér fyrir sam- komulagstilraunum og ég tel mér skylt að skýra landsfundarfulltrúum frá því í höfuðatriðum, hvernig málin standa. Við stjórnarandstæðingar höfum haldið því fram, að til þess að ná sam- komulagi verði að komast fyrir rætur ágreiningsins, mismunandi afstöðu til ríkisstjórnar. Við höfum lagt áherslu á, að slíkt samkomulag yrði að komast á sem fyrst, fyrir sveitastjórnakosningar og í allra síðasta lagi fyrir næstu alþingis- kosningar. Við höfum aðeins heyrt þá yfirlýsingu að núverandi ríkisstjórn ætlaði sér að sitja út kjörtímabilið og ekki fengið upp- lýst, hvað menn hugsuðu sér að þá tæki við. Stjórnarsinnar hafa borið fyrir sig að þeir teldu ágreininginn einnig snúast um stefnumál almennt, um ályktanir þings SUS í skipulagsmálum og um forystumál flokksins. Ég skal ekki vera fjölorður um álykt- anir þings SUS í skipulagsmálum. Ég hef áður lýst því yfir, að ég get ekki fallist á þær óbreyttar. Ég bæti því og við að við sjálfstæðismenn ætlumst fyrst og fremst til að leikreglum sé fylgt án þess að viður- lög séu sett. Við höfum orðið fyrir biturri reynslu og miklum vonbrigðum. Það er ekki óeðlilegt að ungir menn sem eldri bregðist við og íhugi, hvemig koma megi í veg fyrir að sagan endurtaki sig, en við skulum í þessum efnum gæta þess að engar reglur geta verið afturvirkar og leitast við að halda samkomulagsleiðum opnum. Framboð mitt Stjórnarsinnar segja, að ágreiningur sé um forystu Sjálfstæðisflokksins. Það er öllum augljóst. Þeir frambjóðendur, sem fram eru komnir við formanns- og varaformannskjör sýna það svo ekki verður um villst. En það er ekki okkar að ná sáttum eða samkomulagi um kjör for- manns og varaformanns. Það er lands- fundarins sjálfs að kveða upp úr um það. En þá er eðlilegt að menn spyrji: Hvers vegna gef ég kost á mér á ný til for- mennsku í Sjálfstæðisflokknum? Sagt hefur verið, og undir það tek ég af hjartans sannfæringu, að enginn maður sé merkilegri en Sjálfstæðisflokkurinn og hugsjónir sjálfstæðismanna. Andstæðingar okkar í öðrum flokkum hafa sérstaklega beint skeytum-sínum að mér sem formanni flokksins og séð sér hag í því að ráðleggja sjálfstæðismönn- um að skipta um formann. Ég tel hat- rammar árásir andstæðinga okkar mér til lofs. Forverar mínir sem formenn Sjálf- stæðisflokksins hafa og orðið slíks heiðurs aðnjótandi. Andstæðingar hafa fyrr ætlað sér að fella formann Sjálf- stæðisflokksins, en ekki tekist. Sjálf- stæðismenn velja sína eigin forystu- menn. En þess eru dæmi úr öðrum ísl- enskum stjórnmálaflokkum, að þeirhafa látið andstæðinga sína segja sér fyrir verkum og það hefur ekki orðið þeim til fylgisaukningar. Þeir sjálfstæðismenn, sem nú hafa tekið saman við höfuðandstæðinga okkar í ríkisstjórn gegn vi)ja meirihluta þingflokks, eru sammála andstæðingum okkar um að skipta þurfi um forystu. Ég væri að bregðast flokkssystkinum mínum og hugsjónum okkar, ef ég féllist á neitunarvald þeirra sem brotið hafa sam- þykktar leikreglur flokksmanna. Andstæðingar okkar skemmta sér við að skipta flokki okkar upp í ,,arma” eftir mönnum, auðvitað án tillits til málefna. Sumir samherjar okkar gera það sama andstæðingum okkar til ánægju og upp- örvunar. Ef ég er spurður, hvaða armi fylgir þú, svara ég. Ég fylgi engum armi. Ég fylgi Sjálfstæðisflokknum, eins og hann hefur markað stefnu sína á lýðræðislegan hátt af réttkjörnum fulltrúum í samræmi við skipulagsreglur. Ég spyr hins vegar, hverjum þjónar þetta „armatal” og ímynduð skipting? Ekki formanni flokksins. Hann er for- maður allra sjálfstæðismanna. Það hefur verið talað um á ýmsum tímum: Bjarna menn og Gunnars menn, Jóhanns menn og Gunnars menn, Geirs menn og Gunnars menn, en það var aldrei talað um Ólafs menn og Bjarna menn, Bjarna menn og Jóhanns menn, eða Jóhanns menn og Geirs menn. Þetta segir sína sögu. Við megum ekki lengur láta andstæð- inga okkar, og stundum samherja draga okkur í dilka í þeim tilgangi að við gleymum og vanrækjum hugsjónir sjálf- stæðisstefnunnar í einskisnýtum inn- byrðis mannjöfnuði líðandi stundar, þannig að við gleymum að berjast við andstæðingana. Það er því miður óskhyggja og sjálfs- blekking að halda að vandi okkar verði leystur með nýjum nöfnum á mönnum í trúnaðarstöðum.

x

Landsfundur Sjálfstæðisflokksins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Landsfundur Sjálfstæðisflokksins
https://timarit.is/publication/1780

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.