Skýrsla til landsfundar Sjálfstæðisflokksins 1987 - 08.03.1987, Page 9
5
huguðu ratsjárstöðva á Vestfjörðum og Norausturlandi.
íslendingar tðku þátt í öllum ákvörðunum um tæknibúnað
þessara stöðva og varðandi staðarval og er það skýrt dæmi
um frumkvæði íslendinga.
- Mörkuð hefur verið ný stefna varðandi upplýsingar
til almennings um framtxðaráætlanir bæði hvað snertir búnað
og mannvirki varnarliðsins og er einmitt ratsjárstöðvar-
málið gott dæmi þar um.
- Byggingu nýrrar flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli er
að Ijúka og hillir þá loks undir fullan aðskilnað almennrar
flugstarfsemi og starfsemi varnarliðsins svo sem æskilegt
er.
- Loks hefur öll aðstaða varnarliðsins, húsakostur og
tækjabúnaður, verið bættur til mikilla muna. Má þar benda
á ný og traust flugskýli, nýjan flugvélakost, fyrirhugaða
stjðrnstöð og ollubirgðastöð I Eelguvík, en framkvæmdir þar
eru nú I fullum gangi og stefnt að þvl að þeim ljúki I
árslok 1988.
I eðlilegu framhaldi framangreindra atriða lagði ég
til I ríkisstjorninni I ársbyrjun 1986, að gerð yrði úttekt
á "innra öryggi" þjððarinnar, en þar er öðru fremur átt. við
varnir gegn alþjððlegum hryðjuverkum, svo og gegn ðlöglegri
upplýsingastarfsemi. 1 kjölfarið var skipuð nefnd undir
forsæti Baldurs Möllers, fyrrv. ráðuneytisstjóra, til að
meta stöðu þessara mála. Nefndinni er ætlað að skila
tillögum um hvernig yfirstjórn og samræmingu ráðstafana til
eflingar innra öryggi skuli fyrir komið I stjðrnkerfinu,
hvert skuli vera verksvið hvers þeirra aðila, er sinna
þessum málum, svo og að meta þörfina á sérstökum reglum um
samskipti embættismanna og annarra opinberra starfsmanna
við erindreka erlendra rlkja. nefndin hefur nú skilað
bráðabirgðaáliti slnu og er það til athugunar I rlkis-
stjórninni. Búast má við fullnaðar niðurstöðum á næstu
dögum.
(4) Samskiptin við varnarliðið
Það er sérstakt ánægjuefni, að tekist hefur á
undanförnum vikum og mánuðum að leysa þann vanda, sem upp
hafði komið vegna sjðflutninga til varnarliðsins og einnig