Muninn - 01.08.2021, Blaðsíða 34
tips frá
umhverfisnefnd
Vistvæna búðin
Vistvæna búðin er verslun í Sunnuhlíð
sem einblínir á umhverfisvænni og
sjálfbærari lífsstíl. Vantar þig rakvél,
raksápu, svitalyktareyði, hreinsiefni og
sápur? Þá er vistvæna búðin fyrir þig.
Brjálað úrval af alls konar vörum á
sanngjörnu verði þar sem vistvænn
lífsstíll á ekki að vera lúxus lífstíll
heldur sjálfsagður lífsstíll. Vistvænt og
náttúrulegt ehf. Er samstarfsaðili
OneTreePlanted sem vinna stíft að því
að planta trjám í stað þeirra sem hafa
brunnið eða fallið af mannavöldum.
Um fjórðungur af gróðurhúsaloftegundum sem við
Íslendingar losum frá okkur kemur frá samgöngum. Að
minnka þá losun er með því helsta sem einstaklingur getur
tekið að sér til að koma í veg fyrir hnattræna hlýnun. En til
þess getur þú: Nýtt þér almennings samgöngur. Fengið far í
skólann með einhverjum skólafélögum sem búa í nágrenni
þínu. Gengið eða, ef þú ert grjótharður/hörð, hjólað.
Minnka bifreiða notkun
Að flokka er örugglega það léttasta sem
maður getur gert og erum við í MA svo
heppinn með að það eru margar
mismunandi tunnur með myndum á svo
maður viti hvað skal setja í hvað. Létt er að
finna þær og er skylda að nota þær
samkvæmt lögum hjá okkur Munda og
Krissa, og ef einhver skal brjóta þessi lög er
okkur að mæta. Engu að síður er það mjög
mikilvægt fyrir jörðina okkar góðu að
flokka þar sem það veldur mun minni
mengun, minnkar þörfina á því að
framleiða fleiri hluti sem enda bara á
ruslahaugunum, sparar rafmagn og sparar
pening.
Mikilvægi flokkunarEf þú vilt finna upp á nýrri leið til að hjálpa umhverfinu og minnka
kolefnissporið þitt þá er tilvalið að byrja að nota leitar forritið
Ecosia.org. En það virkar þannig að þú ferða inn á netið og notar
Ecosia.org í staðinn fyrir Google.is því að í hvert sinn sem þú leitar
með Ecosia.org safnast peningur saman sem er notaður til að planta
trjám!
Það er verið að planta trjám í yfir 30 löndum sem þurfa mest á því að
halda með yfir 500 trjátegundum og eru yfir 60 verkefni í gangi í dag.
Ecosia.org eru í samstarfi með fólki sem á heima í þessum löndum
og þetta skapar mörg tækifæri fyrir fólkið sem býr þarna og bætir líf
þeirra til muna.
Svo er það sem er skemmtilegt, því að þú getur fylgst með hversu oft
þú ert búin að leita með síðunni . Talan stendur uppi í hægra
horninu og þú getur reiknað út hvað þú ert sirka. búin að hjálpa til
við að planta mörgum trjám. En þú þarft að leita sirka 45 sinnum
fyrir hvert tré.
12 nóvember 2021 þá er búið að planta 137.678.378 trjám og talan er
alltaf að hækka, 15 milljónir manna nota Ecosia.org. Ætlar þú að vera
með í Ecosia.org samfélaginu?
Ecosia
Það er gaman að vapea, en
það er ekki gott fyrir
umhverfið. Bæði plastið og
batteríið í vapinu er ekki
gott fyrir umhverfið,
sérstaklega út af því að
einnota vape verða oftast
hent í almennt rusl.
Vape á djamminu
Mun
spaghettið passa
í glasið?
sjá bls 81 fyrir svar ;)
32