Jólasveinninn - 01.12.1940, Page 3

Jólasveinninn - 01.12.1940, Page 3
Langé kaupmáðuf sat i hsegindastólnum Og tottaði löngu reykjarpípuna sína. Hann einblíndi á hurðina, sem Margrét dóttir hans hafði skellt aftur á eftir sér. En hvað hún hafði orðið reið, stúlkukindin! Hún var engu betri en úfinn villiköttur! Hvrerjum hefði nú getað dottið í hug, að þessi blíðlynda og dagfarsprúða stúlka myndi þjóta upp með öðru ein3 forsi og ofstopa ? Éað var þó svo sem engin fjarstæða, sem hann hafði stung- THOMAS ÖYEs Ha p p drættis- vinningurinn. ið upp á, þó að henni fyndist það víst. Síður en svo. En hún var alveg skjálfrödduð af bræði, og augun f henni leiftruðu, er hún var að lesa yfir honum. — Ja, þvílíkur munnsöfnuður, sem hún átti í fórum sínum! Lange kaupmaður sat enn forviða, með opinn munninn og kom ekki upp einu orði. »Ég vil hvorki sjá hann né heyra, hvað sem í boði er«, hafði hún sagt. »Lyfsalinn er meira en helmingi eldri en ég, •— — og svo er hann ofurlítill rindill, væskilslegur og vindþurrkaður, — — og hann er nærri því fleinsköílóttur, og svo — — —«. »Æ-i nei«, — hann mundi ekki helminginn af því, sem hún hafði sagt og haft út á lyfsalann að setja — þennan æruvefðuga heiðursmann. Er lyfsalinn hafði spurt hann daginn áður, hvort honum væri nokkuð á móti skapi, að hann yrði tengda- sonur hans, svaraði Lange kaupmaður, að betri mann og eigulegri gæti hann aldrei fengið handa einkadóttur sinni. Enda var það sannfæring hans, Bredesen lyf- sali var stöndugur maður og auðgaðist ríkolega með ári hverju, Og var fjörutíu og fjögur ár nokkur aldur á karlmanni að fárast yfir? Auk þess var hann alls ekki sérlega óálitlegur, Hann var snotur og röskur

x

Jólasveinninn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jólasveinninn
https://timarit.is/publication/1800

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.