Stúdentablað Siglufjarðar - 01.12.1939, Side 3
1
STÚDE
SIGLU
T ABLA
J ARÐ A
DESEMBER 1939.
Ð
R
A V A R P.
Stúdentafélag Siglufjarðar samþgkkti fyrir nokkru að gefa út blað, er skyldi koma
út 1. desember. Þetta blað okkar siglfirzkra stúdenta, sem nú kemur i fyrsta sinn fyrir
almennings sjónir, er huorki stórt né fyrirferðarmikið, en væntir þó þess að verða aðnjót-
andi skilnings og velvildar almennings og þá sérstaklega Siglfirðinga. Þennan skilning
og velvilja sýna menn bezt með því að kaupa blaðið og lesa.
Við stúdentar höfum viljað með þessu sýna, að til væri þó einhver menningarbragur
hér og að við létum ekki allt fara framhjá okkur, er alþjóð varðar og til menningar
horfir, en eins og öllum Siglfirðingum er kunnugt, hefir því lengi verið haldið fram, að
Siglufjörður vœri enginn menningarbœr og þar fram eftir götunum. Við stúdentar viljum
nú með þessarí blaðaútgáfu okkar stuðla að því, að þetta óverðskuldaða alþjóðarálit hverfi,
jafnframt því, sem við minnumst fullveldisins.
Það er von okkar, sem að þessu stöndum, að Siglfirðingar taki þessari viðleitni okk-
ar vel og styrki okkur i starfi því, sem við höfum tekið okkur fyrir hendur og ritað er
um hér á öðrum stað í blaðinu.
Verði þessi viðleitni okkar vel tekið, er svo ráð fyrir gert, að haldið verði áfram
blaðaútgáfunni með því að gefa út eitt blað 1. desember ár hvert.
í ritnefnd Stúdentablaðs Siglufjarðar:
Óteingr. Öinarsson. )3atclur (Áríbsson. ( Jón fjónsson.