Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 16
TINNA GUNNLAUGSDÓTTIR
- veit hvenær leikurinn og lífið eiga ekki samleið
Tinna Gunnlaugsdóttir sest brátt í stól Þjóðleíkhússtjóra, en Þjóðleikhúsið
þekkir hún vel frá barnæsku. Ásta St.Thoroddsen dósent er æskuvinkona
Tinnu og hún segir hana hafa verið glaðlegt og þægt barn sem afskaplega
auðvelt hafi verið að lynda við:
Ijá&mynd- Táll Stefám&atv
,Tinna kynntist leikhúsinu mjög vel í gegnum störf móður sinnar og leikhúsið var hluti af daglegu lífi
hennar. Samt held ég að hún hafi sem barn ekki einsett sér að verða leikkona. Hún setti hins vegar upp
margar sýningar í borðstofunni heima hjá mér því þar var rennihurð sem hægt var að draga frá þegar
sýningin hófst. Efnið var að sjálfsögðu frumsamið og sýningarnar fólu í sér ýmiss konar undirbúning
auk æfinga. Laða þurfti að sýningargesti, raða upp stólum fyrir þá, miðarnir voru handskrifaðir og
við notuðum saumavél til að gata þá, svo hægt væri að rífa af þeim. Þetta krafðist að sjálfsögðu
útsjónarsemi og skipulags. Ekki man ég hvort gestir þurftu að borga sig inn!" segir Asta.
Snædís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur er systir Tinnu. Hún segir að sér komi fyrst í hug hversu
samrýmd og samstíga þau systkinin hafi verið. „Allir litu til með öllum, allir vörðu þann sem átti á
brattann að sækja," segir Snædís. „Sú tilfinning að eiga Tinnu sem litlu systur - litlu systur sem nú
verður Þjóðleikhússtjóri - kveikir gömlu samkenndina. Eg er hreykin af Tinnu. Eg veit að hún hefur
unnið til þessa starfs, lagt sig fram og ávallt getað treyst því að við trúðum á hana, styddum hana."
Sigurður Sigurjónsson leikari hefur unnið náið með Tinnu gegnum árin:
„Þó náði samvinna okkar hámarki þegar við unnum saman í leikritinu "Á sama tíma að ári", segir
hann. „Sú samvinna er mér afar minnisstæð fyrir þær sakir að til þess að árangur næðist þurfti að ríkja
fullkomið traust okkar á milli og er skemmst frá því að segja að það tókst fyllilega. Það var ekki síst
fyrir þær sakir hvað Tinna er gjöful og hreinskilin - og tilbúin að reyna og prófa nýja hluti. Það kom
sér líka vel fyrir frekar illa skipulagðan mann eins og mig hvað Tinna var öguð í öllum vinnubrögðum
og jarðbundin, þó svo hún geti - sem betur fer - farið út um holt og móa í sinni listsköpun þegar það
á við."