Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 21

Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 21
gráta í viðtalinu og það er eitthvað sem Ameríkanar elska! Eftir það varð mun jafnara með Leno og Letterman hvað áhorf varðar og hefur Leno oftar haft vinninginn, bæði hvað varðar áhorf og Emmyverðlaunin. Það er nokkuð fyndið að hugsa til þess að áður en hann tók við sæti Johnnys Carsons hafði enginn skemmtikraftur komiðjafnoftfram í þætti Lettermans og einmitt Jay Leno! Örlaganornirnar hljóta að hafa flissað! Þeir David Letterman og Jay Leno voru ágætis félagar áður fyrr, en eftir baráttuna við að ná stól Carsons andar köldu á milli þeirra, svo mjög að fyrir rúmu ári sagði Leno í viðtali á HBO sjónvarpsstöðinni að hann vildi semja frið við Letterman því hann saknaði vináttu þeirra og sagði að Letterman hefði gefið sér ófá tækifæri til að koma sér á framfæri. FÆDDUR GRÍNISTI Faðir Jays var ítali en móðir hans skosk. Jay fæddist í New York en ólst upp í Andover í Massachusetts. Hann þjáðist af lesblindu í æsku og á einu einkunnaspjaldinu hefur kennarinn hans skrifað „Ef Jay eyddi jafnmiklum tíma í að læra og hann eyðir í að reyna a vera skemmtikraftur, yrði hann stórstjarna"...! I Þessi kennari hlýtur að roðna á hverju kvöldi þegar þessi "vonlausi" nemandi birtist á skjánum, fyrir einmitt það að vera grínisti - og veit vart aura sinna taL Hann lauk námi frá Emerson College í Boston árið 1972 og um svipað leyti var hann einn af höfundum grínþáttanna "Good Times" ásamt öðrum grínistum, þar á meðal einum sem nefndist David Letterman! Það mætti halda að þeim tveimur hafi verið *tlað að kynnast. Eitt kvöld sem oftar, þegar hann var að skemmta í klúbbi í Los Angeles, tók hann eftir konu í salnum sem hló að öllum bröndurunum hans. Konan sú heitir Mavis Nicholson og það hlýtur að hafa verið ást við fyrstu sýn hjá þeim báðum. Þau giftust í nóvember 1980 og eru enn gift í dag en barnlaus. Hún er mikil kvenréttindakona og var meðal þeirra sem skipulögðu fjáraflanir til að styrkja stöðu kvenna í Afganistan þegar Talíbanar voru þar við völd, og þá sérstaklega að konunum yrði „leyft" að ganga um götur borgarinnar án þess að vera huldar frá toppi til táar. Jay hefur einnig stutt verðug málefni með frægð sinni og frama; t.d. fékk hann gesti sína til að árita Harley Davidson mótorhjól sem var í hans eigu og setti það svo á uppboð þaðan sem ágóðinn rann til fórnarlamba hryðjuverkanna 11. september. Helsta áhugamál Jays er að safna og halda við gömlum og klassískum bílum og mótorhjólum. Hann virðist vera „náttúrutalent" í því eins og gríninu því hann gerði sinn fyrsta bíl upp aðeins fjórtán ára gamall! Einnig er hann þrælsnjall Matadorspilari, en munurinn á honum og okkur hinum sem spilum Matador er að hann spilar með alvöru peninga! í lok júní var það tilkynnt að hann verði með „Tonight Show" fram til ársins 2009 og þá mun Conan O'Brien setjast í sæti hans. Fimm ára uppsagnarfrestur... Ekki amalegt?! Xízella vildi uita nieira umjay.£ena ag deilaþu>í ined le&endum Skýja. ‘Einnig. finn&tfienni lágmark að allir fáifimm ára upp&agnarfre&t, fioar &em þcir ainna!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.