Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 34
Grædast|ói*i Flu^iéla^** Islands*:
GÓÐHJÖRTUÐ EFTIRLITSLÖGGA
„Við björgum þessu.“ Þessi orð lýsa gæðastjóra Flugfélags
íslands betur en nokkur önnur. í huga Björns Þve
Kristjánssonar er ekkert sem ekki er hægt að bjáfgá. Málið
er bara að setja stefnuna á eitthvað; hafa markmið, sjá þau
fyrir sér og þá gerast hlutirnir af sjálfu sér. Hann er einstakt
Ijúfmenni, skapgóður, hjálpsamur og eldklár; Enda þurfum við
slíkan mann við störf hjá Flugfélaginu.
Hann er málamiðlari, segja þeir sem til þekkja, maður sem á
einstaklega auðvelt með mannleg samskipti. Hann ersagður
góðhjörtuð eftirlitslögga innan Flugfélagsins. Aðrir benda á
að leitun sé að manni sem sé jafnákafur í að sækja námskeið
og leita sér meiri menntunar á sínu sviði. Það er þess vegna
sem Björn lét sér ekki eingöngu nægja að læra til flugvirkja
og síðar flugvélstjóra; hann er líka einkaflugmaður og lærði
flugumsjón, - bara svona til að skilja flugheiminn betur. Hann
hefur starfað í flugheiminum í næstum þrjá áratugi.
EN HVAÐ GERIR GÆÐASTJÓRI
FLUGFÉ1_AGS ÍSLANDS?
,,Hann er tengiliður milli Flugfélagsins og Flugmálastjórnar sem er í
samtökunum JAA, JoinedAviation Authorities, semeru Evrópusamtök
flugmálayfirvalda þar sem allir vinna eftir sömu reglum í fluginu. Það
er viss heildarstefna í flugmálum í Evrópu og mitt starf felst í því að
gera úttekt á deildum, tæknideild og flugdeild Flugfélags Islands.
Ég fylgist með að reglugerðum varðandi flugið, þjálfunarmálum
og viðhaldsmálum sé framfylgt. Ég er eins konar gluggi fyrir
Flugmálastjórn inn í Flugfélagið því mér ber að gera úttektir á allri
flugstarfsemi og tæknistarfsemi. Það tæki Flugmálastjórn marga
daga að gera slíka úttekt, þannig að þess í stað fara þeir yfir mínar
úttektir og sjá þar með hvar skórinn kreppir. Mér ber að sjá til þess að
flugmenn og flugfreyjur sæki þjálfun, að innkaup séu eftir ákveðnum
staðli, allt sem fer í viðgerð fari á viðurkennd verkstæði, pappírsvinna
og frágangur sé samkvæmt bókinni. Þetta byggist mikið á að hægt
sé að rekja söguna; til dæmis að allt sem fer í flugvél sé hægt að rekja
til viðurkenndra framleiðenda. Ég geri líka úttektir á okkar fólki úti á
landi því allir hafa sínar vinnureglur og verklög og ég kanna hvernig
staðið er að fragtinni, inntékkuninni.að vélarnar séu rétt hlaðnar og
afísing sé framkvæmd samkvæmt réttum stöðlum."
Meðal verkefna Björns er að kenna afísingu flugvéla og það kennir
hann á áætlunarstöðum Flugfélagsins hér á landi og á Grænlandi.
Eins gott að vanur maður sé við störf þegar vetur gengur í garð:
„Verstu skilyrði fyrir ísingu véla er íslenska hitastigið, milli fjögurra
gráðu hita og fjögurra stiga frosts, svo ég tali nú ekki um úrkomu.
Snjór eða slydda sest á vélarnar, en þær verða að vera hreinar af
öllum snjó þegar þær fara í loftið. Þegar flugvél er komin í loftið
sér hún um sig sjálf því hún er með sjálfvirkan afísingarbúnað. Það
hættulegasta við flugið er oft sá tími sem vélin er á jörðu niðri."
Hvað meinarðu með því?
„Segja má að hættulegasti hluti ferðalagsins sé aksturinn út á flugvöll.
Væri Keflavíkurvegurinn flugvöllur, væri löngu búið að loka honum
sem stórhættulegum flugvelli. Flugvöllur, þar sem yfir 50 manns hafa
látið lífið á tuttugu árum, fengi aldrei að starfa."
Björn hefur starfað víða um heim. Hann hélt til Bandaríkjanna 18
ára til að læra flugvirkjun og starfaði síðan sem flugvirki á Flórída
í þrjú ár. Þaðan lá leiðin heim til starfa hjá Arnarflugi og síðar hjá