Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 41

Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 41
náð á þeim tíma að kaupa mér nýjan bíl sem ég staðgreiddi og í næsta mánuði flyt ég í mitt eigið hús," segir hann stoltur. Stoltari er hann þó af frumburðinum, Rafael, sem er fjögurra mánaða og Domingos sýnir mér mynd af honum: „Ég nýt þess að þjóna og við ætlum að vera hér í tvö ár til viðbótar. Þá flytjum við aftur heim til Portúgal og ég fer að vinna við kerfisfræðina." Mánaðarlaun Domingos eru 1000 evrur, eða um 90.000 íslenskar krónur, en hann segir þjórfé gjörbreyta fjárhagsstöðu þjóna: .,Hóparnir frá íslandi hafa verið frábærir. íslensku konurnar hafa lífgað upp á hótelið, en við erum vanari gestum frá Bretlandi, Þýskalandi og Rússlandi. Þið eruð aldrei óánægðar og íslendingar og Bretar eru besta fólkið að vinna fyrir. Það er auðvelt að þjóna ykkur, þið verslið mikið og gefið gott þjórfé sem skiptir okkur miklu." Domingos hefur ekki farið varhluta af hrósi frá íslensku konunum sem hann segir hafa gert sér gott: „Ef einhversegir eitthvað fallegt við mann, þá líður manni betur. Ykkur fylgja engin vandamál. Við þjónarnir förum stundum á aðra bari eftir lokun og fáum okkur drykk með gestunum því þannig kynnumst við menningu og siðum annarra landa. Þið íslensku konurnar eru glaðværar, syngið og dansið og það ríkti meiri gleði á hótelinu meðan þið voruð hér." MEÐ FROSK UM HÁLSINN ... En hvað segja konurnar sjálfar? Hvers vegna eru þær hér? Fundu þær það sem þær leituðu að? Elín Sigríður Ingimundardóttir er skrifstofustjóri hjá Islandsflugi og segist hafa komið á námskeiðið því hún sé að endurskoða lífið og tilveruna: ,,Ég hef fengið fullt af spurningum hér - og fá svör! Þeirra svara þarf ég að leita hjá sjálfri mér. Námskeiðið opnaði margar flóðgáttir og ég er orðin svo glöð með lífið. Ég er að taka sjálfa mig í gegn og er því viss um að ég á eftir að nýta mér þann fróðleik sem ég fékk hér. Það sem stendur upp úr eftir vikuna er mikil gleði og jákvæði út í lífið, sem mig vantaði." Sjöfn Finnbjörnsdóttir starfar á símanum hjá Hreyfli-Bæjarleiðum, er fertug og fannst spennandi að leggja af stað einsömul út í heim: ,Vera ein, án þess að vera ein," segir hún. „Ég hef lært mikið á þessari viku og hlakka til að koma heim og nota þau verkfæri sem ég fékk í hendur hér. Ég fékk svo marga punkta til að vinna með sjálfa mig áfram, á jákvæðan hátt. Hér fann ég þá Sjöfn sem ég hafði týnt." Alda Viggósdóttir er 58 ára ritari á Landspítalanum í Fossvogi og kom líka ein í ferðina: „Mig langaði að slaka á með konum og kynnast konum. Ég á fjögur börn og tólf barnabörn og þetta er í fyrsta skipti á ævinni sem ég fer eitthvað ein. Þetta hefur verið alveg frábært og ég hef aldrei upplifað frí af þessu tagi. Ég lærði mikið í mannlegum samskiptum og hér eru allir svo glaðir. Mig langar að koma á framhaldsnámskeið að ári." Gunnur Gunnarsdóttir segist hafa verið þreytt húsmóðir og listakona. Hún er 51 árs, á fimm syni og einn sonarson: „Ég var með frosk sem hélt um hálsinn á mér þannig að ég gat ekki sagt meiningu mína. Froskurinn er nú farinn út í sjó og sól og hlýja komin í hans stað. Það er nauðsynlegt fyrir hverja konu að skoða sjálfa sig á hverju lífsskeiði. Við þurfum allar að fást við lífið, aftur og aftur. Ég kem til með að beita því sem við lærðum hér því námskeiðið var heilsteypt og þar var mikið fjallað um kærleika og að beita því afli sem við eigum innra með okkur, en það var ég hætt að gera. Námskeiðið vakti mig til umhugsunar." Sigurlaug Reynisdóttir kom fljúgandi á þetta námskeið frá Cannes. Hún er fertug, fyrrverandi bókari hjá Flugleiðum, býr í Njarðvík og er tveggja barna móðir: „Það er kappsmál hjá mér að styrkja mig „FROSKURINN UM HÁLSINN HVARF ÚT (SJÓ". GUNNUR GUNNARSDÓTTIR OG SJÖFN FINNBJÖRNSDÓTTIR. KONURNAR FLUTTU UÓÐ TIL HAFSINS - MEÐ MÚRTAPPA UPPI ( SÉR TIL AÐ LÆRA SKÝRAN FRAMBURÐ. EDDA OG BJARGEY FYLGDUST VEL MEÐ. SÆLAR OG SÁTTAR Á HEIMLEIÐ EFTIR SJÖ REYNSLURÍKA DAGA. SYSTURNAR MAGNEA STEINUNN OG ELfN SIGRlÐUR INGIMUNDARDÆTUR, HVOR SfNUM MEGIN VIÐ SIGURLAUGU REYNISDÓTTUR. KONUR, SEM VARLA ÞORÐU AÐ KYNNA SIG FYRSTA DAGINN, FLUTTU FRUMSAMDA LEIKÞÆTTI Á VEITINGAHÚSI ( LISTAMANNAÞORPINU ALTEA FJÓRUM DÖGUM SfÐAR!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Ský

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ský
https://timarit.is/publication/1110

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.