Ský - 01.10.2004, Page 33
Fullþungur, en góður hanki,
lagleg hönnun og ódrepandi
sökum gæða. Engin undirskál
og ekkert skrölt, en hliðarnar
eru beinar og bragðvænu
straumana vantar.
Ríkra manna espressobolli.
Fóðraður með gulli, en of
víður til að halda hitanum.
Fótt aðeins horslegnustu
^ingur smjúgi í hankann, þá er
samt hægt að ná þokkalegu
taki. Bætir óhjákvæmilega
meltinguna.
Hinn fullkomni bolli heitir að
vísu krús. Ódýrt postulín, ekkert
glamur í undirskál, lítil blóm
sem milda morgnana, brún
og hliðar með réttri sveigju og
mjög stöðugur þegar maður
fálmar blint eftir honum. Takið
eftir krúsidúllunni neðst á
hankanum. Hún er ekki skraut,
eins og virðist, heldur hak
fyrir löngutöng. Þannig hvílir
bollinn stöðugur á fingrinum
án þess að maður þurfi að
leggja hann upp að heitum
bollanum. Það tók hálfa öld
og hundruð verslana að
finna hann og þá stóð hann
sakleysislegur í hillunni hjá
Duka og kostaði líka lítið.
Fisléttur, fagur heldrimanna-
bolli fyrir espressokaffi úr
postulíni. Postulín er alltaf
léttara og endist margfalt
lengur en leir. Rétt lögun
á alla lund, gott eyra sem
rúmar þroskaða fingur.
Erfðagóssið. Of þungur, of
þykkur, of víður. "Áttu bara
þetta þvottafat?" spurði Rósa
í hvert sinn. En hankinn er
góður.
'Kaffi &kiptir cáudi 'tíarald& lithffund miklu- máli app tienni er þv>í all& ehki &anur í tvernff balla kaffið er hmið fram