Ský - 01.10.2004, Page 38
S|ö da^ai* á Spáni
í SNERTINGU VIÐ LÍFIÐ
,,Út í hvað ertu nú búin að koma þér, enn eina ferðina?" Spurning sem vaknaði
kvöldið áður en haldið var til Spánar. Hvers vegna er kona að strauja sumarföt í
hávaðaroki og ískulda í Reykjavík í lok októbermánaðar? Vegna þess að hún ætlar
með 45 öðrum konum til Spánar í eina viku; konum sem hún hefur aldrei á ævinni
séð og reiknar ekki með að hún eigi nokkuð sameiginlegt með.
Jjá&myndir: <A&lauy Sitaoa Jámdáttir ag, cAnna 'Kjá&ánc Magnúusdáttir.
SKÝj
38 '
Rangt. Það lærði ég á þessum sjö dögum á Spáni. A leiðinni
á Leifsstöð var ég samt enn efins um að ég væri að gera rétt:
„Veistu, ég held ég sé bara strax orðin ný og betri," sagði ég
við Þorstein Guðjónsson hjá Sumarferðum, sem hafði boðið
mér í þessa ferð. Boðið mér að taka þátt í og fylgjast með
námskeiðinu ,,Ný og betri kona", sem Sumarferðir efndu til í
samvinnu við Bjargeyju Aðalsteinsdóttur íþróttafræðing og Eddu
Björgvinsdóttur leikkonu. Mér fannst ég í alvöru bara vera orðin
nokkuð hress þarna á Keflavíkurveginum, í bíl með Þorsteini og
Helga Jóhannssyni, forstjóra Sumarferða. „Og," bætti ég við,
„ég hef ekki farið í leikfimi síðan í barnaskóla þannig að ég ætla
ekki að fara að stunda einhverjar íþróttaæfingar þarna úti..."
Þeir brostu og spurðu hvort ég hefði aldrei hitt Bjargeyju. Nei, það
hafði ég ekki, en það breytti nú engu í mínum huga. Eg hef hitt
marga frábæra íþróttafræðinga en engum tekist að fá mig til að
hreyfa mig.
Þess vegna byrjaði ég að koma sjálfri mér á óvart fyrsta morguninn.
Klukkan var tíu - átta heima á íslandi - og í stað þess að sitja við
tölvuna á Heilsugæslustöð Seltjarnarness stóð ég á þaki á 6. hæð
glæsilegs hótels við Albir-ströndina og gerði leikfimiæfingar með
næstum 50 konum. Þetta átti eftir að „versna". Kona sem leggur
ólöglega fyrir utan blokkina sína til að þurfa ekki að ganga frá
bílastæðinu gengur ekki 6 kílómetra rétt sisvona í 30 stiga hita.
Rangt.
SJÁLFSSTYRKING
Fyrst þegar ég heyrði af námskeiðinu „Ný og betri kona" fannst
mér þetta frábær hugmynd. Nú gætu saumaklúbbar tekið sig
saman og vinkonur farið saman í rólegheitum í sólbað á Spáni,
orðið brúnar og hressar, fengið sér kokteil á barnum og sofið út.
Raunin varð allt önnur.
1 þessum 45 kvenna hópi voru nokkrar sem höfðu ákveðið að skora
á sjálfar sig með því að fara aleinar út í heim í fyrsta skipti á ævinni.
Aðrar höfðu átt við veikindi að stríða og litu á þessa ferð sem sína
endurhæfingu. Enn aðrar vissu ekkert hvað þær væru að fara út í
og margar höfðu farið í þeirri von að þær öðluðust örlítið meira
sjálfstraust.
Við vorum ekki komnar til Albir vegna þess að við værum einmana
heima hjá okkur. Samtals eigum við 150 börn, meira en 100
barnabörn og flestar eiginmenn. Við erum frá öllum landshornum
og úr öllum stéttum þjóðfélagsins. Þarna hittust bankastarfsmenn,
konur úr heilbrigðisgeiranum, atvinnurekendur, matreiðslumeistari,
innkaupafulltrúi, listakona, skrifstofustjóri, veitingamaður, tækni-
teiknari, verslunareigandi, húsmæður, þroskaþjálfar, bókarar
og nuddarar. Við erum á aldrinum frá 29 ára til 63 ára; en á fyrra
námskeiðinu sem haldið var viku fyrr, voru þátttakendur frá tvítugu
að áttræðisaldri. Ég er ekki viss um að nokkur okkar hafi haft
hugboð um hversu miklu sjö dagar á Spáni áttu eftir að breyta hjá
okkur. Að við kæmum allt aðrar heim. Nýjar og betri konur.
LJÓÐAFLUTNINGUR Á STRÖNDINNI
Edda Björgvinsdóttir leikkona og Bjargey Aðalsteinsdóttir
íþróttafræðingur vissu vel að einhverjar í hópnum hefðu kannski
hugsað sér að mæta á einhverja fyrirlestra, stundum í leikfimi og
stundum á námskeið:
„Þetta námskeið er samansett þannig að konurnar geta sloppið
algjörlega með það sem þeim sjálfum finnst þægilegt; þær geta
líka farið örlítið undir yfirborðið eða farið inn í hjarta sitt. Hver og
ein tekur þátt eins og hún þorir," segir Edda og vísar til þess að á
námskeiðinu er unnið með tilfinningar, það eru gerðar raddæfingar
í fjöruborðinu og konurnar flytja leikþætti. „Við stöndum með
múrtappa uppi í okkur og flytjum Ijóð til hafsins!" segir hún. „Við
klæðum okkur upp og förum í fjallaferð og fimm rétta kvöldverð í
listamannaþorpi."
1