Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 45
RÖNDÓTT HÁR. ÞAÐ KOSTAR
Á BILINU ÁTTA TIL FJÓRTÁN
ÞÚSUND. EÐA NÓG FYRIR ÁSKRIFT
AÐ ÞREMUR ÍÞRÓTTARÁSUM OG
ÖLLUM ÞEIM BJÓR SEM TEYGA
ÞARF MEÐ ÞEIM. ______
BILALEIGA
AKUREYRAR
...Möldur —
Vantar þig bíl ?
Reykjavík Skeifan 9 Akureyri Tryggvabraut 12
05686915 04616000
Afgreiðslustaðir: Reykjavík • Keflavík-flugstöð • Borgarnes • Ólafsvík
ísafjörður • Sauðárkrókur • Akureyri • Egilsstaðir • Höfn • Vestmannaeyjar.
Góð þjónusta á [J{0)stöðum um allt land.
SKY
I 45
á dag og er auk þess með 20-30 manns í vinnu utan heimilisins
við snyrtingu, viðhald og viðgerðir. Aðgerðirnar taka óhemju tíma
frá því sem hún ætti að vera að gera (umönnun vinnandi manns,
þrif, niðursuða, endurbætur á húsnæði, o.s.frv.) og eru mjög
kostnaðarsamar.
Vel snyrt kona býður af sér góðan þokka. Áður en fallið er fyrir
umræddum þokka skyldu menn athuga hvort þeir eru viðbúnir
þeim fjárhagslegu áföllum sem í honum felast. Þess betur sem
konan lítur út, þess minni hluti launa hennar rennur í sameiginlegan
kostnað svo sem bjórinn hans, golfkylfurnar hans, jeppann hans.
Tökum fáein dæmi:
Röndótt hár. Það kostar á bilinu átta til fjórtán þúsund. Eða nóg
fyrir áskrift að þremur íþróttarásum og öllum þeim bjór sem teyga
þarf með þeim. Hárið er endurnýjað 4-12 sinnum á ári.
Neglur. Margar konur geta enn sargað af þeim sjálfar. Þær kjósa að
gera það þegar menn eru úttaugaðir af vinnu og að kikna undan
álaginu sem ábyrgð starfa þeirra leggur þeim á herðar. Þá rýfur
ragsj-ragsj-ragsj innhverfa hugleiðingu þeirra yfirFormúlunni. Einnig
nota sumar konur þjölina sem samskiptatæki. Mitt í mikilvægum
samræðum um hagsmunamál heimilisins sækja þær naglaþjölina:
Ragsj-ragsj-ragsj-mér-leiðist-röflið-í-þér. Þótt þjölin sé liðtæktvopn
innan veggja heimilisins kemur hún að engu gagni ef nögl brotnar.
Þá þarf konan strax að leggjast inn á naglaspítalann. Þar eru límdar
gervineglur yfir brotið og eru þær örlítið dýrari en gervilimir með
hnjám og olnbogum. Hið háa verð er vegna gæðanna, neglurnar
eru afar vandaðar og þola mikil átök með þjölinni. Hentugast er
að komast að hver snyrtistuðull konunnar er í peningum áður en
maður festir sér hana. Upphæðin felur í sér vísbendingar um fleiri
hagnýt atriði.
Kona sem eyðir mánaðarlega kr. 10.000 í svæðið frá hálsi og upp
úr og öðrum 10.000 í afganginn er hógvær kona. Hún lítur skamm-
laust út og menn geta borið hana í hús. Hún sinnir þó aðeins
húsverkum eins og kraftar hennar leyfa.
Sé samanlögð upphæðin nær 40.000 á mánaðargrundvelli, þá er
líka hægt að taka hana með í leikhús. Kona númer 40 hefur 50%
minni tíma til húsverka og annarra nytsamlegra hluta.
Kona númer 80 er ætíð óaðfinnanleg. Hún kostar ekki 80.000
á mánuði, heldur 170.000. Það gera launin sem þarf að borga
konunni sem vinnur húsverkin fyrir hana.
Traustasta valið er kona sem eyðir innan við 5.000 kr. á mánuði í útlit
sitt. Fyrir þá upphæð fæst aðeins ódýr klipping og sápa. Hún hefur
nægan tíma aflögu til að staga sokka, dytta að pípulögnum, búa til
þríréttað daglega og nudda gagnaugu og herðar heimilisföðursins.
Að hún er sparsöm er ekki kostur því hún er alltaf að láta manninn
borða gamla afganga. Konur númer 5 iðka ekki magadans. Hann
er hégómi.
Sjaldgæfust allra er 600 króna konan. Hafi menn uppi á slíku eintaki
ætti að negla hana strax þar eð sjaldan fæðast tvær á sömu öld.
FyriróOO krónurfást aðeins sápa og svitalyktareyðir. Hún klippirsig
sjálf og gengur í fötum sem hún saumar upp úr notuðu af öðrum.
Saumar, hún hannarekki. Kona númeróOO er alltaf eins og dregin út
úr kúrassi og ekki hægt að fara neitt með hana. Hún er grádrappleit,
fórnfús, hefur góða þrælslund, er iðin, ætíð með sektarkennd og
fer ekki í rúmið þó hún fái nýrnasteina, legsteina og gallsteina sama
daginn. Hún borðar afgangana sjálf. Númer 600 hefur aldrei heyrt
um magadans eða neinar aðrar mjaðmahreyfingar.
Látið ekki ginnast af æskufegurð. Hún eyðist upp. Veljið konu með
breiða fætur og þykkan háls. Þær eru sterkari. Breiðir fætur geta
borið út fleiri blöð, ef nauðsynlegt er að einhver á heimilinu fái
sér aukavinnu. Tæki geta líka bilað. Geti konan ekki borið blautan
þvott í bala úr kjallaranum upp á fjórðu hæð, gettu hver gerir það
þá fyrir hana? í
í