Ský - 01.10.2004, Side 50
,,Ég fór sem skiptinemi til New York í fjóra mánuði þegar ég var
16 ára," útskýrir hann og bætir við: ,,Það var mikið „oplevelse". I
sumar var ég á mánaðarnámskeiði í Roskilde í Danmörku og kom
þaðan hingað til lands. Ég er núna að upplifa hvað það er skrýtið
að skipta stöðugt um tungumál! Ég hef semsé á einum mánuði
talað tékknesku, dönsku, ensku, íslensku og spænsku, því vinur
minn sem er nýfluttur til Kaupmannahafnar er Spánverji, og hefur
ekki enn lært dönskuna, en þegar ég hitti hann kom í Ijós að ég var
búinn að gleyma því sem ég hafði kunnað í spænsku!!
Martin hefur ferðast víða um Evrópu og Bandaríkin en segir
engan vafa leika í sínum huga hvar sé best að vera:
„(sland er best," svarar hann án umhugsunar. „Ég elska Island svo
mikið."
vegar fljótt eftir að ég fór að læra islenskuna að eina leiðin til að
ná góðum tökum á henni er að búa hér á Islandi. Nú ætla ég að
sækja um styrk til að nema við Háskóla íslands á næsta ári eða
þarnæsta."
Skrýtið. Maður hittir fólk eina kvöldstund og það tekur sér
bólfestu í hjartanu. Þannig var um þennan unga mann og
þegar ég kvaddi hann var eins og við hefðum verið vinir um
árabil. „Þúsund þakkir," segir hann á lýtalausri íslensku þegar við
kveðjumst. Svo bjóst ég svo sem ekki við að heyra frá honum
fyrr en hann kemur í nám við Háskóla íslands - eða verður gerður
að sendiherra íslands á Tékklandi - en nokkrum dögum eftir
fund okkar barst mér þakkarbréf í tölvunni. Það er undirritað:
„Marteinn Víkingur Benda".
Það er farið að rökkva og Martin þarf að fara að pakka niður fyrir
heimferðina. Hann kvíðir því að hann verði með mikla yfirvigt því
að ...:
„... ég keypti auðvitað lax til að taka með mér heim og nóg af lýsi
handa ömmu. Svo keypti ég mér ensk-íslenska, íslensk-enska
orðabók, sem kostaði hálf mánaðarlaun Tékka, en ég held að hún
verði vel þess virði. Það var góð fjárfesting... Ég uppgötvaði hins
Tað frétti&t af Önnu Hén&úne meá o4jaxhní&a í einu
fm'ba'g-i íhúðar sinnar. Tíl örygg.i& xtlar fiún að úafa
það tilbúið efungur Tékki &em eldar kitaldnerði kenutr til
j<iland&og<oantar fíú&næðiínágrenni 'tíá&kálariA...