Ský - 01.10.2004, Blaðsíða 55
IVýyvdabanki SHÝdA:
PUPPY LEAVE OG
ÞESSI BLANDA AF (ÞRÓTT OG UPPÁKOMU
HEFUR MEIRA AÐ SEGJA TEYGT ANGA SÍNA
TIL ÍSLANDSEINS OG SJÁ MÁ Á MYNDINNI
HÉR FYRIR NEÐAN.
Hver hefur ekki haft yfirmann sem eyðir vinnudeginum annars
staðar en á skrifstofunni? Ef yfirmaður þinn hefur mikinn
sveigjanleika í vinnutíma og ekki alltaf við skrifborðið sitt þá myndi
hann falla undir enska nýyrðið flexecutive. Orðið er skeytt saman
úr ensku orðunum flexibility (sveigjanleiki) og executive (yfirmaður).
Astæðan fyrir þessum titli þarf ekki endilega að vera sú að þeir
nenni ekki að stunda starf sitt, heldur gerir tæknin þeim kleift að
stunda vinnu sína næstum hvaðan sem er í heiminum; í gegnum
farsíma, tölvu, fax og fleiri tæknilegrar nýjungar. Nafnið bendir þó
til að einnig sé þægilegt að vinna undir svona yfirmönnum, þar
sem fjarvera þeirra gefur mönnum (og að sjálfsögðu konum) meira
frelsi og sjálfstæði til að stunda vinnu sína.
I langa tíð hafa starfsmenn tekið sér leyfi frá vinnu vegna veikinda,
sumarleyfa, brúðkaupa, fótboltaleikja, túrverkja og barneigna
svo fátt eitt sé nefnt. Nú eru meira að segja karlmennirnir farnir
að taka sér barneignarfrí til að tengjast börnum sínum betur. En
alltaf virðist mega taka næsta skref og nú er fólk farið að taka sér
hvolpaleyfi (e. puppy leave). Það er þegar manneskja tekur sér frí
frá vinnu (eða starfar heiman frá) til að tengjast tilfinningaböndum
við nýjan hvolp og kenna honum rétta siði. Dýr eru nú hluti af
fjölskyldunni og margir líta á þau sem loðbörn (e. furkid, sjá síðasta
tímarit SKÝJA). Því er nauðsynlegt að mynda tengsl við loðbarnið
frá upphafi og kenna þeim það mikilvægasta í lífinu; að ekki megi
gera þarfir sínar á teppið!
„Hangandi á veggnum má sjá prófskírteinið mitt frá Yale. Og
fyrir neðan það er myndin sem var tekin af mér og Tiger þegar
við spiluðum 18 holurnar í Oakland Hills vorið '99. Ekki má
gleyma silfurpeningnum sem ég fékk fyrir krókódílaveiðar í
Níl." Margur maðurinn hefur gerst sekur um að stilla upp sínum
uppáhaldsafrekum á ákveðinn sjálfsálitsvegg (e. ego wall).
Tilgangur þessa veggjar er að vekja upp aukið sjálfsálit, auk þess
aðsýna gestum og gangandi hversu glæsturferill margra er. Hvort
sem það er prófskírteini, viðurkenningar, Ijósmynd með einhverjum
frægum eða dýrir munir, þá virðast allir hafa tilhneigingu til að líta
vel út í augum annarra og yfirleitt er öllu skellt á sama vegg til að
magna þetta upp.
Það eru margir þeirrar skoðunar að jaðaríþróttir (eins og t.d.
fallhlífarstökk eða klettaklifur) séu stórhættulegar og heimskulegar
íþróttir. Mörgum finnst leiðinlegt að strauja. Af óskiljanlegum
ástæðum hefur þessum tveimur gjörólíku hlutum verið blandað
saman í það sem kallast jaðarstraujun (e. extreme ironing).
Jaðarstraujun felst í að nokkrar flíkur eru straujaðar á meðan
þátttakandinn kafar, siglir niður flúðir, fer í teygjustökk, á brimbretti
eða hoppar úr flugvél með fallhlíf á bakinu. Straujárnin eru hituð
með gasbrennurum, við opinn eld eða með ferðarafstöðvum og
straubrettin fylgja ávallt með. Einmitt þegar maður hélt að það
væri ekki hægt að finna upp á meiri vitleysu ...
Ef þú ert með flexecutive yfirmann, sem er aldrei á staðnum til
að sjá hversu magnaður sjálfsálitsveggurinn þinn er, gætir þú
hugsanlega viljað taka þér tveggja vikna hvolpaleyfi. Svo þegar
vinnustaðurinn vill gera eitthvað saman ertilvalið að stinga upp á
því að þið farið öll saman í einhverja jaðaríþrótt. Mundu bara að
minna alla á að koma með straujárnið og straubrettið!
'Rýbert Trau&ta&an fiefur ekki meigjanlegati vinnutíma,
fiamv er ekki með ijálf&álitmegg- erv þykir nakkuð gáður
með átraujórnið ...
SKÝ
55