Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1982, Page 178
GJALDSKRÁRMÁL
Inngangur
Gildandi reglur og venjur um ákvörðun gjaldskrár eru all-breytilegar. Gjald-
skrár eru ýmist gefnar út sérstaklega eða sem hluti af reglugerðum, og í sumum
tilvikum þarf að leita staðfestingar ráðherra, en í öðrum ekki. Tillögur um
nýjar gjaldskrár, eða breytingar á gjaldskrám, berast borgarráði að jafnaði frá
forráðamönnum hlutaðeigandi fyrirtsekja eða stofnana, eða stjórnum þeirra. Ef í
reglugerð er ákvæði um það, að leita þurfi staðfestingar ráðherra á nýrri gjald-
skrá, sendir borgarráð tillögurnar, ásamt hugsanlegum breytingum, áfram til
borgarstjórnar þar sem endanleg ákvörðun er tekin að loknum tveimur umræðum. Þá
loks' er unnt að senda hina nýju gjaldskrá til staðfestingar £ hlutaðeigandi
ráðuneyti. A hinn bóginn getur borgarráð tekið ákvörðun um gjaldskrá með sam-
hljóða afgreiðslu, ef ekki er x reglugerð kveðið á um það, að leita þurfi stað-
festingar ráðherra. Verði borgarráð ekki samhljóða um afgreiðslu, fer málið til
einnar umræðu og endanlegrar ákvörðunar í borgarstjórn. Allt frá 1970 hefur
þurft að sækja um leyfi verðlagsyfirvalda til allra gjaldskrárbreytinga, en sú
leið hefur reynzt torsótt eins og að líkum lætur.
Frá ársbyrjun 1979 tilársloka 1981 var í gildi svokölluð „hert verðstöðvun" og
þurfti þá sérstakt samþykki ríkisstjórnarinnar til gjaldskrárbreytinga, en þau
ákvæði féllu úr gildi um síðustu áramót.
Samkvæmt 1. mgr. 7. gr. laga um kjaramál nr. 121/30. desember 1978 var óheimilt
að hækka verð á vöru og þjónustu frá því, sem það var 9. september 1978, nema að
fengnu samþykki réttra yfirvalda og skyldu þau ekki leyfa neina hækkun, nema þau
teldu hana óhjákvæmilega. Leyfi til hækkunar skyldi jafnframt hljóta staðfestingu
ríkisstjórnarinnar. Þessu ákvæði var breytt með 1. gr. laga um ráðstafanir til
viðnáms gegn verðbólgu nr. 10 frá 13. apríl 1981. Breytingin var eingöngu fólgin
£ viðmiðunart£ma, þ.e.a.s. frá 1. janúar 1981 til 1. ma£ 1981.
I 1. gr. laga nr. 12/30. apr£l 1981 um verðlagsaðhald o.fl. var enn hnykkt á
verðstöðvunarákvæðum. Þar sagði meðal annars, að verð vöru og þjónustu mætti
ekki hækka fram til 31. desember 1981 frá þv£, sem það var 30. apr£l 1981, nema
að fengnu samþykki réttra yfirvalda, og skyldu þau ekki leyfa neinar hækkanir
umfram brýnustu nauðsyn. Þetta lagaákvæði gilti til 31. desember 1981, en s£ðan
hafa ný lagaákvæði um þetta efni ekki verið sett.
Verður nú vikið stuttlega að einstökum fyrirtækjum og stofnunum borgarmnar: