Árbók Reykjavíkurborgar - 01.10.1982, Page 198
178 -
Borgarstjóri situr fundi borgarstjórnar og borgarráðs með óbundnu
málfrelsi og tillögurétti, en án atkvæðisréttar, nema hann sé jafn-
framt borgarfulltrúi (borgarráðsmaður).
Borgarritari er staðgengill borgarstjóra og hefur með höndum dag-
lega stjórn á fjármálum borgarinnar og umsjón með skrifstofum hennar.
Borgarverkfræðingur hefur, í umboði borgarstjóra, með höndum yfir-
stjórn verklegra framkvæmda borgarinnar og annarra tæknilegra málefna,
nema meðferð þessara mála (einstök mál) sé sérstaklega fengin öðrum.
Nefndir
Að borgarráði frátöldu er kjörgengi í nefndir, sem borgarstjórn kýs,
yfirleitt ekki bundið við borgarfulltrúa eða varaborgarfulltrúa.
Nefndarmenn eru því ýmist úr röðum borgarfulltrúa eða óbreyttra.
Formenn áhrifamestu nefndanna ber þó að kjósa úr hópi borgar-
fulltrúa eða varaborgarfulltrúa.
Áhrif og afskipti nefndanna af daglegum rekstri eru misjafnlega mikil
eins og að líkum lætur. Greint er frá meðferð og afgreiðslu mála í
.fundargerðum, sem ýmist fara fyrir borgarráð og fylgja þaðan borgar-
ráðsgögnum til afgreiðslu borgarstjórnar, eða eru sendar beint til
borgarstjórnar eins og gert er með fundargerðir flestra áhrifamestu
nefndanna.
Helstu ráð og nefndir á vegum borgarinnar eru , auk borgarráðs:
Byggingarnefnd fer með byggingarmálefni undir yfirstjórn félagsmála-
ráðuneytis, sbr. 1. nr. 54/1978.
Félagsmálaráð fer með stjórn félagsmála £ umboði borgarstjórnar,
skv. samþykkt borgarstjórnar frá 1. jan. 1968.
Fræðsluráð starfar eftir ákvæðum í grunnskolalögum fra 21. mai 1974,
en þar segir m.a. að ráðið fari með stjorn fræðslumala í umboði
menntamálaráðuneytis og borgarstjórnar.
Hafnarstjórn starfar eftir ákvæðum í hafnarreglugerð fyrir Reykja-
víkurhöfn nr. 107/1975, sbr. 1. nr. 45/1973, en í reglugerðinni segir
m.a. að stjórnin sjái um viðhald og umbætur á höfninni, stýri öllum
framkvæmdum, er þar að lúti, og anniot fjárhald hafnarinnar fyrir
hönd borgarstjórnar.