Mosfellsblaðið - 01.05.1999, Qupperneq 2
Baeyjar-
stjérnin
jr
a
GUÐJÓNSSON
osfellingar standa nú frammi fyrir stærstu íþróttaviðburðum sögu sinnar, þegar Afturelding
hefur unnið margfalda sigra í handknattleik þetta árið og enduði sem Islandsmeistari. Þessi
afrek auka vægi allrar íþróttastarfsemi í bænum, auka samkennd bæjarbúa og gefa Mosfells-
bæ enn meiri byr sem íþrótta- og útivistarbæ.
Við höfum reist hér stórt íþróttahús nýverið, en hvergi er að sjá í áætlanagerðum bæjarins stafkrók um
frágang á áhorfendapöllum svo nýta megi hið nýja hús til fulls. Þótt Ijóst hafi verið að öfl innan beggja meiri-
hlutaflokkanna hafi verið á móti byggingu hússins, mátti ætla að metnaður væri meiri en svo.að gleyma ætti
innréttingum hússins um ótiltekinn tíma,- Það vakti verulega athygli að suður í Kaplakrika mættu fleiri Mos-
fellingar en komast inn í gamla húsið hér. Það er einnig Ijóst að í gamla húsinu eru brattir áhorfendapallar,
þar er þungt loft á kappleikjum, þrengsli og ákveðin hætta og ábyrgð fylgir slíku, sem hlýtur að skrifast á
reikning núverandi meirihluta bæjarstjórnar. Það er einnig vitað að margt fólk leggur ekki á sig að mæta á
leiki af fyrrgreindum ástæðum, bæði héðan úr bæ og nágrannasveitarfélögum.
Það er mikið rætt um forvarnir í dag gegn ýmsum málum. Besta forvörnin fyrir unga fólkið er að nýtt sé
fyrirliggjandi aðstaða fyrir íþróttir og bæjarstjórn hlýtur að hafa forgöngu um að það verði gert með skyn-
samlegum hætti og í samráði við UMFA. Boltinn liggur einfaldlega hjá bæjaryfirvöldum. - Þau eiga leik.
leik
Vorhátíð i Varmárskóla
Hin árlega Vorhátíð Varmár-
skóla var haldin á uppstigningar-
dag 13. maí s.l. Hátíðin varð
blautari en við héldum miðað við
dagana á undan og eftir, en það
kom ekki að sök nema fyrir þá
sem stóðu í langri röð og biðu
eftir að fá grillaða pylsu og kók.
Aðeins var breytt út af venju og
hátíðin var frá kl. 11:00 - 14:00,
pylsur vom seldar, kökubasar og
flóamarkaður. Stúlkur úr 6. bekk
vom með andlitsmálun og þegar hátíðinni lauk var
ennþá biðröð hjá þeim. Skemmtidagskrá var í hátíð-
arsal skólans, kl. 12:00 og aftur kl. 13:00. Stúlkur úr
6. bekk dönsuðu, strákar úr 5. bekk léku brandara,
stúlkur úr 3. bekk dönsuðu einnig og aðrar röppuðu
og 1. bekkur söng af mikilli innlifun þijú lög í upp-
hafi skemmtidagskrár undir stjóm tónmenntakenn-
ara. Allar stofur skólans vom opnar og verk nemenda
til sýnis og vakti handmenntastofan sérstaka athygli
fyrir hversu vel skipulögð hún var og verk allra ár-
Ólöf Björk Bjömsdóttir.
jmýtt blað,
Útgefíð af
Samtökum óháðra í Mosfellsbæ.
Ritstjórar, ábyrgðarm., blaðam.:
Helgi Sigurðsson og Gylfi Guðjónsson,
s. 89-20042, fax 566 6815
íþróttir: Gylfi Guðjónsson
og Pétur Berg Matthiasson
Dreifing:
Niels Hansen, s. 566 6446
4. tbl. 1999 - 2. árgangur
ganga sýnd. Köku- og pylsusala gekk mjög vel og
einnig flóamarkaður þó varla sæist högg á vatni og
var farið með restina til Rauða krossins. Agóði af
þessari sölu rennur til áframhaldandi tækjakaupa í
skólanum og einnig verður peningur í sjóði til styrkt-
ar nemendum til ferðalaga og fleira. Hægt er að sækja
um þennan styrk til stjómar foreldrafélagsins.
í lokin vil ég, fyrir hönd stjómar foreldrafélagsins,
þakka öllum sem veittu okkur hjálparhönd og styrktu
þessa hátíð.
f.h. Foreldrafélagsins í Varmárskóla
OlöfBjörk Bjömsdóttir.
ann 28. apríl s.l. hélt Mosfellskórinn sína árlegu
tónleika í Tónlistarhúsinu í Kópavogi að við-
stöddu fullu húsi áheyrenda.
Mosfellskórinn er þekktur fyrir að vera á léttu nót-
unum og bmgðust þeir sko aldeilis ekki aðdáendum
sínum í þetta skiptið.
Kórinn hefur verið að æfa ABBA-lög og tókst það
mjög vel. Einnig sungu tvær konur úr kómum ein-
söng og fengu mikið lof fyrir, það eru þær Ann Andr-
easen og Kristín Runólfsdóttir. f lokin var kórinn
klappaður upp íjórum sinnum og ætlaði fagnaðarlát-
unum aldrei að linna.
O MoKlcllsblaðið