Skinfaxi - 01.02.2020, Page 23
S K I N FA X I 23
Ingvar hjá ÍBR:
Við höfum
áhyggjur af
brottfalli úr
íþróttum
„Við hjá ÍBR höfum verulegar áhyggjur af
ástandinu. Staðan hefur verið mjög erfið hjá
íþróttafélögum á höfuðborgarsvæðinu og
veturinn verður mjög erfiður. Þess vegna er
mikilvægt að við stöndum saman,“ segir
Ingvar Sverrisson, formaður Íþróttabanda-
lags Reykjavíkur (ÍBR).
Ingvar var á meðal gesta á sambandsráðs-
fundi UMFÍ. Þar var kynnt Minnisblað UMFÍ
um áhrif kórónuveirufaraldursins á íþrótta-
starf, staða greind og teknar saman tillögur að
aðgerðum til framtíðar. Tilgangurinn með
minnisblaðinu var að taka saman stutt yfirlit
um áhrifin og umræðuna innan ungmenna-
félagshreyfingarinnar. Áhyggjur og áskoranir
stjórnenda og starfsmanna félaganna eru
miklar og fjölbreyttar um allt land.
Á Minnisblaðinu má sjá að iðkendum í hópi
barna og ungmenna hefur fækkað á árinu mið-
að við síðastliðin tvö ár.
Ingvar hefur áhyggjur af stöðunni ef grip-
ið verður áfram til harkalegri aðgerða til að
stemma stigu við útbreiðslu COVID-smita.
Hann tekur líka undir að merkja megi vís-
bendingar um aukið brottfall úr skipulögðu
íþrótta- og æskulýðsstarfi.
„Við sjáum að brottfall er að aukast, sérstak-
lega í einstaklingsgreinum, greinum sem eru
dýrari en aðrar, þar á meðal í fimleikum, dansi
og bardagaíþróttum. Við heyrum frá sumum
deildum íþróttafélaga í Reykjavík dæmi um
fólk sem hefur skráð börn sín í tiltekna grein
í haust en viðkomandi hafi síðan ekki fengið
þá þjónustu sem hann vænti. Fram að þessu
hafa ekki margir krafist endurgreiðslu æfinga-
gjalda. Hætt er við, ef æfingar verða ekki í
boði mikið lengur, að líkur á því aukist.
Ég hef í stuttu máli áhyggjur af því að brott-
fall úr skipulögðu íþrótta- og æskulýðsstarfi
muni aukast verulega við áframhaldandi tak-
markanir á starfinu. Íþróttahreyfingin hefur í
mörgum tilfellum staðið sig mjög vel í að tala
við fólk, koma á æfingum og fleira í þeim dúr.
En við þurfum að velta því alvarlega fyrir okk-
ur hvernig framhaldið verður. Íþróttahreyfingin
og skipulagða starfið innan hennar er alveg
jafnmikilvægt og skólinn og því þarf að tvinna
þetta saman,“ segir Ingvar.
Ingvar leggur til að skólayfirvöld eða ein-
stakir skólar geri samninga við íþróttafélögin í
hverfi sínu eða nærsamfélagi og þjálfi börnin
í meira mæli á skólatíma. Ekki aðeins til að
halda þeim á hreyfingu heldur líka til að halda
að þeim gildi skipulagðs íþrótta- og æskulýðs-
starfs.
„Ég veit ekki hvaða hlutfall er rétt. En það
þarf að tryggja að börn festist ekki í hreyfing-
arleysi. Það getur orðið mjög hættulegt ef við
verðum lengi í þessu ástandi. Við verðum að
tryggja að börnin verði áfram í skipulögðu
íþrótta- og æskulýðsstarfi þegar ástandinu
lýkur.“
Vísbendingar eru um að dregið
hafi úr skráningum iðkenda í
skipulögðu íþrótta- og tóm-
stundastarfi. Formaður ÍBR
mælir með því að þjálfarar
íþróttafélaga þjálfi börn á
skólatíma.
Fjöldi iðkenda eftir ári
Íþrótta- og æskulýðsstarf í skráningarkerfinu Nóra
Yfirlit um allt íþróttastarf úr skráningarkerfinu Nóra. Greiningin var gerð 20. október 2020.
Athygli er vakin á því að ekki eru öll íþrótta- og ungmennafélög á landinu sem nýta kerfið fyrir
skráningar sínar. Þó nýta langflest félög kerfið og því ætti það að geta gefið vísbendingar um
þá þróun sem er hafin.
Innan hvers aldursflokks er hver kennitala talin einu sinni. Á undanförnum árum hefur skrán-
ingum á haustönn yfirleitt verið lokið á þessum tíma.